Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Blaðsíða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Blaðsíða 25
KTINNE Frá Hollývúdd. Hann: „Við skulum skemmta okk- ur svolítið í kvöld, ástin mín“. Hún: „Allt í lag-i. Þú manst að skilja eftir ljós á gang-inum, ef þú kemur heim á undan mér“. * Hvar eigum við nú að sofa í nótt, Gvendur minn? Veiðimaður nokkur fékk á sig svo slæmt orð fyrir að ýkja fiskisögur sínar, að hann keypti sér vog til að hafa heima hjá sér og vigrta stóru fiskana fyrir augunum á efa- scmdarmönnunum. Dag nokkum fékk læknir nokkuj- vogina lánaða til þess að vigta ný- fætt barn. Barnið vóg fjörutíu og sjö pund. * „Ég gleymdi henni heima", hróp- aði veiðimaðurinn. „Andsk djö f aulinn þinn. Þú ert sá mesti asni, sem ég hef farið með í veiðitúr. Túrínn ónýtur!“ voru svör félagans. „Hvaða læti eru þetta? Þú hefðir eins getað munað eftir maðkadoll- unni eins og ég“. „Nú, maðkadollunni. Það var ann- að mál. Ég hélt þú hefðir gleymt flöskunni". * * Sjóveiki. Eiginkona (við sjóveikan eigin- mann): „Sjáðu þarna, Jón, en hvað þetta er stórt slcip!“ Eiginmaður: „Skip, drottinn minn dýri, ég þoli engin skip. Segðu mér, þegar þú sérð strætisvagn". * Ég liefði aldrei átt að láta þá hafa vetnissprengjuna. Fiskisögur. „Er ég var að veiða dag nokkuni", sagði gamli veiðimaðurinn, „var ég skyndilega uppiskroppa með beitu og var gjörsamlega ráðþrota, hvergi beitu að fá. Verður mér þá litið fyrir fætur mér og sé þá, hvar höggormskríli kemur skríðandi eftir bakkanum með frosk í kjaftmum. Tók ég froskinn úr kjafti hans og skar hann niður í beitu og þakkaði mínum sæla fyrir, að höggormurinn hafði rekizt til mín, einmitt á þessu augnabliki. Á hinn bóginn fékk ég dálítið samvizkubit yfir að hafa tek- ið matinn úr úr munninum á ves- lings skepnunni. Til þess að reyna að bæta honum þetta upp, tók ég viskípelann upp úr tösku minni og hellti fáeinum dropum upp í grey- ið. Hann virtist þakklátur fyrir hug- ulsemi mína og sneri á braut í bezta skapi. Nokkur tími leið, og ég hélt áfi-am að veiða. Finn ég þá, að eitthvað kemur við buxnaskálmina mína og lít niður. Sé ég þá hvar kominn er vinur minn, höggormurinn, með þrjá froska í kjaftinum". ALMENNINGUR TRYGGIR HJÁ „ALMENNUM" * TRYGGING ER NAUÐSYN! ALMENNAR TRYGGINGAR H.F. Austurstræti 10 — Reykjavík Útvegsbanki fslands h.f. REYKJAVÍK Ásamt útlbúum á Akureyri, ísafirði, Seyðisfirði, Vestmannaeyjum. * Annast öll venjuleg banka- viðskipti innanlands og utan. Vextir lagðir við höfuðstól tvisvar á ári. * Ábyrgð ríkissjóðs er á öllu sparisjóðsfé bankans og úti- búum hans. ÍSLENDINGAR! Fyrir strlðið fluttum vér út að meðaltali árlega 250—300 þús. tunnur síldar til Norðurlanda. Auk þess framleiddu þessar þjóðir annað eins tll neyzlu af íslenzkri sild. * Lærið af reynslu þessara þjóða og borðið mciri sild. * íslenzk síld inn á hvert heimili. SÍLDARÚTVEGSNEFND SJOSTIGVEL 225

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.