Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1965, Page 24

Skinfaxi - 01.04.1965, Page 24
Þrastalundur hinn nýi í smíðum. (Ljósm. Tómas Jónsson). íþróttavöllurinn í allmörg ár hefur verið unnið að gerð rnyndarlegs íþróttavallar í Þrastaskógi, og er þeirri framkvæmd nú langt komið. Völl- urinn hefur verið erfiður í vinnslu, sprengja varð marga hraunhóla sem jarð- vinnslutæki unnu ekki á. Með tilkomu stórvirkari jarðvinnsluvéla tókst að jafna völlinn að fullu í fyrra, og í sumar verður ýtt yfir hann moldarlagi og sáð x hann grasfræi. Þá hefur verið rudd bílabraut frá skóg- arhliðinu inn að íþróttavellinum, og tókst sú framkvæmd mjög vel, en eftir er að bera möl ofan í brautina Þessi braut fellur mjög haganlega inn í umhverfið, og þyrfti í framtíðinni að lengja hana inn að Álfta- vatni. Strönd Álftavatns er einhver fegursti staðurinn í Þrastaskógi. Þar eru víkur inn í skógivaxna ströndina og á þessum slóð- um er skógurinn gróskmestur og fegurstrur. Framtíðarstaður , í Þrastaskógi eru óþrjótandi verkefni að vinna fyrir ungmennafélagssamtökin. Það þarf að halda áfram að auka nýtingun þess- arar dýrmætu eignar og opna staðinn fyrir fólki. Ungmennafélagar eiga miklar fram- tíðarvonir á þessum stað, og vonandi eiga sem flestir þeirra áfangastað í hinum nýja Þrastalundi er þeir sækja Landsmótið að Laugarvatni í sumar. 24 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.