Skinfaxi - 01.04.1965, Qupperneq 46
Keppni í annarri umferS Iauk þannig.aS
Umf. Keflavíkur vann Ums. Kjalarnesþings,
H. S. Strandamanna vann Ums. Borgarfjarð-
ar og Ums. Skagafjarðar vann H.S. S-Þing-
eyinga.
Keppni — Vinningsliðin þrjú:
Umf. Keflavíkur, HS. Strandamanna og
Ums. Skagafjarðar mæta til úrslita á 12.
Landsmóti U.M.F.Í. á Laugarvatni. Úrslit
í einstökum leikjum urðu þessi:
I. Ums. Skagafjarðar H.S. S-Þingeyinga 3:1
2. H.S. S-Þingeyinga Ums. Eyjafjarðar 3:1
3. H.S. Strandam. Ums. V-Húnavatnss. 2:1
4. Ums. Borgarfj. H.S. Snæf.- og Hn.s. 4:2
5. H.S. Strandam. H.S. Snæf.- og Hn.s. 4:0
6. Ums. Borgarfj. Ums. V-Húnavatnss. 4:1
7. H.S. Strandam. Ums Borgarfj. 2:0
8. Ums. Kjalarnesþ. H.S. Skarphéðinn 5:1
9. Umf. Keflavvíkur H.S. Skarph. (gefið)
10. Umf. Keflav. Ums. Kjalarnesþ. 1:1
11. Umf. Keflav. Ums. Kjalarnesþ. 3:0
í úrslitakepni á knattspyrnu á landsmót-
inu skal telja 2 stig fyrir unninn Ieik, 1
stig fyrir jafntefli og 0 stig fyrir tapaðan
leik. Verði liÖ jöfn að stigum, ákveðst röð
til landsmótsstiga skv. fjölda marka í úr-
slitakeppni. Náist eigi úrslit á þann hátt,
ræður fjöldi fenginna og skoraðra marka
undankeppni (fyrri og síðari umferð) úr-
slitum.
FORKEPPNI í HANDKNATTLEIK:
1. svæði: HSK—UMFK 3:4.
2. svæði:UMSK—UMSB (UMSB gaf).
3. svæði: UMSS—HSH 4:3.
4. svæði: HSÞ—UÍA 8:0.
Tapliðin á hverju svæði áttu að keppa
sín á milli um réttinn til að keppa í annari
umferð ásamt sigurliðinu af hverju svæði.
En svo fór að UMSB gaf leik sinn gegn
HSK og UÍA gaf leik sinn gegn HSH.
Voru þá 6 lið eftir til keppni í annarri
umferð. Svo fór að HSÞ vann UMSS með
7:3. HSK hjaut að keppa aftur við UMFK,
en samkv. reglugerð gilda þá fyrri úrslit,
því þessi Iið kepptu í fyrstu umferð og
sigraði UMFK. HSH gaf hinsvegar leik
sinn gegn UMSK. Til úrslita á Landsmót-
inu kepap því þessi þrjú lið: Héraðssam-
band Suður-Þingeyinga HSÞ), Ungmenna-
samband Kjalarnessþings (UMSK) og Ung-
mennafélag Keflavíkur UMFK).
Erindrekstur
Framkvæmdastjóri UMFÍ sat héraðsþing
UÍA síðastliðið haust og ræddi við nokkra
forystumenn heima í félögunum. Einnig
ræddi hann við forystumenn Ungmenna-
sambands Vestur-Skaftafellssýslu á Kirkju-
bæjarklaustri í febrúar s.l.
Skrifstofan
Skrifstofa UMFÍ var flutt frá Hjarðar-
haga 26 í Lindarbæ við Lindargötu 26, í
apríl s.l. Skrifstofutími er óbreyttur svo og
sími og pósthólf.
ÆSÍ
Æskulýðssamband íslands hefur undan-
farið gefið út fréttabréf, þar sem greint er
frá helztu störfum ÆSÍ. Þeir ungmenna-
félagar, sem vilja gerast áskrifendur að
fréttabréfinu, eru vinsamlega beðnir að
senda nöfn sín til skrifstofu UMFÍ eða
Æskulýðssambands íslands, pósthólf 1026,
Reykjavík.
46
SKINFAXI