Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Blaðsíða 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Blaðsíða 39
áttu í íslenzku. í bókinni „Islands völkerrechtliche Stellung“, sem Herhert Kraus prófessor í þjóða- rétti gaf út í „Intnationalrecht- liche Abhandlungen", Berlin- Griinewald 1934, segir Lund- borg: „Grænland var hluti ís- lenzka þjó'öfélagsins. Fyrstu landnámsmenn þess komu frá íslandi í einum, hóp undir sam- eiginlegm fonistu. Þeir fluttu hiö íslenzka réttarsamfélag meö sér til Grænlands, íslenzk lög gengu þar, og sáttmálinn frá 1263, sem ég síðar mun minnast á, kvað á um sambandið milli Noregskonungs og íslenzka þjóð- félagsins, þar með einnig aö sjálfsögðu hvað Grænland snerti“1 Yfirráðarétti íslands yfir Grænlandi hefur dr. Lundborg haldið fram í fjölda erlendra blaða og tímarita m. a. í Ameri- can Jou'rnal of International Law og Archiv fur Rechts und Wirt- schaftsphilosophie. Enginn möguleiki er hér á að rekja öll þau ágætu skrif hans. Sem sýnis- horn af þeim tek ég aðeins upp smáglefsur af hans eigin sjálf- stæðu skoðunum í ritdómi hans um fyrstu 768 blaðsíðurnar af Réttarst. Grænlands er birtist í sænsku og ísl. blaði: „Eftir að hafa . . . kynnt mér aðalheimildarritin, sem hann [þ. e. J. D.] vitnar í, álít ég það full- sannað mál, að Grænland hafi alla tíð, allt frá því að það hyggð- ist, verið íslenzk nýlenda. Það stóð undir íslands lögum, og kom með móðurlandi sínu undir Nor- egskonung við gerð Gamla sátt- mála. Skoðunum mínum um 1 „Grönland maeht einen Teil des islandichen Staats aus Seine ersten Besiedler kamen aus Island, in einer Gruppe unter gemeinsamer Leitung. Sie brachten die islándische Rechts- gemeinschaft nach Grönland mit; is- lándische Gesetze galten dort, und der Vertrag von 1263, auf den ich spáter noch zuruckkomme, regelte das Ver- háltnis zwischen dem König von Nor- wegen und dem islándischen Staat, also damit ohne weiteres auch was Grön- land betrifft" (bls. 2—3). þetta hef ég haldið fram í riti mínu „Islands völkerrechtliche Stellung . ..“ Hann staðfestir svo, að kenn- ingar J. D. séu réttar, og bætir því næst við frá eigin brjósti: Mér virðist, að ekki ætti leng- ur að leika nokkur vafi á rétt- arstöðu Grænlands í fornöld. Það var íslenzk nýlenda, hluti úr hinu íslenzka réttarsvæði, „vár- um lögum“ .. . „Það sem ég nú skrifa, eru mínar eigin ályktanir í Grænlandsmálinu. Eftir minni skoðun, sem ég hef margoft látið í Ijós viö hin ýmislegustu tækifæri, var ísland samkvæmt Gamla sáttmála, einn- ig eftir sameininguna við Noreg og síðar Danmörk de jure full- valda og þjóðaréttarleg persóna. Að staða þess, er tímar liðu, varð í framkvæmd á annan veg, staf- aði af því, að heitt var ofbeldi. Ofbeldi getur aldrei skapað var- anlegan rétt. tsland hélt alltaf fast við hina sjálfstæðu stöðu sína. Þar sem Grænland kom sem íslenzkt land með íslandi í sam- hand við Noreg og Danmörk, glataði ísland ekki sínum áður fengna rétti til Grænlands. Það . ætti að vera algjörlega augljóst •mál. En enn kom ofheldið með í leikinn. í hinum nýja sáttmála, sem gerður var 1918 milli ís- lands og Danmerkur, var eng- inn fyrirvari settur um rétt ís- lands til Grænlands. En að ís- land hafði þó ekki þar með gleymt sínum gömlu landsyfir- ráðum yfir Grænlandi, kom í Ijós, er harðna tók á Grænlands- málinu fyrir nokkrum árum vegna þess, að Noregur gerði kröfu til Austur-Grænlands. Ágreiningnum var stefnt fyrir alþjóðadómstólinn í Haag, sem með dómi upplcevðnum 1933 ógilti kröfu Noregs. Hann gerði það enn fremur satt og sannað, að þau landsyfirráð, sem í forn- öld voru stofnuð yfir Grænlandi, hefðu aldrei glatast (blaðsíða f7 —J+8 í hinni opinberu útgáfu Grænlandsdómsins, Leyden 1933). Að vísu leit dómurinn í samræmi við samhljóða staðhæf- ing beggja málsáðila svo á, að Grænland hefði verið sjálfstætt lýðveldi, sem gengið hefði undir Noreg, en hið sama hlýtur einnig að gilda viðvíkjandi landsyfir- ráðum yfir Grænlandi í eigin- leika þess sem íslenzkrar ný- lendu. Hvað gerði ísland, eftir að Grænlandsmálinu hafði verið skotið til Haags? Eklcert opin- bert! En að Grænland var alls eklci gleymt á íslandi, má sjá á því, að þegar deilan milli Noregs og Danmerkur var hafin, bar fyrrverandi forsætisráðherra, Jón Þorláksson, fram tillögu til dagskrár á Alþingi þess efnis, að þingið skoraði á landsstjórn- ina að gæta hagsmuna íslands í gangi málsins milli Danmerkur og Noregs. Hann hélt því fram, að ísland ætti bæði réttar og hagsmuna að gæta á Grænlandi. Eftir meðferð í þinginu var mál- ið lagt fyrir utanríkismálanefnd. Síðar samþykkti Alþingi þings- élyktunartillögu, þar sem skor- að var á landsstjórnina að gæta málsstaðar íslands í Haag. Er ekkert heyrðist um gang málsins, kom fram fyrirspurn á Alþingi til landsstjórnannnar um, hvað gert hefði verið í rnálinu. Þessan fyrirspurn var ekki svarað. Ef íslenzka stjórnin skyldi hér eftir taka upp samninga við Dan- Varðskipsmenn á m/s Ægir. 239

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.