Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Side 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1957, Side 38
Grænland hafi verið nýlenda Is- lands. í nafnaregistrið við Grgs. III. ritar hann: „Grænland (Græna- land Ia, 240, 249, II. 71, 90, 389, III. 478, sbr. í várum lögum= íslenzka byggöin á Grænlandi Ia, 226, II., 70), — Ib, 197, III., 466“. 1 skýringargreinunum aftan við Grgs. III. ritar hann undir lög .. . [merking] „lagasvæöi (Lovomraade, Retsgebet), í vár- um lögum Ia, 226, II. 70, á því svæöi, sem stendur undir þjóö- félagsvaldi várra laga (under vort Lovomraade) ; hér er átt við íslenzku nýlenduna á Grænlandi, — sbr. lögleiöa“. Vilhjálmur vís- ar í orðið lögleiða, af því að það merkir að taka manninn í lögin (þjóðfélagið). 1 dönsku þýðingunni á Kon- ungsbók (bls. 224) þýðir Vil- hjálmur „her a lande eþa i órum logum=Iier i Landet eller hvor vore Love gælde, sem hann svo í neöanmálsgrein slcýrir sem þann hluta Grænlands, sem íslending- ar byggöu. Vilhjálmur Finsen, þessi frá- bæri mannkostamaður, er varð allra síðari alda manna nákunn- ugastur Grágás og hlaut heims- frægð fyrir ritsmíðar sínar um efni úr Grágás og fyrir útgáfu þessa merkasta lagasafns fornra tíma, lítur því svo á, aö Græn- land hafi í tíö Grágásar veriö ný- lenda íslands, algerlega undir- lagt íslenzfcu löggjafarvaldi, og þar meö um leiö undirgefiö öör- um greinum ísl. þjóðfélagsvalds. I óprentuðu réttarsögunni (A. M., acc. 6), sem enginn maður hefur getað fengið lánaða hing- að á söfn, hvorki frumritið né afskrift Boga Th. Melsteds, vík- ur Vilhjálmur tvívegis að rétt- arstöðu Grænlands. Á bls. 43 segir hann undir yfirskriftinni: „Territorium Grænland [þegn- réttur]: „/ Grágás er eklci talaö um íslenzka þjóöfélagiö sem slíkt. Um þjóöarland þess eru höfö orðin: fsland, hér á landi, land várt. . . . Frá íslandi byggö- ist 986 Grænland, og þessi ný- lenda var talin tilheyra hinu ís- 238 lenzka réttarsvæÖi, hér til vísa orðin „í várum logum“. Þaö má því télja víst, aö hin íslenzku lög hafi að sjálfsögðu veriö gildandi á Grænlandi, er ráunar sést aö hafa haft sérstakt þing, Garöa- þing, er viröist hafa veriö skap- þing (ekki eins og þau norsku), en raunar aöeins verið dómþing, eklci löggjafarþing. Getiö er um biskwpsdæmi á Grænlandi“.* i 1 Nokkru síðar hefur Vilhjálmur ritað sér til minnis á spássíuna: „Her bör maaske omhandles den islandsk-grönlandske Stats Om- raade=Hér ætti ef til vill aö gera grein fyrir landssvæöi hins ís- lenslc-grænlenzka þjóðfélags“. Hinn mikli mannkostamaður og landi vor Sveinbjörn Johnson prófessor juris við ríkisháskól- ann í Illinois (áður hæstaréttar- dómari í Dakota) lauk því þrek- virki að þýða alla Grágás á ensku og rita við hana formála. Paul sonur hans hefur skrifað mér, að víða sjáist það af þýðingunni, að faðir hans hafi litið svo á, að Grænland hafi verið hluti ísl. þjóðfélagsins á þjóðveldistíman- um. Sem sýnishorn af því sendi hann mér eftirfarandi ummæli föður síns í formálanum fyrir þýðingunni (Section 85—4, Chapter 2), undir fyrirsögninni „Skipun Alþingis“: „Lögsaga Noregskonungs náöi 1 „20. Territorium Grönland. [Stats- borgerret]. Den islandske Fristat omtales ikke i Grágás som saadan. Om dens Terri- torium bruges Betegnelsén Island, hér á landi, land vort.... Fra Island bebyggedes 986 Grön- land, og denne Koloni betragtedes som henhörende til det islandske Retsgebet; hertil sigtes med Udtrykket í várum lögnm. Det maa da antages, at den islandske Ret har været uden videre gjeldende i Grönland, der syneg at have havt et særligt Ting, Garðaþing, der synes at have været et regelmæs- sigt Thing (ikke som de norske), men vel kun har været dömmende, ikke lov- givende. Et Bispedömme i Grönland omtales" (bls. 43 í réttarsögu Vil- hjálms). Vilvitnanir hans má finna á bls. 371 í Réttarst. Grænl.. vestur á mitt haf í átt til íslands (Gulaþingslög 111, Ngl. I, 50). ísland fór meö yfirráöarétt aust- ur á mitt haf í átt til Noregs. íslendingar töldu sig hafa yfir- ráöarétt í vestur frá fslandi, þar á meöal yfir Grænlandi (íb, 195 —97, III, 463—66), einnig yfir landaleitan til aö finna ný lönd, og eru þá höfö i huga nýlendu- lönd í vestri (Vínland og þaö svæöi yfirleitt). Grænland var numiö frá íslandi og var sam- lcvæmt alþjóöalögum nýlenda ís- lands. í Frostaþingslögum eru tilsvarandi fyrirmæli, þar sem sagt er beinum og berum orðum, aö taka arfs skuli fara aö íslenzk- um lögum, þegar eigandinn deyi fyrir vestan mitt haf eöa á ís- landi út“ (Ngl. I, 210, gr. 6). Þaö viröist vera útkljáö mál eftir beztu heimildum, aö Grænland var numiö af íslendingum og landnámiö byrjaöi 985 eöa 986 e. Kr.“i Hinn ágæti íslandsvinur og víðkunni stjórnlaga- og þjóð- réttarhöfundur dr. juris Ragnar Lundborg í Stokkhólmi rannsak- aði sjálfstætt rétt íslands til Grænlands, sem honum var inn- an handar vegna góðrar kunn- 1 The jurisdiction of the King of Norway extended to the „middle of the ocean“ westward towards Iceland (Gulathingslov, Sec. 111, I. NGL 50). Iceland exercised sovereignty to the „micldle of the ocean“ eastward to- wards Norway. The Icelanders claimed sovereignty west from Iceland in- cluding Greenland (Ib, 195—99; II., 463—66) including exploration for the discovery of new lands, which con- templated discoveries towards the west (Vinland and that region in generals). Greenland was colonized from Iceland, and according to international law, was an Icelandic colony. In the laws of Frostathing a like provision, appear, where it is expressly stated that the devolution of property when the owner dies „west of the middle of the ocean“ or „out in Iceland shall be according to Icelandic law (I. NGL. 210, par. 6). It seems settled in the best autority that Greenland was settled by Iceland- ers, beginning 985 or 986 e. Kr.“

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.