Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Blaðsíða 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Blaðsíða 13
SKIPAEFTIRLIT ♦ EFTIR ÓLAF BJÖRNSSON Mig langar að koma á framfæri í Víkinghum sýnishorni af hvernig skipaeftirlit ríkisins er í framkvæmd, ef það mætti verða til þess að vekja þá, sem hlut eiga að máli. Ég ætla þá fyrst að taka hér orðrétt upp úr eftirlitsbók báts, sem ég tel óþarft að nafngreina, en-nfremur felli ég úr staðarnöfn: „14. febr. 1956. Að undanförnu hefur báturinn verið hér í drátt- arbraut, til viðgerðar á skemmdum sem urðu, er hann rak í land á YX nú nýlega. Hal'ði öldu- stokkur brotnað og kjölurinn skemmst og slit- kjölur. Var sett nýtt skjólborð á meiri hluta af bak- borðshlið, 2 nýjar skjólborðsstoðir, gjört við kjöl- inn til bráðabirgða, þannig að fellt var í skemmd- ina á kjölnum 10 cm þykkt stykki ca 4 metra langt. Árið 1950 skemmdist kjölurinn samkv. því sem fært er hér í bókina; það ár hefur nú þessi skemmd bæzt við ásamt því að kjalarhællinn var nú laskaður, var gert við það með járnskinnum báðum megin gegnumboltað. Verður nú ekki um- flúið lengur að skipta um kjöl á þessu ári. Að öðru leyti virtist báturinn góður. Sign. Næst er báturinn skoðaður 1957 án þess að nokkuð hafi frekar verið átt við'kjölinn. Nú skoða aðrir menn og skrifa í eftirlitsbókina eftirfarandi: „13. marz 1957. Fór fram aðalskoðun á mb. X, sem er samkvæmt lögum um eftirlit með skip- um og bátum. Seglin eru ónýt og þarf báturinn því að fá ný segl sem allra fyrst, einnig vantar þokulúður. Að öðru leyti fullnægir bátur, vél og búnaður þeim lögum sem krafist er um eftirlit með skipum og bátum við strendur Islands. Sign.“ Bátur þessi var nú til fiskjar þar til í maí. Þá verða eigendaskipti. Ekkert hefur komið fyrir bátinn nema hvað stb. síða rekst nokkuð harka- lega á bryggjuhorn, þegar hann kemur inn í sína nýju heimahöfn. 7. júní er báturinn kominn í slipp og skoðaður af skoðunarmanni, hann felldi þann úrskurð að skipt skyldi um kjöl tafarlaust, 3 planka í stb. síðu og að minnsta kosti 9 planka í bb. síðu, megnið af öldustokk stb. og öldustokk framan bb, hluta af dekki, taldi svo fleira geta komið í ljós, sem og varð. Stýrisútbúnaður allur ásamt stýrisfjöður gjörónýtt. Rafall óvirkur, segl ónýt nema stórsegl, enginn þokulúður, fjögur líf- belti léleg, ónóg slökkvitæki óhlaðin, enginn björg- unarbátur af neinu tagi. Vél var ekki skoðuð þar sem fyrir lá að rífa hana til þess að hægt væri að skipta um kjöl. Þegar vélin var rifin kom í ljós að brætt var úr öllum legum og sumir legu- bakkarnir stórlega tærðir, mikið los á „tengi- múffu“, engin pakkdós fannst að innan verðu á skrúfuöxli, skipting, kopling og yfirleitt allir hlutir í rammasta ólagi. Raflögn víða illa farin, t. d. ljósastæði klippt frá og endar síðan berir. Það skal tekið fram að það Sem vélin var keyrð var við hana sá maður, sem verið hafið um lang- an tíma. Ég tel ekkert vafamál að síðasta skoðun á bátn- um er á allan hátt rétt og samkvæmt „Reglum um eftirlit með skipum og öryggi þeirra“, út- gefnum 20. jan. ’53. Dómbærir menn telja vafalítið að bb. síða, sem nú fyrst er að stórum hluta dæmd ónýt, hafi orðið fyrir þessum skemmdum þegar bátinn rak upp í ársbyrjun ’56, þegar kjölur, öldustokkur og „styttur" bb skemmast, en þá finnur skoðunar- maður ekkert athugavert við hana. Það liggur í augum uppi, að hafi hinar fyrri skoðanir verið teknar bókstaflega, þá hefur sú síðasta komið þeim sem hlut eiga að máli í tals- verð vandræði, að ekki sé meira sagt. Ég vænti nú þess að „Víkingurinn" fái upplýst hvort skoð- unarmenn eru ábyrgir gerða sinna, ef ekki, hver er þá ábyrgur. Ég trúi ekki að óreyndu, að menn- ingarþjóðfélag verndi ekki þegna sína gegn öðru eins og þessu. Hér eiga svo auðvitað fleiri hlut að máli en sá sem kaupir og sá sem selur, sjó- menn ættu að geta treyst því að ríkisskoðun tryggi að bátur, vél og búnaður sé í fyllsta lagi. Lánastofnanir sem oft virðast æði formfastar og kröfuharðar um veð, ættu að geta treyst því, að ríkisskoðun tryggi að bátar, sem í mörgum til- fellum eru hátt veðsettir, séu ekki ef til á að taka orðnir verðlausir, sakir óhirðu og sóðaskapar. Síðast en ekki sízt mættu tryggingafélögin at- huga sinn gang, þótt í sumum tilfellum geti svona ráðslag sparað þeim aur í bili, þá hlýtur það fyrr en varir að koma þeim í koll. Þetta er nú mín reynsla af skylduskoðunum, nú er mér tjáð að skoðunarmenn telji sér ekki koma við þótt þeir sjái sitthvað athugavert við búnað báta og annað, nema þeir séu að framkvæma hina árlegu skoðun. Það er að segja, eftirlit milli skoð- ana er ekkert nema hreinlega sé kært, eða í stöku tilfellum óskað eftir skoðun. Að mínu viti er fyllsta nauðsyn á, að stöðugt eftirlit sé með öllum skipum og þá sérstaklega bátum og búnaði þeirra, og tryggt sé að settum reglum sé fylgt um land allt. 213

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.