Skinfaxi - 01.04.1965, Blaðsíða 17
auttormur Þormar,
bóndi off hrepp-
stjóri í GeitagerSi,
F'Ijótsdal, sigraði
glæsilega á Hvann-
;yrarmótinu 1943,
fékk 14 stig.
Á HVANNEYRI 1943
Ritstjóri Skinfaxa hefur ferið þess á leit
við mig, að ég segði í stuttu máli frá
Landsmóti U.M.F.Í. 1943, Hvanneyrarmót-
inu.
Segja má, að þetta mót hafi markað
tímamót í sögu Iandsmótanna. Það var hið
fyrsta, sem sótt var úr öllum fjórðungum
landsins, og þar var þeim komið í ákveðið
form. Einnig var þar í fyrsta sinn keppt
um farandskjöldinn.
Sem þátttakandi í fimm landsmótum
U.M.F.Í. mun mér Hvanneyrarmótið lengi
einna minnisstæðast, ekki einungis vegna
velgengni okkar Austfirðinga, sem unnum
þetta mót, heldur og fyrir hinn mikla há-
tíðablæ, sem yfir því hvíldi, og var öllum,
sem að því stóðu, til hins mesta sóma.
Mælt var, að þetta hefði verið fjöl-
mennasta samkoma, sem haldin hefði verið
að Alþingishátíðinni undanskilinni.
Mótið hófst að venju með skrúðgöngu
á völlinn, og var hún mjög tilkomumikil.
því að mikill mannfjöldi var kominn á
staðinn þegar um morguninn. Setningarat-
höfnin fór síðan fram á íþróttasvæðinu
neðan við skólann. Aðstæður til keppni
voru mjög sæmilegar, nema hvað völlurinn
var laus og árangur keppenda þess vegna
lakari. En þarna var háð ein hin jafnasta
keppni milli héraðssambanda, svo að úrslit
voru eigi að fullu ráðin fyrr en undir
lok keppninnar.
Af skiljanlegum ástæðum mun hverjum
það hugstæðast .frá slíkum tækifærum, er
að honum sjálfum snýr, enda ýmislegt, sem
fer framhjá þeim, er í eldinum standa.
Það leyndi sér ekki að 100 m hlaupsins
hafði lengi verið beðið með eftirvæntingu.
Borgfirðingar bundu vonir sínar við hinn
sigursæla Höskuld Skagfjörð, sem hafði
ýmsa stóra sigra að baki, svo sem yfir
„beztu mönnum" K.R. Hundrað metrarnir
voru ávallt mín uppáhaldsgrein, og við
þá hafði ég allan hugann í þetta sinn.
Þetta virtust þeir hinir mörgu vita. er
gaman höfðu af að minna mig á Höskuld
Guttormur Þormar í lanjrstökkskeppnl á
íþróttamóti Austurlands 1945.
SKINFAXI
17