Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Blaðsíða 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Blaðsíða 17
leiðir að og frá skipinu, en vindrokurnar voru orðnar svo harðar, að tæpast var stætt veður. Rauk hann svona upp á norðan mátti segja allt í einu og stóð beint út Ósinn. Ég vildi endilega reyna að komast fram í skipið, því mér var ekki rótt að vera í landi með fyrsta stýrimanninn og fyrsta vélstjóra líka. En Björn aftók að reyna það, enda Þórhallur líka og aðrir menn í landi, sem komnir voru þarna á vettvang, þar á meðal Þorleifur hreppstjóri. Hélzt þetta ofsarok alla nóttina. Ég og stýrimaðurinn héldum okkur úti við um nóttina, þó ekki væri það hættulaust, því allir mögulegir hlutir voru fljúgandi í loftinu. Talsvert frost var og hafði verið undanfarna daga og það sleit úr honum öðru hverju snjó. Sem dæmi um veðurhæðina reif frosið torfþak af gripa- húsum, einnig járn af íbúðarhúsum og fleiri skemmdir urðu. Einnig þurrkaði vindurinn 200 faðma spildu fram af svonefndri Lónsfjöru um fjöruna, sem annars aldrei þornaði. Aldrei sáum við fram í Súluna um nóttina fyrir særokinu, þó var vegalengdin, þar sem við vorum næst henni í landi, ekki yfir 200 faðma. Hér um bil fullt tungl óð stundum í skýjum um nóttina. Það var fyrst um 6-leytið um morguninn, sem við sáum Súluna á milli rokhviðanna. Lá hún þá dálítið á hliðinni í strandi upp á sandeyri, svo sem 300 faðma utar í Ósnum en þar sem hún lá upphaf- lega. Dreif hún þá þarna upp um 10-leytið um kvöldið, án þess að gefa henni nokkuð til muna út í viðbót við þessa rúma 30 faðma sem hún lá við, þegar ég fór í land. Það er álit mitt, að ef ég eða jafnvel stýrimaðurinn hefðum verið um borð, þá hefðum við náttúrlega gefið skipinu út alla þá keðju sem það hafði og látið stjórn- borðsankerið falla líka. Anker skipsins voru þung og haldgóð, 5 og 6 hundruð pund með þungri og sterkri keðju 4 og 5 lengdir, og hefði auk þess verið keyrð vélin fram á. keðjuna, þá hefði skipið aldrei rekið í land, þó veðurofsinn og straumur- inn væri afskaplegur. Veðurhæðin yfir 12 vind- stig, líklega náð 14. Það var engan veginn stætt veður í rokhrynunum, því misvindi var afar mikið. Klukkan 11 um morguninn lögðum við á stað á mótorbátnum fram í Súluna þar sem hún lá á sandeyrinni, var hann þá dálítið farinn að lægja harðasta veðrið. Bárum við talsvert af grjóti á mótorbtáinn til kjölfestu áður en við lögðum af stað. Björn Sigmundsson hafnsögumaður fór með okkur. Á leiðinni fram fengum við eina rok- hrinu svo harða að hún kastaði bátnum inn á lúgu, svo ekki var hann alveg lygndur. Ekki hafði þessum fjórum mönnum af skips- höfninni, sem fram í skipinu voru um nóttína, orðið svefnsamt. Sögðu þeir okkur að fyrst hefði Súlan strandað á annari sandeyri, og lagðist á hana flöt fyrir vindi og straum. En um næstu straumskipti tók straumurinn Súluna móti þess- um vindi og kastaði henni á sandeyrina sem hún lá nú. Ekki lögðum við í land aftur fyrr en klukkan 2 síðdegis. Var þá farið mikið að draga úr veður- ofsanum og loftvogin að stíga og byrjaði að birta til í lofti. Þegar við komum í land var Þorleifur í Hól- um ekki farinn heim. Var hann æðsta yfirvald á staðnum. Var strax sendur sendiboði, mig minn- ir til Eskifjarðar, til að tilkynna vátryggingar- félaginu strand skipsins og ásigkomulag þess, og þar á meðal að við álitum að hægt væri að ná skipinu á flot strax og veðrinu lægði, en fyrst þyrfti að létta skipið, eðá taka farminn úr því. Ekki man ég hvað var löng bið eftir sendimann- inum til Eskif j'arðar. Ég held það hafi verið mik- ið á aðra dagleið. Þorleifur hreppstjóri hélt sjópróf um strandið og atvik þess seinna um daginn. Tók ég í samráði við hann þá ákvörðun, að byrja strax að létta skipið og fara með bæði anker skipsins og keðju- lengdirnar út og fram af því. Lánaði Þórhallur uppskipunarbáta og mótorbátinn til þessa verks. Höfðum við fjölda manns úr landi í vinnu við þetta, ásamt skipshöfninni. Skipuðum við upp þennan dag allan langt fram á kvöld og til há- degis næsta dag. Þá. var háflæði. Reyndum við þá að hífa skipið út á keðjunum með hjálp vélar- innar. Þetta tókst. Skipið var komið á flot um klukkan 1 síðdegis. Fór það sem eftir var dags- ins í að færa skipið og leggja því, eftir því sem Björn hafnsögumaður sagði til. Ekki var maðurinn sem við sendum til Eski- fjarðar til að tilkynna um strandið, kominn aftur. Á þriðja degi um morguninn, frá því að við byrjuðum að létta skipið, lá björgunarskipið Geir á ytri höfninni í Hornafjarðarós. Hafði sjóvá- tryggingarfélagið, sem Súlan var tryggð hjá feng- ið Geir, sem lá í Reykjavíkurhöfn, til að fara austur, en þegar Geir kom á staðinn höfðum við náð henni á flot. Samdist þá þannig um við sjó- vátryggingarfélagið, að þeir á Geir skildu skoða botn Súlunnar og draga hana svo með farmin- um til Eskifjarðar. (Geir hafði um 250 tunnur af honum á þilfari). Og svo skildi hann draga hana þaðan til Reykjavíkur, þar sem Súlan átti að fara upp í dráttarbraut til skoðunar og við- gerðar. Vörunum var aftur skipað fram í Súl- una og Geir, tók það rúman sólarhring. Lögðum við seint um kvöld af stað aftan í Geir frá Horna- firði til Eskifjarðar. Veður var vont. Norðaustan hvass- og dimmviðri. Maður frá Geir var um borð í Súlunni með morse-ljóskerfi og signalflögg. ör- lítill leki var á Súlunni, eins og áður er sagt. Höfðu þeir á Geir sett um borð í Súluna volduga viðbótar pumpu. Ekkert gerðist markvert á leiðinni frá Horna- firði til Eskifjarðar, nema það, að ég varð var við, að við mundum vera fullgrunnt við Brök- 217

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.