Skinfaxi - 01.04.1965, Blaðsíða 12
LAUGARVATN
— MótsstaSur ungmennafélagta 1965.
Eftir Bjarna Bjarnason, fyrrv. skólastjóra, Laugarvatni.
I >
Ég hef verið beðinn að rita í þetta blað
kynningargrein um Laugarvatn Þó að slílc
grein tæki yfir allt blaðið, yrði fátt eitt sagt
af sögu Laugarvatns. Það hefur því orðið
að samkomulagi, að ég riti stutta grein,
sem einkum verði miðuð við þá móts-
gesti, sem eru ókunnugir á Laugarvatni og
ekki þekkja umhverfið hér .
í þessu sambandi gefst tilefni til að
benda á, að saga Laugarvatns frá land-
námstíð og til síðustu ára, hefur verið rit-
uð og gefin út
II
Laugarvatn var ekki landnámsjörð. Ketil-
björn gamli tók sér bólfestu á Mosfelli í
Grímsnesi, nam mikið land, meðal annars
up að fjöllunum hér.
Langt fram á söguöld hét bærinn hér
Reykir. í Kristnisögu segir frá því, að ís-
lendingar tóku kristna trú árið 1000 á
þingi við Oxará og skyldu skírn taka. Segir
svo orðrétt: „Allir Norðlendingar og Sunn-
lendingar voru skírðir í Reykjalaugu í
Laugardal er þeir riðu af þingi." Þetta
bendir til, að þá hafi verið hér heitar
laugar og að við þær hafi bærinn verið
kenndur og sennilega vatnið líka, en heilög
skírn fjölda heiðinna manna var svo merk-
ur atburður, að eðlilegt má telja að stað-
urinn skipti um nafn, líklega með hliðsjón
í Jónasarluntli uppi í brekkunni fyrir of-
an Laugarvatn. I»eir, sem þarna standa
taliS frá vinstri: Bjarni Bjarnason, skóla-
stjóri, Unnur Kjartansdóttir frá Hruna,
hjónin Anna Oddsdóttir og Helgi Ágústs-
son frá Birtingaholti og barnabörn þeirra.
Helgi var formaöur skólanefndar Laug-
arvatnsskóla 15 fyrstu ár skólans. Mynd-
ina af Jónasi Jónssyni geröi Ríkharður
Jónsson.
af því, að ein þeirra Iauga, sem hér voru,
varð með skírninni vígð laug og heitir nú
Vígðalaug.
Fleiri merkir atburðir eru tengdir við
þessa laug
III
Allir, sem að Laugarvatni koma, dást að
12
SKINFAXI