Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1962, Qupperneq 4
Þá tók út af m.s. Særúnu
Sigþór Guðnason, sklpstjóri
Sjóslys á iii
Klukkan hálf átta aö morfjni
30. janúar s.l. varð það slys í
Látraröst, að vélskipið Særún
fékk á si(j brotsjó, sem. braut af
því brúna og tók hana út með
þrem mönnum. sem þar voru og
fórust þeir allir:
Sigþór Guðnason, skipst.jóri.
Sæfelli á Seltjamamesi, 36 ára
a/5 aldri, sonur Guðna Jóhanns-
sonar, skipstjóra, Sæfelli og
konu hans, Jóhönnu Þorsteins-
dóttur. Sig-þór var kvæntur Odd-
nýju Jónsdóttur og áttu þau
þr.jú börn, öll á unga aldri.
KonráS Hjálmar Konráðsson,
stýrimaður, Njálsgötu 51, 38
ára að aldri, sonur Konráðs
heitins Hjálmarssonar, kaup- og
útgerðarmanns í Neskaupstað
og konu hans, Ólafar Þorkels-
dóttur. — Kvæntur var Konráð
Sigríði Þorláksdóttur, Jónsson-
ar, skrifstofustjóra, Njálsg. 51.
Björgvin Hlíöar Guömunds-
son, háseti, Framnesveg 23, 28
ára að aldri, sonur Jóhönnu
Petru Björgvinsdóttur, Hlíðar-
Konráð Konráðsson, stýrímaður
Særnnn
enda í Breiðdalsvík. Björgvin
var kvæntur Valdísi Þorláks-
dóttur og áttu þau 2 ung börn.
Blásiö í talrörið — síðan ekkert.
Eins og áður segir, var skip-
ið statt í Látraröst. Nokkru áð-
ur en slysið varð, hafði 1. vél-
stjóri vakt. Var þá farið að
draga úr hraða skipsins í verstu
ólögunum. Er hann ræsti stýri-
mann kl. 6,30 og síðan 2. vél-
stjóra kl. 7,00, var að vísu
slæmt í sjó og gekk á með dimm-
um snjóéijum, en veður var ekki
sérlega hættulegt. Fór hann síð-
an að sofa. Telur hann sig hafa
verið að festa svefn, er hann
hrökk upp við að skipið hallað-
ist mikið á bakborða og kastað-
ist hann fram úr hvílunni.
Annar vélstjóri, sem hafði
vakt í vélinni, heyrði blásið
snöggt í talrörið, sem liggur frá
stjórnpalli í vélarrúm, í sama
mund og skipið fékk á sig brot-
sjóinn. Hljóp hann samstundis
Björgvin Hlíðar Guðmundsson, háseti
í Látraröst
til og svaraði, en fékk ekkert
svar. Þaut hann síðan upp og
varð strax var við hvernig kom-
ið var fyrir skipinu. Hrópaði
hann þá í brúna á þá menn, er
hann vissi að áttu að vera þar,
en fékk ekki svar.
Slitur eftir af brúnni.
Fór 2. vélstjóri þá niður og
sagði félögum sínum frá hinum
válega grun sínum. Sættu síðan
báðir vélstjórarnir lagi að kom-
ast í slitur þau, er eftir voru af
stjórnpallinum. Er þangað kom,
varð þeim fyrst fyrir að ahuga
stýrið. Var stýrishjólið, sem er
aftast í brúnni, albrotið, nema
þrír „pílárar" — en af þeim
brotnuðu tveir á leiðinni í land.
Urðu þeir strax varir við að
stýrið var virkt og gátu þeir því
snúið skipinu upp í vind og sjó.
Næst varð fyrir þeim að at-
huga talstöð skipsins, en óhægt
var um vik, þar sem ljóslaust
var og gekk yfir ,með niðdimm-
VÍKINGUE
44