Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1951, Page 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1951, Page 30
„Heyrði hvað, herra skipstjóri?" spurði Sam kurteislega, án þess að snúa sér við. „Ekkert“, sagði skipstjóri, og áttaði sig. „Ekkert. Allt í lagi“. Gamli maðurinn, sem varla þorði að trúa heppni sinni, flýtti sér framí og afhenti drengn- um hinn vanþakkláta fanga. „Þótti þér þú heyra í ketti rétt áðan?“ spurði stýrimaður kæruleysislega. „Ja, okkar á milli, Dick“, sagði skipstjóri leyndardómsfullum rómi, „það gerði ég, og það var engin ímyndun. Ég heyrði eins greinilega í kettinum þeim arna, eins og meðan hann var lifandi". „Já, ég hef heyrt getið um svona nokkuð“, sagði hinn, „en taktu ekkert mark á því. En það grín, ef gamli kisi kæmi skríðandi upp úr sjónum með steininn um hálsinn“. Skipstjóri starði á hann um stund, orðlaus. „Ef þú gerir þér þesskonar hugmyndir um grín“, sagði hann loks af töluverðum hita, „er ég á annari skoðun". „Jæja, ef þú heyrir það aftur“, sagði stýri- maður hugulsamur, „ættir þú að láta mig vita. Ég hef töluverðan áhuga fyrir svona nokkru“. Skipstjóri, sem ekki heyrði neitt meir þennan dag, reyndi af öllum mætti að telja sér trú um, að hann væri ofurseldur ímyndunum, en þrátt fyrir það varð hann feginn, er hann stóð við stýrið, að vita af varðmanninum við kinnung- inn. Að sínu leyti var varðmaðurinn hinn á- nægðasti yfir óvenjulegum elskulegheitum skip- stjórans, sem tók hann tali hvað eftir annað. Nóttin hafði verið drungaleg, en nú rofaði til og hálfur máni birtist fyrir ofan dimman skýjabakka; þegar kötturinn, sem eftir mikla fyrirhöfn hafði þrengt sér upp úr hinni hötuðu kistu, kom sleikjandi lappirnar upp á þilfar. Eftir illan daun dýflissunar var unaðslegt að fá ferskt loft. „Bob!“ kallaði skipstjóri skyndilega. „Já, já, skipstjóri!" sagði varðmaðurinn hvekktum rómi. „Mjálmaðir þú?“ spurði skipstjóri. „Gerði ég hvað?“ hrópaði varðmaðurinn dol- fallinn. „Mjálma“, sagði skipstjóri hvasst, „eins og köttur ?‘ „Nei, skipstjóri“, sagði sjómaðurinn móðg- aður. „Til hvers ætti ég að gera það?“ „Ég veit ekki til hvers þú myndir gera það“, sagði skipstjóri og leit órólega í kringum sig. „Það virðist ætla að rigna meira, Bob“. „Jú, jú, skipstjóri", sagði Bob. „Meiri rigningin í sumar“, sagði skipstjóri annarshugar. „Jú, jú, skipstjóri", sagði Bob. „Seglskip framundan á bakborða". Samtalið datt niður. Skipstjóri, sem ekkert hafði á móti því að beina huganum í aðra átt, virti fyrir sér seglskipið meðan það renndi framhjá, svo hann sá ekki köttinn læðast aftur eftir og setjast rétt hjá honum. 1 meira en þrjátíu klukkustundir hafði skepnan orðið fyrir herfilegustu móðgunum af hendi allrar skips- hafnarinnar, að einum undanskildum. Þessi eini var skipstjórinn, og á því er enginn vafi, að eftirfarandi hegðun hennar var viðurkenn- ing á þeirri staðreynd. Kisi reis á fætur, labb- aði til grandalauss mannsins og nuddaði hausn- um fast og ástúðlega upp við fótinn á honum. Oft verða miklir atburðir af litlu tilefni. Skip- stjóri stökk fjóra metra og rak upp öskur, sem var tilefni mikilla heilabrota um borð á segl- skipinu, sem var nýsiglt framhjá. Þegar Bob kom þjótandi upp í brú, hallaði skipstjóri sér út yfir brúarvænginn og skalf eins og espilauf. „Nokkuð að, skipstjóri?" spurði sjómaðurinn óttasleginn og hljóp að stýrinu. Skipstjóri harkaði af sér og færði sig nær honum. „Hvort sem þú trúir því eður ei, Bob“, sagði hann loks skjálfandi röddu, „alveg eins og þú vilt, en vofa helvítis kattarins, ég meina vofa blessaða kattarins, sem ég drekkti, og ég óska innilega, að aldrei skyldi verið hafa, kom og nuddaði sér upp við fótinn á mér“. „Hvorn fótinn?“ spurði Bob, sem var afar nákvæmur með öll smáatriði. „Hvern fjandann skiptir það máli?“ spurði skipstjóri, sem hafði orðið fyrir hroðalegu taugaáfalli. „Ó, sjáðu — sjáðu þarna!“ Sjómaðurinn fylgdi vísifingri skipstjóra eft- ir, og honum varð ekki um sel, þegar hann sá köttinn með háa kryppu upp úr bakinu arka makindalega eftir þilfarinu. „Ég get ekki séð neitt“, sagði hann þrjósku- lega. „Ég geri ekki ráð fyrir því, að þú getir séð hann“, sagði skipstjóri þunglyndislega, „það er auðsjáanlega ætlað mér einum. Hvað það táknar, veit ég ekki. Ég ætla niður að leggja mig. Ég er ekki fær um að vera á vakt. Þér er sama þó þú sért einn, þangað til stýrimaður kemur upp, er það ekki?“ „Ég er ekki hræddur", sagði Bob. Herra skipsins hvarf undir þiljur, hristi syfj- aðan stýrimanninn óþyrmilega, svo hann mót- mælti slíkri meðferð kröftulega, og skýrði hon- um skjálfandi röddu frá hinum hryllilega fyrir- burði. 2GB V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.