Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1951, Blaðsíða 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1951, Blaðsíða 40
vægi milli dags og nætur. 1 þessari stjörnu- mynd var haustpunkturinn fyrir nokkrum þús- undum ára. Stjarnan Antares, auga Sporðdrek- ans (Scorpion) hefur sterkan rauðan lit og minnir mjög á plánetuna Marz. Stjörnumyndin Skotmaðurinn (Sagittarius) er sýnd á stjörnu- kortum sem „Kentaur", sköpulagið helm- ingur maður, helmingur hestur. Eftir sögn- um á hann að vera „Kentaurinn" Kiron, er fóstraði Argonanter-hetjuna Jason og kenndi mönnunum reiðlistina. Hann heldur á boga í höndunum og hefur dregið ör á streng. Á milli stjörnumyndanna Herkulesar og Skotmanns- ins, er hin stóra stjörnumynd „Ofiukus“ á grísku, er þýðir Slönguhaldari, á latínu Seiv pentarius. Stjörnumyndin táknar undralækn- inn Æskulap, sem arfsögnin segir, að hafi ver- ið svo slyngur læknir, að hann hafi getað vakið menn frá dauðum. Skilti lyfjabúðanna benda á enn í dag, staf með slöngu, tákn læknavís- indanna. Stjörnumyndin „Krónan" (Corona borialis) á milli Bootes og Hercotesar, minnir á brúðarför Thesens og Ariadnes. Kórónan á að vera brúðarkrans Ariadnes, sem guðinn Dionýsos setti á himininn til að sýna Ariadnes mátt guðdómsins. Flestar stjörnumyndanna eru ýmist í dýra- eða mannalíki, fáar eru þær stjörnumyndir, sem eru í líki hluta. Stjörnumyndin Harpan er ein þeirra. Hún er samt ekki venjulegt hljóðfæri, sem sett er á meðal stjarnanna til vegsendar og dýrðar hljómlistinni. Þetta er harpa „Orfeusar“, sem sést hér. Það er sagt, að Orefeus hafi spilað svo dásamlega, að tónar hörpu hans hafi gert villidýr merkurinnar sauðspök. Sagnir herma, að Orfeusi hafi verið breytt í svanslíki, sem einnig var settur á festinguna. Neðan undir þessari stjörnumynd er stjörnumyndin „Örn“ (Aquila), sem einnig hefur sína sögu. Það er sá örn, er flutti drenginn Ganymedes til Olym- pes, þar sem hann lifði meðal hinna ódauðlegu guða. Lýsandi rák vetrarbrautarinnar sést yfir þveran himininn. Um vetrarbrautina er helgi- sögn, sem er á þessa leið: Eitt sinn, er Hera svaf, lagði Hermes, óra- belgurinn meðal guðanna, Herculesar-barnið á brjóst Heru. Þegar hún vaknaði, varð hún ofsa- reið. Við það að hrifsa barnið af brjóstinu, spýttist nýmjólkin úr brjóstunum upp á himin- hvelfinguna. Endir. Fimmtugur: Lúther Grímsson Hinn 17. júlí síðastliðinn varð fimmtug’ur Lúther Grímsson, einn af beztu og vinsælustu forvígismönnum íslenzkra sjómannasamtaka. Lúther er Breiðfirðingur að ætt, fæddur að Langeyj- arnesi í Dalasýslu. Hann var snemma hneigður fyrir smíðar og bar fljótt á því, hve lagtækur hann var. Var hann aðeins tíu ára gamall, er hann byrjaði vél- gæzlu á litlum mótorbát, sem faðir hans átti. Er hann hafði aldur til sótti hann vélanámskeið, og var eftir það vélstjóri á mótorbátum til 1930, er hann tók að læra járnsmíði. Að járnsmíðanámi loknu tók hann hið- meira mótorvélstjórapróf Fiskifélagsins. Að því búnu gerðist hann starfsmaður hjá Olíuverzlun íslands* en gerðist síðar deildarstjóri hjá Sænsk- íslenzka verzlunarfélag- inu Árið 1949 stofnaði Lúther ásamt fleirum Olíusöl- una h. f. og hefur hann starfað við það, fyi'irtæki síðan. Það mun óhætt að segja, að Lúther hafi, meðan hann stundaði vélgæzlu, verið talin einn af allra færustu mótorvélstjórum hér á landi, enda mjög eftirsóttur til þess starfs. Fyrirtæki þau, sem hann hefur starfað við undanfarin fimmtán ár, hafa einnig notið ágætrar vél- fi'æðiþekkingar hans og annarra hæfileika. Er hann hverjum manni vinsælli í starfi og nýtur einróma trausts allra, sem hafa haft við hann einhver skipti. Hann er mikill áhugamaður um félagsmál og hefur verið framarlega í sjómannasamtökunum. Hann var aðalhvatamaður að stofnun Mótorvélstjórafélags Islands og hefur verið stoð og stytta félagsins fram á þennan dag. Er ekki ofmælt þótt fullyrt sé, að hann hafi verið með afbrigðum farsæll í störfum sínum fyrir Mótor- vélstjórafélagið, sem og öðrum störfum, enda er Lúther vel gefinn maður, gjörhuguil og mjög laginn að koma fram málum. Nýtur hann og óskoraðs trausts mótor- Framh. á bls. 223 21B VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.