Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1942, Blaðsíða 39
Annað nýjasta orustuskip Breta aí King Georgs gerð.
hafa þeir ekki tækifæri til þess að fylgast með
ölduróti stjórnmálanna, eða ólögum, sem á
stéttarhagsmunum þeirra kunna að dynja á
ýmsum tímum, fyr en oft þá um seinan, er
nökkvanum er skolað í naust.
Við verðum að horfast í augu við þá stað-
reynd, að mörg af áhuga- og velferðarmálum
stéttarinnar eru hundsuð og stundum hvergi til
nema á pappírnum.
Þetta skapast mikið af því, að þegar í land er
komið erum við ekki nógu einarðir við okkar
málstað, og svo hitt, að stéttarfélgin eru ekki
þau, sem þau ættu að vera, einmitt vegna þessa.
Við Höfum skapað okkur sameiginlegan
vettvang, þar sem F.F.S.I. er, og það hefir
þegar sýnt, að til þess var réttilega stofnað og
það hefir þegar unnið margvísleg nytjastörf
fyrir stéttina. En til þess að F.F.S.I. geti unnið
það starf, sem því er ætlað, verða hin ýmsu
félög, er það mynda að vera félagslega sterk.
Skipstjórafélagið Aldan er elzta félagið innan
sambandsins og eitt elsta stéttarfélag á landinu,
og hefir því sína virðulegu sögu að baki sér. —
En nú í seinni tíð hefir Aldan ekki fylgst með
breyttum aðstæðum og kröfum tímans og hefir
því dregist aftur úr.
Annars hefði Skipstjóra- og stýrimannafélag
Reykjavíkur ekki verið stofnað, en það telur nú
yfir 200 meðlimi, sem flestir eru starfandi
skipstjórar eða stýrimenn. Þar sem Aldan
skipar sitt aldursforsæti stéttarfélaganna,
væri ógeðfelt að hugsjónir þeirra framsýnu
manna, er að stofnun hennar stóðu, mættu
ekki rætast. — Það verður einungis gert með
sameiningu félaganna. Umleitanir um þetta
atriði standa nú yfir og vonandi leysist það á
sameiginlegan hátt.
Við verðum að viðurkenna, að ef við rönkum
ekki við okkur nú þegar, „fljótum við sofandi
VÍKINGUR
að feigðarósi”. Það hefir hingað til viljað verða
ofan á, að menn skilja ekki þörfina fyrir það,
að eiga sameiginlegan traustan vettvang, fyr
en þörfin kemur að þeim sjálfum.
Við viljum búa okkur tryggilega út í sjóferð,
og því ættum við þá ekki einnig, að láta okkur
skiljast, að við höfum ástæðu til að vera betur
undir það óveður búnir, sem kann að skella
á okkur í landi. Hver einasti félagi er hlekkur í
þeirri keðju, sem liggja þarf fyrir, er mæðir á
móti, og má því hvergi áhlekkjast.
Það er fjöldi málefna varðandi hagsmuni og
velferð okkar, sem okkur ber að fylgjast með
af einurð og festu, svo sem: endurnýjun skipa-
stólsins, skólamálið, öryggismálin, vitamálin,
og svo ekki síst síldveiðimálin.
Um þau mál hefir mikið verið rætt og ritað
af mér fróðari mönnum um þau mál, og skal
því ekki farið hér út í einstök atriði. — En sú
krafa, sem samþykkt var á síðasta þingi F.F.
S.Í., og allir sjómenn standa um, um íhlutun um
stjórn S.R. þannig, „að stjórnin verði skipuð
5 mönnum eins og hingað til, kosnum til 2 ára í
senn, en hinsvegar verði einn tilnefndur af
Alþýðusambandi Islands og einn af sambandi
íslenskra útvegsmanna“, verður ekki þögguð
niður.
Það er auðskilið mál, að þeir menn, sem
byggja unp slíkt verksmiðjubákn, sem S R. er
orðin, vilji hafa einhvern íhlutunarrétt um
stjórn og rekstur þess.
Það eru engir aðrir en þeir útgerðarmenn og
sjómenn, er skifta við S. R., sem standa straum
af rekstri verksmiðjanna, og er þetta því sú
sanngirniskrafa sem enginn getur staðið á móti.
Skipstjóra- og stýrimannafélag Reykjavíkur
hefir nú þegar gert markvissar breytingar á
starfsemi sinni, og með sameiningu félaganna
má ætla að frekari framför sé í vændum.
39