Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1962, Page 17
Skipbrotsmenn af EUiða um
borff í Júpiter. — TaUff frá
vinstri: Páll Jónsson (sem var
á flekanum), Jóhann Matt-
hiasson, Haukur Kristjánsson,
Sigurffur Jónsson, Matthías
Jóhannesson, 1, kyndari, Am-
grímur Jónsson, 3, stýrimaffur,
og Pétur Þorsteinsson. Hjalti
Björnsson snýr baki í ljós-
myndarann.
Júpiter í brúnni, þar sem hann ræddi við frétta-
menn og fleiri, er vildu vita um nánari tildrög
björgunarinnar. — Einn komumanna gekk til
Bjarna og þakkaði honum hina giftumiklu björg-
un, sem raunar væri ekki hægt að þakka eins og
vert væri.
— Það er ekkert að þakka. Þetta var aðeins
guðleg forsjón, svaraði Bjarni þegar í stað.
Við töfðum fyrir Bjarna stutta stund. Hann
sagði okkur að þeir á Júpiter hefðu legið til hlés
við Elliða, sem stöðugt hallaðist meira og meira
á bakborðshliðina. Mikið lán hefði verið,, hve
bj örgunarlínunni var skotið frá Elliða út í Júpi-
ter og strax hægt að senda þeim bátinn yfir.
—Þeir gátu skotið línunni undan vindinum til
okkar, sagði Bjarni.
— Og ætlið þið að standa lengi við? spurðum
við Bjarna.
— Nei, við förum út í nótt kl. 3,00.
Skarðsvík sftkk á lirinilcið
ár lcitarlciftangri.
víkin út til að leita að gúmmíbátnum af Elliða
ásamt öðrum Snæfellsnesbátum og var við leit-
ina þar til báturinn fannst.
Báturinn lá á hvolfi og mennirnir lágu í botn-
inum í sjó. Hann var á svipuðum slóðum og tog-
arinn sökk.
— Það voru. 6—7 vindstig og var að ganga
upp í NA ofan í vestan sjó. — Við sendum út
hjálparbeiðni. Óðinn var í ca. 15 rnílna fjarlægð
og var kominn eftir 45 mínútur. Hann tók okkur
í slef. Það voru 10 mílur 1 var og hefðum við
komist í sléttan sjó, þá gat verið að hægt yrði
að koma við dælu og það dygði. En báturinn
fylltist á hálfum öðrum klukkutíma. Þegar við
þorðum ekki að vera lengur um borð, yfirgáfum
við hann. Þá voru komnir til okkar togarinn
Þorkell máni og Júpiter, sem var með skipbrots-
mennina af Elliða og Stapafellið, sem tók okkur
upp. Þess má geta í þessu sambandi, að skip-
stjórinn á Stapafellinu er Guðmundur Kristjóns-
son, bróðir Sigurðar á Skarðsvíkinni.
Skarðsvík SH 205, sá báturinn, sem fyrstur
kom að gúmmíbjörgunarbátnum með hinum látnu
mönnum, tveim, af Elliða, kom ekki aftur úr
þeirri leit. Leki kom að bátnum um 15 sjómílur
V-NV af Öndverðarnesi. — Áhöfnin, 6 manns
komst á gúmmíbátnum yfir í Stapafellið.
Skipstjórinn á Skarðsvík var hinn kunni afla-
kóngur þar vestra, Sigurður Kristjónsson, enda
hafði báturinn skilað þriðjungi hærri afla en
næsti bátur í þeim 19 róðrum, sem af eru þess-
ari vertíð.
Fyrstir að gúmmíbátnum..
Um 7 leytið á laugardagskvöldið fór Skarðs-
VÍKINGUR
Sökk fimm mínútum seinna.
— Voruð þið komnir yfir í Stapafellið, þegar
Skarðsvíkin sökk?
— Já, hún sökk 5 mínútum eftir að við vor-
um farnir frá borði. Okkur gekk vel að komast
yfir á gúmmíbátnum.
Skarðsvíkin var nýr bátur,, kom til landsins í
ársbyrjun 1961. Hann var 87 smál. að stærð og
búinn fullkomnustu tækjum.
Áhöfnin á Skarðsvíkinni var öll frá Rifi. ___
Mennirnir voru: Sigurður Kristjónsson, skip-
stjóri, Friðjón Jónsson, stýrimaður, Sigurður
Árnason, vélstjóri, Almar Jónsson, matsveinn,
Guðmundur Guðmundsson, Sigurjón Illugason.
57