Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Qupperneq 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Qupperneq 27
arfjórðungur frá því að Norð- lendingar töldu nauðsynlegt að hafa björgunarskip fyrir Norð- urlandi og tóku að undirbúa mál- ið. Fyrir hönd Björgunarskútu- ráðs Norðurlands bar Steindór Hjaltalín fram þakkir fyrir hið fallega skip og væri það fyrst og fremst slysavarnardeildunum nyrðra að þakka, að svo langt væri komið nú, að Albert væri fullsmíðaður. Ég bar fram þakk- ir til sömu aðila og Steindór fyr- ir smíði skipsins og allra þeirra, sem að því höfðu staðið og að unnið bæði fyrr og nú, að Norð- lendingar ættu sína „björgunar- skútu“ sem og væri varðskip og mér væri það sérstök ánægja, að það f. h. hinnar íslenzku þjóðar væri í dag afhent landhelgisgæzl- unni, fyrsta björgunar- og varð- skipið úr stáli, sem hér á landi hefði smíðað verið og að land- helgisstjóri, Pétur Sigurðsson, veitti því móttöku fyrir ríkisins hönd. Þó ekki þætti tillag deilda Norðurlands stórt, aðeins ein milljón króna, eins og lofað hefði verið, þá skyldum við Islending- ar, sem teldum skyrið einn okk- ar ljúffengasta mat og hollasta — sannkallaðan þjóðarrétt á matborði, — vera þess minnugir, að til skyrgerðar þyrfti þéttir, og því betri sem þéttirinn væri þeim mun betra skyrið. Þéttir- inn í því fyrirtæki, að nú lægi fyrir hendi skrautbúið íslenzkt björgunar- og varðskip úr stáli, gjört af íslenzkum mönnum á okkar landi, væri einmitt tillög norðlenzku deildanna og áhuginri þeirra, einkum kvennadeildanna, sem ávallt um starfsemi slysa- varna og björgunar eru fram- takssamastar og hrinda málun- um af stað og síðan í höfn.. Komið var úr þessari för til Rvíkur kl. rúml. 13 og kvöddu þá gestir skipherra og skipshöfn með heillaóskum um velfarnað í hinu þýðingarmikla starfi, sem framundan lægi og skipinu — Albert — óskað heill og ham- ingja með ferföldu húrrahrópi. Ákveðið hafði verið, að sýna forseta íslands, herra Ásgeiri Ásgeirssyni, sem og er verndari S.V.F.Í. björgunar- og varðskip- ið ,,Albert“ áður en farið yrði norður, og bauð landhelgisstjóri forsetanum ásamt okkur þremur, sem erum gestir hans norður, Guðbjarti Ólafssyni, Steindór Hjaltalín og mér til hádegisverð- ar í „Albert“ á hádegi þriðju- daginn 20. ágúst ’57, ásamt skip- stjóra, 1. vélameistara og 1. stýrimanni. Stundvíslega kom forsetinn og sýndu þeir land- helgisstjóri, skipstjóri og véla- meistari 'honum skipið og tæki þess og var þvínæst sezt að borð- um, sem upp á góða gamla ís- lenzka sjómanns vísu var hinn ágæti matur kjötsúpa með káli og rófum og kindakjöt eða lamba, því að engar voru síð- urnar feitar. Svo kom ljúffengur ábætir, þvínæst kaffi, en enginn snaps með og gerði forseti góð- an róm að öllu þessu, einkum skipinu. Strax og hann var í land farinn var gert „klárt“ og hald- ið út höfnina kl. 13,30 í logni og glaða sólskini — skafheiðríkt — og vona ég að heiðríkja verði yfir bæði þessari för Alberts og allri siglingu hans héðan í frá. Áhöfn skipsins er sem hér segir: Skipherra Jón Jónsson, Rvík, 1. stýrimaður Gunnar J. Ólafsson, Rvík, 2. stýrimaður Benedikt H. Ólafsson, Rvík, 1. vélstjóri Lárus Magnússon, Rvík, 2. vélstjóri Hörður Guðmunds- son, Rvík, 3. vélstjóri Sigurbjörn Halldórsson, Rvík, dagvörður á vélina Ólafur Magnússon, Rvík, loftskeytamaður Pálmi lngólfs- son, Rvík, bryti Haraldur Pét- ursson, Gufunesi, Bátsmaður Viktor Þórðarson, Rvik, háseti Lúðvik Lúðvíksson, Rvík, Við- vaningar Vébjörn Eggertsson, Ak„ Eysteinn Aðalsteinsson, Sigluf., þjónn Haraldur Haralds- son, Rvík, eftirlitsmaður frá Landssmiðjunni Magnús Jóns- son. Góðviðri tilkynnir útvarpið um land allt. í Faxaflóa er skínandi veður og fjallasýn hin bezta. Hraði skipsins er 12 sjómílur og má það teljast góður gangur. Kemst hraðar ef á liggur. Komið undir Snæfellsnes kl. um 17 og sést þá Stapafell með Stapa svo og Lóndrangar, en Bárðarkista er falin í þokubelti á Jöklinum, svo og Hreggnasi. Siglt fram hjá Svörtuloftum og Öndverðarnesi nærri landi, svo farið dýpra, sjór þyngist, veltingur byrjar og far- þegar hátta. Við vorum þrír í farþegaklef- anum, sem ég hef áður getið, og fór allvel á með okkur í klefan- um, en þegar komið var í deild- irnar og veizlurnar, gerðust þeir ferðafélagar mínir full djarf- tækir til slysavarnakvennanna, einkum Guðbjartur, sem þóttist eiga forgangsrétt sem forseti S. V.F.I., en Steindór sagðist að þessu sinni ekki vilja hlut sinn minni, þar eð hann væri formað- ur björgunarskúturáðsins, og viðurkenndi ég, einkum er ég gekk á eintal með öðrum hvorum þeirra og sitt á hvað, að báðir hefðu þeir nokkuð til síns máls, en hófs yrði að gæta í svona við- kvæmu máli og hafði ég land- helgisstjóra á mínu bandi, enda gekk hann ekki sízt í augu kven- fólksins, en aldrei kom til átaka. Um nóttina, meðan siglt var fyrir Vestfirði og Horn, var nokkur veltingur, en svefninn sigraði sjóveikina. Þegar ég að morgni 21. kom á þilfar, var vestan gola og veð- ur bjart. Hornbjarg í hávestri en Geirólfsgnúpur á Ströndum í suðaustri og blasti við Húna- flói og bar þar einna mest á Reykjahyrnu vestanmegin og Spákonufelli í suðaustri. Svo tók við Skagafjörður og með sanni mátti segja, að hann í þetta sinn skini við sólu með djásnum sin- um, Drangey, Þórðarhöfða og Málmey, en í landsýn innanvert við fjörðinn gnæfðu Tindastóll og Mælifellshnúkur. I þessum svifum kom gæzluflugvélin Rán yfir okkur og tókust nú upp sam- töl milli landhelgisgæzlunnar í lofti og á legi, en frá þeim má ekki segja, heldur hinu, áður en til Siglufjarðar er komið, hvern- ig skip „Albert“ er. Skipið er 200 rúmlestir að stærð, byggt eftir ströngustu kröfum Lloyds og ísl. 227

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.