Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1965, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.04.1965, Blaðsíða 16
Þetta er hópur íþróttafólks úr UMSK, sem sigraði á Landsmótinu 1940 í Hauka- dal. þeim stað. íþrótta- og félagslíf sveitanna á Sigurði Greipssyni mikið að þakka. Ég hef verið beðinn um að minnast þess, sem mér væri minnisstætt frá mótinu sjálfú. Margt er enn Ijóslifandi í huga mér frá þeim dögum, atburðir þessara daga greipt- ust í huga sveitadrengsins, að sjá þann fólksfjölda, sem þarna var, sjá þá íþrótta- menn úr öðrum héruðum, sem ég hafði les- ið um og standa andspænis því að eiga að keppa fyrir félag sitt og hérað, allt hafði þetta djúpstæð áhrif. Ég minnist þess, þegar það óhapp vildi til í milliriðli í 100 m hlaupinu, að við- bragðshola gaf eftir hjá Janusi Eiríkssyni, með þeim afleiðingum að hann féll úr keppninni Að mínu áliti var Janus sprett- harðasti keppandi mótsins og sá, sem við væntum mikils af í þeirri grein. Ég minnist langstökks- og þrístökks- keppninnar. Mér gekk illa að hitta stökk- plankann. og var, að ég held, síðastur þeirra, sem kepptu til úrslita. í þá daga var það takmark okkar strákanna, sem kepptum í langstökki að stökkva yfir 6 metra. Mér hafði ekki tekizt það og þarna sá ég í fyrsta sinn langstökk yfir 6 metra. Þegar 4 umferðir voru búnar, höfðu bæði Janus Eiríksson og Sigurður Guðmundsson úr Borgarnesi stokkið 6,05 m. Ég var kappsfullur og ekki ánægður með sjálfan mig í keppninni til þessa. Ég undirbjó mig vel í næst síðustu umferð og nú fann ég að mér tókst vel og stökkið reyndist 6,10 og í síðustu umferðinni náði ég aftur 6 m. í þrístökki var takmarkið hjá mér, að stökkva 12 m Það hafði mér ekki tekizt áður. Nú gekk allt miklu betur. Flest stökkin voru yfir 12 m og það lengsta 12,60, og tókst ekki öðrum að stökkva yf- ir 12 m. Sigurinn í langstökkinu veitti mér aukið öryggi. Þessi afrek, sem ég minnist á, eru í dag ekki stórvægileg miðað við þann árangur, sem íþróttamenn ná nú. Hvað um það, okkur fannst mikið til um þetta þá. Við æfðum ökkur við þær að- stæður, sem fyrir hendi voru. Þátttaka í íþróttaæfingum og mótum þá veittu okkur mikið, engu minna en hún veitir þeim, sem eru þátttakendur í dag. Á landsmótinu í Haukadal batt ég vináttubönd við marga, sem haldizt hafa fram á þennan dag, þótt við höfum síðan horfið að ólíkum viðfangs- efnum. Ég tel mig í mikilli þakkarskuld við ungmennafélagshreyfinguna og ég er þess fullviss, að hún hefur stuðlað að marg- þætmm framförum við mótun æskulýðsins á hverjum tíma. Um Ieið og ég flyt UMFÍ þakkir mínar fyrir að hafa verið þátttakandi í störfum ungmennafélaganna, árna ég UMFÍ allra heilla í starfi um ókomin ár. 16 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.