Skinfaxi - 01.04.1965, Blaðsíða 33
móti, en það sæti gefur rétt til þess að
tefla áfram í næsta kandídatamóti. Geller
varð í 3. sæti á síðasta kandídaramóti, og
þar sem fyrrverandi heimsmeistari Botvinn-
ik notfærði sér ekki rétt sinn til þátttöku í
kandídatakeppninni, kom í hlut Gellers að
taka sæti hans.
Skipulag þessarar kandídatakeppni, sem
er röð einvígja, er þannig, að hinum átta
keppendum er skipt í tvo hópa. Eru þeir
Keres, Geller, Smyslov og Spasky í öðrum
hópnum, en Tai, Larsen, Ivkov og Partisch
í hinum. Er hver hópur látinn kljást
innbyrðis í 10 skáka einvígjum, þar til
einn stendur uppi hvoru megin. Þessir tveir
heygja síðan úrslitabaráttu sín í milli um
áskorunarréttinn, og er einvígi þeirra 12
skákir. Með öðrum orðum, þetta er út-
sláttarkeppni.
Eins og fyrr er frá greint eru þeir
Spassky og Geller eftir af fyrri hópnum,
og eiga þeir eftir að heyja einvígi sín í
milli. í seinni hópnum hefur hinsvegar
engin keppni farið fram enn. Þar eiga að
tefla saman þeir Tal og Portisch og þeir
Larsen og fkov.
Erfitt er að spá um, hver þessara garpa
verður hlutskarpastur að lokum, en ekki
kæmi mér á óvart þótt Spassky yrði til
þess að heyja einvígið við Petrosjan.
Hér birtist fyrsta skákin í einvígi þeirra
Spassítys og Keresar. Af liinni virðist mega
ráða, að Spassky hafi verið nokkuð óörugg-
ur í fyrstu. En annars urðu úrslit einstakra
skáka í einvígi þeirra sem hér segir: Keres
vann fyrstu, önnur varð jafntefli, Spassky
vann þriðju, fjórðu og fimmtu; sjötta og
sjöunda urðu jafntefli, Keres vann áttundu,
níunda varð jafntefli og Spassky vann tí-
undu og síðustu skákina.
Keres
Hvítt: SPASSKY Svart: KERES.
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. Rf3 b6
4. Rc3 Bb7
5. Bg5 h6
6. Bh4 Be7
7. e3 Re4
8. BxB DxB
9. Rxe4 Bxe4
10. Be2 Db4t
11. Rd2!? Bxg2
12. Hgl Bb7
13. Hxg7 Rc6
14. c5 bxc5
15. a3 Da5
16. b‘4 cxb4
17. Rb3 Da4
18. axb4 Dxb4t
19. Kfl Df8
20. Hg3 Re7
21. Rc5 Bc6
22. e4 Hg8
23. Hla3 HxH
24. HxH Hb8
25. d5 exd5
26. Dal dxe4
27. Qh5 Hb5
28. Dd4 Rg6
29. BxR f7xB
30. Rxe4 Hblt
31. Ke2 Hb4
32. Rf6f Kd8
33. Dal Dc5
Gefið.
SKINFAXI
33