Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Blaðsíða 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Blaðsíða 28
skipaskoðunarinnar, allt rafsoð- ið ,úr stáli nema stýríshús og siglutréð, ofan á því, hvortveggja úr aluminium, svo áttavitarnir truflist sem minnst. Þilfar öll eru úr stáli, klædd trjávið, nema vængir bátaþilfars úr við ein- göngu. Skipsbátunum er skipt í 7 vatnsþétt hólf og botn tvöfald- ur. Tvöföld bönd aftur að vélar- rúmi, vélin 665 ha. Nohab-Polar dieselvél og er venjulegur hraði skipsins rúmar 12 mílur. Hjálp- arvélar eru þrjár.- Stefni skips- ins styrkt til siglingar í ís. Af bátum og björgunartækjum hef- ur skipið auk venjulegs björg- unarbáts einn vélbát, svo 10- manna gúm-björgunarbáta og opinn léttbát úr gúmí. Tvær fær- anlegar björgunardælur ásamt miklum siöngum, svo dælurnar má nota bæði til þess að dæla úr skipinu vatni og sem slökkvi- dælur elds á landi. í skipinu eru dráttartaugar, tveir ljóskastar- ar, logsuðutæki sjúkrabörur, björgunarstóll, línubyssa o. fl. til björgunar, sem Slysavarnar- félagið hefur útvegað. Skipið er vopnað einni 47 mm. fallbyssu auk riffla, skammbyssna, dufla o. fl. til venjulegrar landhelgis- gæzlu. Vistarverur fyrir 14 manna áhöfn og 4 farþega eru allar undir þiljum, mjög rúm- góðar og er farþegaklefinn og sjúkraklefi, þegar á þarf að halda. Matsalir eru tveir og er matsalurinn fyrir yfirmenn skreyttur sýsluskjölum eða sýslu- merkjum sýslumanna á Norður- landi í réttum litum og fer áber- andi vel á því og á landhelgis- stjóri þakkir skilið fyrir, en hann mun ráðið hafa. Einmitt þegar við höfðum í þessum snotra litla sal lokið síð- degis kaffidrykkju, rann „Al- bert“ fyrir aðaltá og Stráka inn á Siglufjörð, sem var fyrsti áfangastaðurinn, því fyrstir voru Siglfirðingar að setja fram hugmyndina um „Björgunar- skútu Norðurlands" og leggja fram fé til hennar, en Ólafsfirð- ingar næstir með digrari sjóði. Á leið okkar inn Siglufjörð mættu okkur mörg íslenzk síld- veiðiskip, sem voru að halda út á reknetjaveiðar. Því miður kom það átakanlega í ljós hér sem oft áður, að seint lærist íslend- ingum að virða fána sinn og sýna þá menningu í meðferð hans, sem allar þjóðir eiga að kunna, ekki sízt hvítir menn, því mörg skip- anna fóru fram hjá okkur án þess að draga flagg við hún og eigum við íslendingar þó eitt- hvert fegursta flaggið í heimi og táknrænasta fyrir okkur, kross- fána, eins og frændþjóðir okkar á Norðurlöndum, með liti elds og ísa í krossinum á feldi blárra fjalla. Það er undir þessum fána sem íslenzku skipin sigldu á stríðsárunum og íslenzkir sjó- menn fórnuðu lífi til þess að flytja sveltandi þjóðum mat- björg. Líklega er ekki í neinum íslenzkum skóla börnum eða unglingum kennt að elska og virða fána sinn og hvað er gert í sjómannaskólanum? Fánum skreyttur lagðist „Al- bert“ að bryggju á Siglufirði kl. 5 síðdegis og lék lúðraflokkur Siglufjarðar lagið „ísland ögr- um skorið“ á meðan landfestar voni bundnar og var það furðu- legt hversu vel var leikið á þessi fáu og fornu horn undir stjórn Björgvins Jónssonar, en ekki voru þau ætíð samhljóða. Því- næst söng kirkjukór Siglufjarð- ar fallegan sálm, en honum stjórnar Páll Erlendsson. Þá steig á skipsfjöl prófastur Eyja- fjarðar . prófastsumdæmis séra Sigurður Stefánsson á Möðru- völlum í Hörgárdal og vígði skipið til starfs að kristnum sið með snjallri ræðu, en stef hennar voru orðin „Guð í hjarta, Guð í starfi gefur fararheill". Frú Eiríksína Ásgrímsdóttir, sem er hvorttveggja, formaður kvenna- deildar Slysavarnafélags Siglu- fjarðar og í Björgunarskútmúði Norðurlands, bauð „Albert" vel- kominn og árnaði hinu nýja björgunar- og varðskipi heill og hamingju og bað menn samfagna því, að nú hefði rúmlega tuttugu ára draumur rætzt á hinn feg- ursta hátt, að fengin var glæsi- leg „Björgunarskúta Norður- Iands“, sem um leið gegndi því starfi, að verja landhelgi okkar. Undir þessi orð eða svipuð tók og hafnsögumaður Þórarinn Dúason, sem fyrir hönd karla- deildarinnar bauð skipið velkom- ið. — Á hafnarbryggjunni var fjöldi manns, sem tók undir ám- aðarkveðjurnar til skipsins. Þótti mér vænst um að sjá hvað börn- in voru mörg og unglingarnir, sem fögnuðu „Albert“. Landhelg- isstjóri Pétur Sigurðsson ávarp- aði mannfjöldann með snjallri ræðu og tók m. a. fram, að eng- inn hefði fagnað þeirri stund meira en hann sjálfur, að fá að sigla þessu fallega björgunar- og varðskipi, smíðað úr stáli af ís- lenzkum mönnum, útbúið hinum fullkomnustu tækjum, til Siglu- fjarðar og annara hafna á Norð- urlandi, því slysavarnardeildir Norðurlands hefðu vissulega lagt kjölinn að „Albert“ og ættu hann raunverulega. Um kvöldið höfðu slysavarna- deildir Siglufjarðar boð inni á Hótel Hvanneyri fyrir fjölda gesta. Var það að öllu leyti hið höfðinglegasta, engu óglæsilegra en veizlurnar á Hótel Borg og hinar mörgu og skemmtilegu ræður engu lakari en ræðurnar þar, enda stjórnaði Andrés kaup- maður Hafliðason því af mik- illi prýði, en hann er fulltrúi Siglfirðinga í Björgunarskútu- ráðinu, gjaldkeri ráðsins, sem getur lagt fram, hvenær sem er, áskilið tillag deildanna og vel það. Fékk ég þarna kærkomið tæki- færi til þess að þakka Siglfirð- ingum fyrir vináttu þeirra og skilning ágætan við mig sumrin 1914—1919, þegar ég var lög- reglustjóri þeirra. Þá var líf í tuskunum, fyrri heimsstyrjöld- in stóð yfir, „blessað stríðið" eins og var í flimtingum haft, þá óð síldin um allan sjó, logn var og sólskin, skipin íslenzku og út- lendu hlóðu sig, ensku herskipin brutu alþjóðareglur þegar þau komu til eftirlits á Siglufjarðar- höfn, en litli „Islands Falk“ rak þau út, þá var drukkið á kvöldin og dansað, og hvernig síldarjent-

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.