Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1969, Síða 34

Skinfaxi - 01.09.1969, Síða 34
USAH Þáttaka í spumingakeppni Ungmenna- sambands Austur Húnvetninga var að þessu sinni frá 7 félögum. Ekki var gert að skyldu að þátttakendur í keppninni væru í ungmennafélögum, en þeir skyldu vera búsettir á félags- svæði viðkomandi ungmennafélags. Engin aldurstakmörk voru sett. Alls sendu sjö félög lið til keppni, eins og áður segir, og voru þrír í hverri sveit. Keppt var á fjórum stöðum, þ.e. í Húnaveri, á Skagaströnd, Flóðvangi og á Blönduósi. Lokakeppnin var háð á Húnavöku. Sveit Ungmennafélags Svínhrepp- inga bar sigur úr býtum, en sveitina skipuðu: Valgerður Guðmundsdóttir, Syðri-Grund; Jóhann Guðmundsson, Holti og Hannes Guðmundsson, Auðkúlu. Hvert þeirra fékk í verðlaun eintak af bókinni „Veröldin og við“. I öðru sæti var sveit Ungmennafélags Þingbúa. Fengu liðsmenn í verðlaun bókina „Bættir eru bænda hættir“. M. Ó. Ums. ÍJlfljótur, Austur-Skaftafellssýslu 2. febrúar 1969 kom stjórn Úlfljóts saman á fund ásamt með formönnum sambandsfélaganna. Var þar rætt m. a. um framkvæmd og fyrirkomulag á væntanlegri spurningakeppni milli sambandsfélaganna. Tilhögun keppninnar var ákveðin þannig: Tvö félög skyldu keppa með sér hverju sinni. Félögn voru alls 6, sem þátt tók í keppninni, þar sem Umf. Öræfinga var boðin þátttaka í keppn- inni, þó það sé ekki í sambandinu. Urðu því 3 félög að taka þátt í úrslita- keppninni. Til keppni skyldu mæta 5 þátttakendur frá hverju félagi. Urðu þeir að hafa verið félagar í viðkomandi félagi a. m. k. frá síðustu áramótum. Þá var það gert að skilyrði, að a. m. k. 2 eða 3 af keppendum frá hverju félagi yrðu að vera 20 ára eða yngri, og var þá ekki bundið neinu skilyrði, að þeir unglingar hefðu verið skrásettir í við- komandi ungmennafélagi um síðustu áramót. Enda fór það svo, að frá flest- um félögunum mættu til keppni meðal annarra unglingar allt niður í 12 ára aldur. Var því ávallt nokkrum hluta spuminganna hagað þannig, að þær væru einkum við hæfi unglinga. Spyrja skyldi 20 spurninga hverju sinni, og mátti velja þær um hvað sem vera skyldi milli himins og jarðar. Einnar mínútu umhugsunarfrestur var leyfð- ur til að svara spurningu. Til þess að stjórna spurningakeppn- inni var fenginn Rafn Eiríksson skóla- stjóri, Sunnuhvoli, en dómari var séra Skarphéðinn Pétursson prófastur að Bjarnanesi, og tímavörður Óskar 34 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.