Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1965, Blaðsíða 34

Skinfaxi - 01.04.1965, Blaðsíða 34
Frá skrifstofu UMFÍ Héraðsþii*0 Ársþing Héraðssambandsins Skarp- héðins 1965 var haldið í janúarmáinuði í Aratungu. Sambandsstjóri UMFÍ flutti þar ávarp. Einnig sat þingið Ármann Pétursson gjaldkeri UMFÍ. Aðalmál þingsins var landsmótið að Laugarvatni 1965. Þingið var fjölsótt. Héraðsþing Héraðssambands Snæfells- Hnappadalssýslu var haldið í félagsheimil- inu í Kolbeinsstaðahreppi 18. nóv. s.l. Þingið sóttu Ármann Pétursson og Haf- steinn Þorvaldsson, stjórnarmenn UMFÍ. Mikið var rætt um landsmótið að Laugar- vatni 1965. Þingið var vel sótt. Héraðsþing Ungmennasambands Kjalar- nesþings 1965 var haldið í félagsheimilinu í Kópavogi 7. marz. Framkvæmdastjóri UMFÍ flutti ávarp á þinginu. Héraðsstjóri Haukur Hannesson baðst undan endurkjöri. í hans stað var kjörinn Ólafur Ármannsson, Eyvindarholti, Álftanesi. Einkum var rætt landsmótið að Laugarvatni 1965. Ungmennasamband Skagafjarðar hélt héraðsþing sitt sunnudaginn 9. maí 1965 í Reykjaskóla í Tungusveit. Framkvæmda- stióri UMFÍ var gestur þingsins og flutti þar ávarp. Aðrir gestir þingsins voru for- seti og framk\ æmdastjóri Í.S.Í. Héraðs- stjóri sambandsíns, Guðjón Ingimundarson, var heiðrtður með æðsta I’eiðursmerki Í.S.Í. Einnig heiðraði U.M.S.S. tvo fyrrverandi héraðsstjóra og þrjá íþróttamenn sambands- ins. Sunnanmenn voru samferða til þings- ins í bifreið Í.S.Í. Framkvæmdastjóra UMFÍ var boðin samfylgd. Þingið var vel sótt og gengu þingstqrf greiðlega. 24. sambandsþing UMFÍ 24 sambandsþing Ungmennafélags fs- lands verður haldið að Laugarvatni 1. og 2. júlí n. k. Þingið verður sett kl. 4 e.h. fimmtudaginn 1. júlí. Aðalmál þingsins verða: íþróttamál, starfsíþróttir og félags- mál. Héraðssamböndin kjósa fulltrúa til sambandsþings, einn fyrir hvert stórt hundrað reglulegra félagsmanna og afgang nái hann helmingi. Einstök félög, sem eru í UMFÍ án milligöngu héraðssambands, kjósa fulltrúa eftir sömlu reglu. Réttur er alltaf til eins fulltrúa, þótt félagið nái ekki stóru hundraði. (Sjá 5. og 7. gr. laga UMFÍ í 3.—4. hefti Skinfaxa 1963). Skýrslur og skattar Héraðssamböndin eru sérstaklega minnt á að senda skýrslur og skatta til UMFÍ á réttum tíma. Ritstjórn Eysteinn Þorvaldsson hefur verið ráðinn titstjóri Skinfaxa, ásamt sambandsstjóra séra Eiríki J. Eiríkssyni. Munu ritstjórarnir hafa nána samvinnu við skrifstofuna eins og árur. 34 SKINFAXí

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.