Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Blaðsíða 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Blaðsíða 45
væri oheppilegi á Vesturlöndum, því að skónum yrði stolið á augabragði. Gullfalleg Geisha-stúlka vísar okkur til sætis á ábreiðu á gólfinu við borð, sem er um það bil tvö fet á hæð. Við báðum um mat og drykk, og okkur voru færðar skálar með hrísgrjónum og karry og hvítvín til drykkjar og matprjóna til að borða með. En blessuð Geisha- stúlkan reyndi að kenna okkur handtökin við prjónana. Á meðan á máltíðinni stóð, skemmti hún okkur með leik á japanskt strengjahljóðfæri. Frá veitingahúsinu var haldið beint til eins af húsum gleðinnar og var okkur vel tekið þar. Næsta morgun héldum við til skips, og næstu dagar voru allt of fljótir að líða með sínum smá- ævintýrum og prangleiðangrum. Síðasta kvöldið í höfn vorum við staddir á „Captain China“, knæpu, sem er mikið sótt af hernámsliðinu. Við vorum orðnir mjög félitlir, en þá datt Þjóðverja, sem var einn okkar, það snjallræði í hug að sýna útúr fullum amerískum liðsforingja demantshring, sem hann átti og sann- aði ágæti hringsins á þann hátt að skera í ölglas með steininum. Amexúkaninn vildi óður kaupa hringinn og borgaði 40 dollara fyrir hann. Urn leið og Þjóðverjinn hafði fengið dollarana í hend- ur, hypjuðum við okkur út af knæpunni. Það er af hringnum að segja, að hann var úr látúni, en steinninn úr gleri. Gripui’imx var keypt- ur í Súez fyrir tvo pakka af sígarettum. Dollai’ax’nir komu sér vel síðasta kvöldið, því að skipvei’jar voi'u allir orðixir félausir, en bjór- þox’stinn tekur ekki tillit til þess. Svo rann upp fai’ardagurinn og allir kvöddum við land sólaruppkomunnar með sárunx söknuði, en það var huggun harmi gegn, að íxæstu ferð var einnig heitið þangað. Stutt á Cl CJ ct - ej^ni Njáll skellti þungri járnhurðinni og smellti lok- unum fyrir. Sjó braut á járnþilinu undir bátapallin- um. Þeir heyrðu dynkinn — svo örlaði inn með gúmmí- þéttinum á hurðinni. Það logaði ljós undir pallinum ög freyðandinn á kýrauganu var ljósgrænn að sjá í gegn um. „Hvað er að frétta?" spurði Samúel strax og Njáll kom í eldhúsið. „Ekki í stakk inn í eldhúsið", sagði matsveinninn. „Hver hugsar um eitt andskotans eldhús, þegar svona stendur á?“ hreytti Njáll út úr sér. „Ég hugsa um eldhús“, sagði kokkurinn. „Við kom- umst ekki af án eldhúss, hvemig sem á stendur". „Hvað er að frétta?“ spurði Samúel aftur. „Við finnum hann aldrei í þessu þreifandi hel- víti“, sagði Njáll. „Ég held að karlinn sé að gefast upp á að leita“. „Úr stakknum", skipaði kokkurinn. „Haltu kjafti!“ sagði Njáll. „Hann á konu og þrjú böm“, sagði Samúel, „eða átti“. „Við eigum allir konu og börn“, sagði Njáll. „Hvaða mismun gerir það?“ Hann hellti köldu kaffi í könnu og svolgraði það í sig. „Það er leiðinlegra að fara til svona frá mikilli ómegð“, sagði Samúel. „Þeir fara flestir frá ómegð, sem fara á annað borð“. sagði Njáll. „Úr stakknum!" skipaði kokkurinn og mundaði kjötöxina. „Þú ert fífl“, sagði Njáll, en dró þó blautan stakk- inn yfir höfuð sér. „Hvað verður nú um konuna og börnin?" sagði Samúel. „Það blessast einhvernveginn". sagði Njáll og fleygði stakknum fram í ganginn. „Ég hef aldrei orðið var við annað en það blessist einhvern veginn“. „Hann var þó fyrirvinnan", sagði Samuel. „Maður er þó altént fyrirvinnan". „Það blessast einhvern veginn“, sagði Njáll aftur. „Víst ertu fyrirvinnan“. sagði kokkurinn hughreyst- andi. „Hann átti þó þrjú böm“, sagði Samúel. „Börn þrífast", sagði kokkurinn. „Það er eðlis- lögmál. Börn þrífast — engin hætta á öðru“. „Nákvæmlega svona fór hann Sigurður heitinn" sagði Samúel. „Sjóðvitlaust veður, hnútur reið á skipinu — hann var horfinn og sást ekki meir. Það var í skammdeginu nálægt jólunum“. „Ef við förum ekki svona, þá förum við hins veg- ar“, sagði kokkurinn. „Sjómaður á að drukkna. For- feðrum okkar fannst sér ekki annað sæma en blæða út á vígvellinum. Hafið er okkar vígstöðvar. En menn eru meyrari nú á dögurn". „Skepna ertu að tala svona“. sagði Samúel. „Hann átti þó konu og þrjú börn“. „Börn þrífast", endurtók kokkurinn. „Konur í flest- um tilfellum líka. Þetta jafnar sig fljótlega". „Hann var aldrei sjómaður", sagði Njáll. „Það var meinið. Hann las kvæði. Menn sem lesa kvæði eiga ekkert erindi til sjós“. „Hvemig þá?“ spurði Samúel. „Ég get ekki útskýrt það“, sagði Njáll. „En þeir sem lesa kvæði eru meyrari en við hinir“. „Horfðu í lófann á þér“, sagði kokkurinn. „í hvað?“ spurði Samúel skilningsljór. „í lófann á þér“, endurtók kokkurinn, greip um fingurgóma Samúels og sneri lófa hans upp. „Þetta ertu, svo þú vitir það. Þú ert tvær krumlur. Tíu fing- ur — níu, vegna þess að þig vantar einn“. „Er hann vitlaus", sagði Samúel og sneri sér að Njáli. Njáll yppti öxlum. „Hver væri afkoma þín án þeirra?“ sagði kokk- urinn. „Það eru krumlurnar, sem máli skipta fyrir menn af okkar tagi. Allt annað er hégómi. Jafnvel kvæðin". „Hann er gjeggaður“, sagði Samúel. „Hvernig vildi þetta til?“ spurði kokkurinn Njál. „Engan veginn", sagði Njáll, „það kom brot. Ef menn standa ekki klárir af brotum, þá em þeir ekki sjómenn. Þeir eru til sjós, en samt ekki sjómenn. Þannig er það með marga“. „Þið talið um þetta eins og lélegt fiskirí“, sagði 245

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.