Skinfaxi - 01.04.1965, Qupperneq 6
1. Kl. 20.00 á föstudagskvöldið 2 júlí,
verður fundur með flokksstjórum íþrótta-
hópanna, og starfsmönnum mótsins.
Þar komi fram breytingar á niðurröðun
keppenda í keppnisgreinar, s'vo og kærur
vegna þátttöku, og framkvæmd íþrótta-
keppninnar, ef einhverjar eru,
Eftir þann fund verða engar breytingar
leyfðar á niðurröðun keppenda í keppnis-
greinar.
2. Mótssetning. Kl. 09.00 á laugardags-
morgun 3. júlí, verður gengið fylktu liði til
íþróttavallar, þar sem mótssetning fer fram.
Hver íþróttahópur gengur undir merki
síns félags, eða héraðssambands. Fánar
dregnir að hún, fjöldasöngur.
Formaður U.M.F.Í. séra Eiríkur J. Ei-
ríksson setur mótið.
3. Ávarp skólastjóra íþróttakennaraskóla
íslands Árna Guðmundssonar.
4. íþróttakeppni. Keppni í frjálsum í-
þrótmm, fer fram á grasvellinum, með
hinum glæsilegu hlaupa-, og atrennubraut-
um. Þar munu og fara fram úrslitaleikir í
knattspyrnu og handknattleik, á malarvell-
inum fer fram keppni í knattleikjum, og ef
til vill í einhverjum greinum frjálsíþrótta
(kösmm).
Sundkepni mótsins fer fram í útisund-
laug 10x25 m að stærð, sundlaugin er
staðsett í nálægð íþróttavalla, timburlaug
klædd plasti. Glímukeppni fer fram á sýn-
ingarvelli.
5. Starfsíþróttir. Starfsíþróttakeppni móts-
ins fer fram all víða, innan aðal mótssvæð-
isins og utan þess. Skrifleg verkefni og
keppni í jurtagreiningu fer fram í Barna-
skólanum, keppni í blómaskreytingu fer
fram í samkomusal Menntaskólans. Aðrar
keppnisgreínar kvenna fara fram í Hús-
mæðraskólanum.
Keppni í dráttarvélaakstri ‘og búfjárdóm-
um fer fram inni á mótssvæðinu austan við
íþróttavellina.
Keppni í gróðursetningu trjáplantna verð-
ur í Iandi skógræktarinnar að Laugarvatni.
Umsjónarmaður starfsíþróttakeppninnar
verður Stefán Ó. Jónsson. Yfirmótsstjóri
verður Þorsteinn Einarsson.
6. Sýningar. Sýningar allar munu fara
fram á sýningarvelli, svo og kvöldvaka og
hátíðadagskrá mótsins.
Sýndir verða þjóðdansar innlendir og er-
lendir, fimleinkar pilta og stúlkna, körfu-
knattleikur og glíma.
Meðal dagskrárefnis sem þar fer fram,
eru: Ræða, ávörp, kórsöngur, hljómlist,
söguleg sýning og lúðrasveit mun leika
milli dagskráratriða. Þá er ætlunin að hafa
sýningu á landbúnaðarvélum á mótssvæð-
inu.
7. Fyrirgreiðsla. Reynt verður að vanda
sem mest alla fyrirgreiðslu fyrir þátttak-
endur mótsins og gesti.
Sérleyfishafi, Ólafur Ketilsson, mun halda
uppi reglubundnum ferðum frá Reykjavík
að Laugarvatni mótsdagana. Þá munu og
verða reglubundnar ferðir frá Selfossi sömu
daga.
Aðalskrifstofa mótsins, og upplýsinga-
þjónusta, mun verða í Héraðsskólanum I.
hæð. Aðsetur stjórnenda íþróttakeppninn-
ar verður í húsi nálægt íþróttavöllunum.
Tjaldstæði keppenda eru á lóð íþrótta-
kennaraskólans sunnan við grasvöllirin.
Tjald- og bílastæði fyrir hinn almenna
mótsgest verða á eftirtöldum stöðum: Vest-
ur við Lindarskóg, á tjaldaflöt austan við
Barnaskólann og í skóginum innan við
6
SKINFAXI