Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Blaðsíða 42
Pétur Maack skipstjóri
fimmtugur
Pétur Maack skipstjóri á b.v. Max Pemberton
er einn kunnasti aflamaður á togaraflotanum.
Hann hefir verið togaraskipstjóri í tuttugu ár
samfleytt.
Pétur er fæddur á Stað í Grunnavík 11. nóv-
ember 1892. — Faðir hans var Pétur prestur
Þorsteinsson, kaupmanns á Akranesi, Guð-
mundssonar. Móðir Péturs er Vigdís Einars-
dóttir, ættuð úr Aðalvík á Ströndum. Hún dvelst
nú hjá Pétri syni sínum.
Tveim mánuðum áður en Pétur fæddist
drukknaði faðir hans við lendingu í Grunnavík.
Stóð móðir hans þá ein uppi með 4 kornungar
dætur og þennan óborna son sinn. Bjó hún á-
fram á Stað þangað til vorið 1894, að hún flutt-
ist að Faxastöðum í Grunnavík og bjó hún þar
með börnum sínum í 17 ár. Naut hún aðstoðar
Friðriks bróður síns, sem fór til systur sinnar
eftir fráfall manns hennar og var fyrirvinna
heimilisins á meðan börnin voru í æsku. Friðrik
lifir nú í hárri elli í Bolungavík.
Pétur Maack var á fjórtánda ári, þegar hann
byrjaði sjóróðra á árabát. Var það á tveggja
manna fari með Kristjáni gamla Eldjárnssyni
í Grunnavík haustið 1906. — Hlutur Péturs
varð á milli 20 og 30 krónur. Fimmtán ára gam-
all fór hann til róðra í Bolungavík og reri hjá
Elíasi Halldórssyni vetrar- og vorvertíðina
1908. Var hlutur hans þá um tvö hundruð krón-
ur. Næstu ár reri hann á vorin frá Kálfadal og
log á haustin í Grunnavík, en á sumrum vann
hann heima hjá móður sinni við heyskap.
Pétur hefir jafnan getað valið úr mönnurn í
skiprúm á skipi því, sem hann hefir stýrt, enda
hafa safnast til hans hinir duglegustu sjómenn
og þeir verið lengi kyrrir í skiprúmi sínu.
Pétur fluttist með móður sinni austur að Hof-
teigi á Jökuldal árið 1911 til Elínar systur sinn-
ar, er þá hafði gifzt Vilhjálmi Snædal Gunn-
laugssyni bónda þar. Pétur dvaldist þar þangað
til árið eftir að hann fluttist hingað til Reykja-
víkur um haustið 1912. Um veturinn leitaði
hann sér menntunar í Reykjavík og falaðist
jafnframt eftir skiprúmi hjá Halldóri Þor-
steinssyni skipstjóra á Skúla fógeta. Réðist
hann til Halldórs um vorið 1913 og var háseti
á Skúla fógeta þangað til hann fórst á tundur-
dufli 26. ágúst 1914, en Halldór hafði þá látið
af skipstjórn Skúla fyrir tveim til þrem mán-
uðum.
Haustið 1914 fór Pétur á Stýrimannaskólann
og var þar þangað til í febrúar 1915, að hann
réðist á Earl Hareford til Halldórs Þorsteins-
sonar, sem keypt hafði þenna togara í félagi
við Elías Stefánsson. Fór Pétur í Stýrimanna-
skólann aftur og útskrifaðist úr honum vorið
1916. Upp frá því var hann ýmist bátsmaður
á Earl Hareford eða stýrimaður á Varanger
þangað til togararnir voru seldir úr landi haust-
ið 1917. Þá varð hann háseti á e.s. Gullfoss og
2. stýrimaður á honum frá ársbyrjun 1919 þar
til um vorið að hann réðist aftur á togara. Hann
varð 1. stýrimaður á nýja Skallagrími hjá Guð-
mundi Jónssyni vertíðina og vorið 1920. — Síð-
an skipstjóri um tíma á Hilmi og stýrimaður
á honum með Halldóri Þorsteinssyni. Síðan
1922 hefir Pétur verið óslitið skipstjóri á tog-
urum. Fyrst á Hilmi til 1927, síðan tvær ver-
tíðir á færeyska togaranum Royndin og á Max
Pemberton síðan í júlímánuði 1929.
Pétur hefir nú um langt skeið verið talinn í
allra fremstu röð togaraskipstjóra um afla-
brögð, kunnáttu í siglingafræði og sjómennsku
allri. Hann er nú formaður í skipstjóra- og
stýrimannafélaginu Ægi.
Til dæmis um aflasæld Péturs má geta þess,
að hann aflaði um 6300 skpd. fiskjar á b.v. Max
Pemberton á 134 daga úthaldstíma vetrar- og
vorvertíðina 1933.
Allir vita, að því fleyi er vel borgið, sem
Pétur Maack stýrir.
Pétur kvæntist Hallfríði Hallgrímsdóttur,
hinni ágætustu konu. Þau eiga fjóra efnilega
syni og eina dóttur. Elzti sonur þeirra, Pétur
Maack yngri, er nú stýrimaður með föður sín-
um.
I nafni hinna mörgu vina Péturs Maack skip-
stjóra og allra þeirra, sem notið hafa góðs af
starfi hans, sendi ég honum beztu heillaóskir í
tilefni af fimmtugsafmælinu og óska honum
langra lífdaga.
Megi honum farnast jafn vel hér eftir, sem
hingað til.
Sveinn Benediktsson.
V í K I N G U H
42