Skinfaxi - 01.04.1965, Síða 38
Starfsemi ungmennafélaganna
Við byrjum á því að birta athyglisverða
og tímabæra grein, sem birtist í blaðinu
„Suðurland" hinn 1. maí s.l. Greinin er eft-
ir Jóhannes Sigmundsson í Syðra-Lang-
holti:
STARFSEMI FÉLAGSHEIMILANNA
Stundum heyrast raddir um það, að fé-
lagsheimilin í byggðum landsins séu held-
ur lítilfjörlegar stofnanir, þar sem fátt ann-
að fari fram en dansskröll og drykkjuskap-
ur.
Satt er það að vísu, að ýmislegt mætti
betur fara í samkomuhaldi félagsheimil-
anna sem og annarra aðila, er gangast fyrir
opinberum dansleikjum, enda er ekki spar-
að að lýsa því sem miður fer með fjálg-
legum orðum. Hinu er lítt á loft haldið,
að í mörgum félagsheimilanna og líklega
flestum fer fram margvíslegt félagslegt
menningarstarf og í sumum tilfellum eru
húsin í notkun svo að segja hvert kvöld
yfir vetrartímann og stundum tví- og jafn-
vel þrísett í þau. Máli mínu til sönnunar
ætla ég að birta yfirlit um samkomuhald
í Félagsheimili Hrunamanna að Flúðum
fyrir árið 1964, sem mér barst í hendur
fyrir skömmu.
Á skýrslu þessari er hver mánuður tek-
inn fyrir sig og samkomurnar flokkaðar
og tilgreint, hve langan tíma þær hafa
tekið.
Flestar eru samkomurnar í febrúar og
marz.
Tala klst.
Fundir 4 23
Tafl og spil 2 41/2
Leiksýning 1 4
Leikæfingar 3 4
Dansleikur 1 5
íþróttamót 1 3/2
Söngæfingar 4 9
Kvikmyndasýningar 4 6
Körfuknattleikur 3 7
Leikfimi 6 6
Frúarleikfimi o.fl.
Söngkennsla 5 11
Samtals 34 33
Marz:
Tala klst.
Fundir 6 18/2
Tafl og spil 4 111/2
Leikæfingar 2 4
Dansleikir 2 11
Körfuknattleikur 3 6
Leikfimi 6 6
Kvikmyndasýningar 4 6
Söngæfingar 4 10
Saumaklúbbur 1 3/2
Brunavarnaæf. 3 10
Samtals 35 86/2
Af samkomum í öðrum mánuðum má
nefna barnaskemmtun, kvöldvöku þriggja
38
SKINFAXI