Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Blaðsíða 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Blaðsíða 22
Esja hefir verið afgreidd. Færi vel að þeim tækist að búa þannig í hag- inn fyrir sig, að sjósókn gæti orðið nokkurn- veginn örugg í hinum fagra firði þeirra, þó illa viðraði. Fjarðarbúar eru sjálfir tilbúnir að fórna því til sem þeir geta, og þeim verður margt til liðs, sem ákveðnir eru í að hjálpa sér sjálfir. Henry Hálfdansson. SJÓÚRIÐ Fyrsta sjóúr — chronometer —, sem sögur fara af, var smíðað af enska timburmanninum John Harrison og reynt um borð í enska her- skipinu „Merlin“ árið 1765. Sjóúr þetta var árangur margra og langra tilrauna, sem gerðar voru til þess að búa til nákvæma stundaklukku, er gæti þolað hnjaskið af hreyfingum skipa, án þess að breyta sér verulega. Sjóúr Harrisons má telja einn af merkustu viðburðum á sviði siglinganna, — enda vann það 20.000 stpd. verðlaun, sem enska ríkið hafði veitt í því skyni —, því að fyrir þann tíma gátu skip í sjó ekki ákveðið lengdarsig sitt eftir gangi himintungla, vegna vöntunar á nákvæmri tímaákvörðun. Hin nýju sjóúr þóttu því hinar mestu ger- semar og voru gerðar ýmsar ráðstafanir til þess að tryggja sem bezt gang þeirra og alla gæzlu, — og eimir ennþá eftir af ýmsum ráð- stöfunum. Til þess að úrið ekki stöðvaðist, varð að draga það upp reglulega, og var það gert um hádegi hvern dag, en til þess að bað ekki skyldi glevmast var t. d. ákveðið að ekki mætti úthluta hádegisverði til skinshafnarinnar fyrr en skipstjórinn hafði hátíðlega látið tilkynna kokknum að sjóúrið hefði verið dregið upp! Af mjög mannlegum ástæðum þótti þetta svo snot- ur og gagnleg ráðstöfun, að hún er enn við lýði um borð í herskipum sumra þjóða enn þann dag í dag. P. S. Kolbeirm Sigurðsson skipstjóri fimmtugur Kolbeinn Sigurðsson skipstjóri varð 50 ára í september síðastl. Allir þeir, sem Kolbein þekkja, óska honum heilla og hamingju á þess- um tímamótum æfi hans. Eins og það er á allra vitorði, í sjómannastétt landsins, og þá sérstak- lega á fiskiflotanum, að hann er fiskimaður með ágætum og heppinn stjórnari, þá er það og almannarómur, að hann er með eindæmum vel liðinn og virtur af þeim mörgu, er með hon- um hafa siglt og starfað, lengur eða skemur, frá því er hann gerðist yfirmaður á fiskiskip- um. Mun hann og njóta mikils trausts útgerðar- félags þess, er hann starfar fyrir. Kolbeinn hefir verið yfirmaður frá því árið 1920 — og af þeim tíma skipstjóri 19 ár — og nú síðastliðin 14 ár á Þórólfi. Eru margir farn- ir að gefa sig eftir svo langt sjóvolk, við erfitt starf sem togaraveiðar eru, þegar þær eru stundaðar af þeirri elju og ósérhlífni, sem Is- lendingar gera almennt, en Kolbeinn lætur hvergi á sjá, sama rósemin og festan, sama hreystilega útlitið. Islensk sjómannastétt á því láni að fagna að eiga marga ágæta menn í sín- um röðum. Þar er Kolbeinn meðal hinna fremstu. í tilefni þessara tímamóta í lífi Kol- beins óskar Sjómannablaðið Víkingur honum heilbrigðis og sigurs í hverri raun í framtíð- inni. Á. 22 VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.