Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.04.1965, Qupperneq 29

Skinfaxi - 01.04.1965, Qupperneq 29
A3 upplagi er hægri fótur minn betri knattfórur, en þó er ég talinn nokkuð jafn- vígur á báða fætur. í leik olli það mér engum erfiðleikum að beita hvort heldur var vinstri eða hægri fæti til að leika knett- inum, taka á móti honum eða einleika með hann, senda hann fram eða skjóta á mark. Aðeins kyrrum knetti (aukaspyrnur, víta- spyrnur og hornspyrnur) spyrnti ég nær undantekningarlaust með hægra fæti, enda er höfuðatriði að viðhafa sem mest öryggi í slíkum tilfellum. Ég vil þó skjóta því hér inn, til að fyrir- byggja mistök í æfingum, að samkvæmt minni reynzlu kemur það ekki að haldi þótt ungur leikmaður æfi tímum saman allar þessar spyrnur með veikari fæti sín- um. Það er fyllilega nægilegt, ef hann í leik er öruggur með betri fæti. Án efa er það þó mikilvægur kostur við hvern knatt- spyrnumann að vera jafnvígur á báða fæt- ur, en ég álít að hæfileikarnir skipti þó mesm máli í þessu efni. Sumir snjöllustu knattspyrnumenn heimsins, sem ég hef kynnzt — ég minnist sérstaklega Ference Puskas og Alfred Pfaff — léku nær ein- göngu með betri fætinum. Eingum þeirra datt nokkru sinni í hug að nota Iakari fót- inn til hornspyrnu, aukaspyrnu o. s. frv. í mikilvægum Ieik. Af þessu leiðir eina grundvallarreglu knattspyrnuþjálfunar: Æfið í samræmi við leikinn. Æfið þannig að kröfum raunveru- legs leiks verði fullnægt! En æfið mörg- hundruð sinnum það, sem þið þarfnist í leiknum! Hið fyrirhafnarlausa öryggi mikilla leik- manna er ávöxtur hæfileika og ótrúlegustu iðni og ástundunar Aðeins það, sem leik- maður hefur algert vald yfir á æfingu, get- SKINEAvt ur heppnast í hröðum Ieik og við þá and- legu og líkamlegu áreynzlu, sem keppni krefst. Þegar ég hafði öðlast nær fullkomið öryggi í framkvæmd hornspyrna, þá fyrst var þetta ekkert erfiði lengur, og maður gat áreynslulaust beitt þessari leikni í keppni Vesturþýzki landsþjálfarinn, Sepp Her- berger, hefur ætíð lagt mikið upp úr því að menn noti sér til hlítar alla þá kosti, sem leikreglurnar bjóða upp á, og færi sér sem bezt í nyt þau tækifæri sem bjóðast þegar andstæðingunum er refsað fyrir brot á leikreglum. í landsliðinu æfðum við alltaf hornspyrnur, aukaspyrnur, vítaspyrnur og innköst, auk nauðsynlegra atriða samleiks í sókn og vörn. Fyrir Heimsmeistarakeppnina í Sviss 1954 og meðan á henni stóð, kom okkur saman um að æfa langar og stuttar horn- spyrnur. Það átti eftir að koma í Ijós hversu mikilvægt þetta var. í leiknum gegn Austurríki, sem við unnum 6:1, skoraði Max Morlock annað markið eftir langa hornsendingu frá mér, og „Ottes" fjórða markið eftir stutta sendingu af sama tagi. í hinum sögulega úrslitaleik við Ungverja skoraði Helmut Rahn hið mjög svo mikil- væga jöfnunarmark (2:2) eftir langa horn- spyrnu frá mér. Þessi hornspyrna kom strax á eftir stuttri hornspyrnu, sem Ungverjar gátu ekki varizt nema í horn, Mér er einnig í fersku minni undirbún- ingur landsliðsins fyrir landsleikinn við Spán 1952 í Madrid. Herberger landsþjálf- ari hafði áður séð Spánverjana keppa við Argentínumenn. Þá veitti hann því athygli hversu hornspyrnur þeirra voru hættulegar. Á æfingum sýndi hann skalla-sér- 29 /

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.