Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Blaðsíða 48
og búa það undir rekstur sjómannaheimilis.
Allt þetta kostaði mikið fé. Sjómannaheimil-
ið stendur við Suðurgötu 14, og eru þar skil-
yrði fyrir hendi til viðbótarbyggingar.
Þann 23. júlí 1939 var Sjómanna- og gesta-
heimili Siglufjarðar opnað í fyrsta sinn, með
fjölmennri samkomu. Fóru þar fram ræðuhöld
og söngur. Síðan hefir það starfað á hverju
sumri, 2—3 mánuði ár hvert.
Tilgangur.
Tilgangurinn með stofnun Sjómannaheimilis-
ins er fyrst og fremst sá, að sjómenn og verka-
fólk, sem hér dvelur yfir síldveiðitímann, geti
átt þar athvarf í frístundum sínum, og komið
þangað sér til gagns og ánægju og notið þar
aðstoðar og leiðbeininga, sem það kann að
þurfa. Rekstri heimilisins hefir verið hagað í
samræmi við þennan tilgang.
Reynslan sýnir að Sjómannaheimilið hefir
bætt úr brýnni þörf. Aðsókn verið mjög góð,
þegar skipin eru í höfn, og alltaf talsverð.
Undanfarin sumur hafa 3—4000 gestir, úr flest-
um sýslum landsins ritað nöfn sín í gestabók
árlega. Auk þess koma á heimilið fjöldi gesta,
sem hvergi skrá nöfn sín.
Umgengni gestanna og öll framkoma hefir
verið hin prýðilegasta. Yirðast þeir vera mjög
ánægðir með heimilið og starfsemi þess.
Húsakynni.
Húsakynni heimilisins eru fremur góð. Stór
samkomusalur, 12X9 m., sem jafnframt er
notaður sem veitingasalur, . er í norðurenda
hússins, og annar minni salur inn af aðalsaln-
um og er þar síminn. Tvö hljóðfæri, píanó og
orgel, eru í salnum til afnota fyrir gestina.
Lítið eldhús með rafmagnseldavél er áfast við
aðalsalinn. í suðurenda hússins er stórt leik-
48
Sjómenn að skrifa bréf.
svið. Nokkur hluti þess er notaður fyrir föt,
sem geymd eru fyrir sjómenn. Annað er það
ekki notað, nema þegar samkomur eru haldnar.
Niðri í suðurenda hússins er stór stofa 7x3,8
m., sem notuð er fyrir skriftar- og lesstofu.
Þar er bókasafn heimilisins um 500 bindi, og
liggja þar frammi eða í veitingasalnum flest
blöð og tímarit, sem út eru gefin hér á landi
til afnota fyrir gestina. Þá er við hliðina á
lesstofunni lítið herbergi, sem ætlað er til einka-
samtala fyrir þá, sem þurfa að njóta sérstaks
næðis.
Hreinlætisherbergi með handlaug og salerni
er í norðurenda hússins. Húsakynnin eru vist-
leg og vel um gengin.
Þá hefir á þriðja starfsári heimilisins verið
bætt nokkuð við húsakynni þess. Hliðarher-
bergi við aðalveitingasal hefir verið stækkað,
og húsið hækkað, þannig að uppi, við vestur-
hlið, hefir fengizt rúmgóður salur, hentugur
til veitinga eða sem lesstofa eftir því sem með
þarf. Auk þess fór fram gagngerð viðgerð á
húsinu yfirleitt, svo að það er nú allt miklu
vistlegra en áður.
Blöð og liadkur.
Útgefendur hafa sýnt Sjómannaheimilinu þá
velvild að senda því blöð sín og tímarit ókeypis.
Geta gestirnir því fylgzt með almennum frétt-
um, og valið úr hvaða blöð og tímarit þeir vilja
lesa. Sjómenn og aðkomufólk úr öðrum lands-
fjórðungum getur þannig fylgzt með því, sem
gerist heima fyrir.
Sumarið 1940 var hafin fjársöfnun meðal
sjómanna og útgerðamanna til að koma upp
bókasafni. Þetta fékk svo góðar undirtektir, að
nú hefir Sjómannaheimilið allgott fjölbreytt
bókasafn um 500 bindi. Bækurnar hafa verið
valdar þannig, að þær gætu orðið bæði til fróð-
VÍKINGUR