Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Blaðsíða 43
l/LÓVir
UM METRAKERFIÐ
Hér birtast örfáar vísur eftir
Einar- Bogason frá Hringsdal.
Vísur þessar hefur Einar gert
að gamni sínu. Hann er þeirrar
trúar, að til að muna >™isa
hluti, svo sem landafræðisnöfn,
stærðfræði formúlur, einingar
o. fl., þá sé ekkert betra til, en
að færa slíkt í bundið mál.
Ég legg engan dóm á þessa
skoðun hans. Víst er að Ijóð,
sem maður lærir haldast betur í
minni en laust mál. Ég hef átt
þess kost að sjá flestar vísur
Einars. Finnst mér mest koma
til landafræðivísna hans. Þær
væru þess vel virði, að út kæmu
á prent.
Einar hefur gefið út stærð-
fræðileg formúluljóð. Þar eru
almennar stærðfræðireglur sett-
ar í bundið mál. Hvaða álit, sem
menn hafa á þeim, er það víst,
að margir hafa haft þeirra not.
Gaman er að heyra menn þruma
úr sér vísu, er þeir þurfa að
grafa upp einhverja formúlu,
eins og t. d. kúluformúlunu, tri-
gonometriskar formúlur eða
regluna um tvíliðaða stærð í
öðru veldi, svo eitthvað sé nefnt.
Fyrir ljóðelska menn verður
þetta miklu auðveldara, heldur
en að þurfa að grípa til út-
leiðsluaðferðanna, sem oftast
eru svo ekki á færi nema beztu
stærðfræðinga að nota.
Einar er nú 76 ára gamall.
Hann bjó- fram á efri ár í
Hringsdal við Arnarfjörð.
stundaði hann þar sjó, jafn-
framt búi sínu, eins og títt er
um vestfirzka bændur. Hann
hefur ávallt haft gaman af
fræðistörfum og hefur forkunn-
arfagra rithönd.
Vísur hans, sem ég álit um
margt athyglisverðar, bera þess
glöggt merki, að bóndi við erfið-
isvinnu hefur komizt langt í að
afla sér þelckingar með sjálfs-
námi og grúski. Örn Steinsson.
1. Myría tíu þúsund þýðir.
Þúsund kíló — mundu nú.
Hektó hundrað — heyri lýðir.
Hugleið deka er tíu þú.
2. Einn tíunda tel ég desí,
tel hundraðasta sentí þú.
Einn þúsundasti þýðir millí.
Þetta lærast vel skal nú.
Frumeiningar metrakerfisins.
3. Frumeiningar metramálsins
mæli ég fram.
Meter, líter málin heita;
mundu líka gram
Lengdarmál.
2 danskar mílur 15 lcíló-
metrar.
1. Mílur tvær, það mundu vel,
munu 15 það ég tel
kílómetrar — kunna átt.
Kalla víst það þarflegt mátt.
10 falhnar = 19 metrar.
2. Tiu faðmar teljast 19 vera
metrarnir — það mundu vel.
Ein alin = 63 sentímetrar.
3. Ef þú vilt fá eina’ alin,
í hennar stað — það mundu’
ávalt,
63 — þér segi ég vin,
sentímetra’ um þiðja skalt.
1 sjómila 1852 metrar.
4. Ein sjómíla er — athugið —
átján hundruð fimmtíu og
tvær
Mikla nauðsyn ég það tel.
5 metrar 8 álnir.
5. Eru 5 metrar — 'allvel nem,
8 álnir sama sem.
5 þumlungar — það vel heyr,
13 sentímetrar eru þeir.
3,19 fet 1 metri.
Þrír komma nítján fetin metra
eru í.
13 sent’metrar 5 þumlungar,
— Þér ber gæta’ að því.
Þyngdarmál.
1 kíló 2 pund og 1 pund
500 grömm.
1. Kíló tvípund kalla ber.
Kíló 2 pund víst því er.
Fimmhundruð grömm
veigaver
víst er pundið, ég þér tér.
Tæp 16 grömm = 1 lóð og
5 grömm = 1 kvint.
2. Sextán grömm tæp segjum
lóð eitt geri.
Víst þá 5 grömm veit ég því,
vera kvinti einu í.
1 tonn = 25 skáppund.
3. Tuttugu og fimm í tonnum
fjórum eru
skippundin — það skaltu sjá.
Skjótt þú munt það
reiknað fá.
1 tonn = 63A skippund.
4. Skippund að tonni ef skaltu
gera,
skil ég þér að vita’ er þarft.
Að skippund í tonni víst
mun vera.
vita skaltu er sex og kvart.
1 tonn = 1000 kíló — 2000 pund.
5. Tvö þúsund pund talið er
að tonn eitt geri.
Þúsund kíló það og veri.
<$-----------------------------<s>
Myndarlegur smoklcfiskur.
243