Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1962, Blaðsíða 6
M.s.
Stuðlaberg
sekkur
úi af
Stafnesi
Miðvikudaginn 21. febrúar s. 1. var Slysa-
varnafélaginu tilkynnt, að Seyðisfjarðarbátsins
Stuðlabergs NS 102, hefði ekki orðið vart síðan
á laugardagskvöld, er síðast var haft samband
við hann út af Selvogi. Um leið og leit var hafin
kom í Ijós, að brak hafði fundizt á fjörunum
milli Garðskaga og Sandgerðis, þar á meðal
merktur bjarghringur, og nót hafði sézt mílu út
af Stafnesi á mánudag. Á Stuðlaberginu voru 11
menn, en ekkert hefur til þeirra spurzt.
Það var bróðir stýrimannsins, Björn Þorfinns-
son,. skipstjóri á Heimaskaga, sem tilkynnti
Henry Hálfdanarsyni, framkvæmdastjóra Slysa-
varnafélagsins, að aðstandendur væru orðnir
46
uggandi um bátinn, en útgerðarstjórinn, Jón
Jörundsson úr Keflavík, var jafnframt skipstjóri
bátsins og því um borð. Útgerðarfélagið er Berg
n.f. á Seyðisfirði, og eigendur auk skipstjórans
Björgvin Jónsson á Seyðisfirði og Kristján Jör-
undsson, bróðir skipstjórans, sem einnig var á
Stuðlabergi. Er áhöfnin skráð í Njarðvíkum, að-
eins einn skipverja frá Seyðisfirði og samkvæmt
upplýsingum frá útgerðinni á Seyðisfirði hefur
báturinn lagt upp hjá Bæjarútg. Hafnarfjarðar.
BRAK REKIÐ
Stuðlaberg var á síldveiðum fyrir Suðurlandi og
er skipstjórinn hafði samband við Albert Bjarna-
VÍKINGUR
i