Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1991, Page 27

Skinfaxi - 01.12.1991, Page 27
HANDKNATTLEIKUR í 1. deild eftir þrjú ár Handknattleiksdeildin hjá Fjölni var stofnuð í maí 1990. Nú eru starfandi 4., 5., 6. og 7. flokkur karla, auk meistaraflokks og 4., 5. og 6. flokkur hjá konum. Á- huginn er mjög mikill og eftir að undirskriftalistar bárust frá um 70 krökkum í hverfinu var á- kveðið að byrja af fullum krafti. Námskeið voru haldin þar sem 60-70 krakkar mættu á hverjum sunnudegi í 14 vikur til þess að spila handbolta. Reglubundnar æfingar hófust svo í september 1990. Meistaraflokkur karla vann Suðurlands- bikarinn í desember 1990 og sigraði ör- ugglega í þriðju deild íslandsmótsins síðastliðinn vetur. Flest allir strákarnir eru með einhverja reynslu að baki og eru aldir upp hjá félögum hingað og þangað, en hafa sumir hverjir ekki spil- að lengi. Það sem af er keppni Fjölnis- manna í annarri deild hefur gengið held- ur brösuglega. Samkvæmt heimildum GV fyrir nokkru var talið að heildar- markahlutfallið úr fyrstu sex leikjum Fjölnismanna í Reykjavíkurmótinu hefði verið 150:15, andstæðingum í vil. Björgvin Björgvinsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik er þjálf- ari liðsins. Hann var leikmaður með landsliðinu í 12 ár og var talinn mjög góður leikmaður. Hann hefur þjálfað í ein tíu ár, hjá Fram, Stjörnunni, Selfossi og nú hjá Fjölni. Fjölnismenn binda miklar vonir við Björgvin, en hver er ástæðan fyrir góðu gengi í 3. deild, en lélegu gengi þegar upp í 2 .deild er komið? Björgvin segir að það verði að líta til þess að ekki voru nerna þrjú Iið í þriðju deild og þau hafi getulega séð ekki verið rnikil handboltalið. „Það er í raun og veru mjög eðlilegt að þegar meistara- flokkur Fjölnis er kominn í aðra deild sé staðan þessi vegna þess að stökkið úr þriðju deild í aðra er geysilega mikið. I annarri deild er farið að æfa liðin fimm sinnum í viku og sum hver leggja mik- inn metnað í það að vera ofarlega. Við erum rétt að byrja, strákarnir eru rétt að átta sig á hvað það er erfitt að breytast úr miðlungsliði í lið sem fer að geta lát- ið að sér kveða í sportinu sem slíku, en það kostar óhemju mikla vinnu,” segir Björgvin. Magnús Guðmundsson fyrirliði Fjölnis- manna segist vera sammála þjálfara sín- um um ástæður þess að liðið komst upp þriðju deild í aðraog fyrir lélegum ár- angri það sem af er þar, en vill bæta þessu við; „Við höfum misst nokkra stráka sem hafa gefist upp, en kjarni liðsins hefur frekar bætt sig. En það er ekki nóg að hafa 7-8 menn, heldur verð- um við að hafa 12 manna góðan kjarna. Aðalástæðan fyrir stöðunni er sú að mismunurinn á annarri og þriðju deild er bara svo mikill. Hafið þið tapað illa þessum leikjum sem þið liafið verið að spila? I GV var skrif- að að markahlutfallið í Reykjavíkurmót- Skinfaxi 27

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.