Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1962, Qupperneq 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1962, Qupperneq 30
Dagbókarblað úr hálfs árs ferða- reisu milli heimsálfanna. Víða liggja spor mannanna, og víSa finnast dyggðir kvenna. — Ég sigldi þá með dönsku skipi. Vi'ð höfðum siglt í nœr liálfan mámið frá Pulan Sambo á Malajaskaga til Geelong, hafnarborgar Melbourne, höfuðstaðar Astralíu, án þess að sjá nokkuð mark- vert, utan fuglinn Albatros og sjó- slöngur, er höfðu fylgt okkur 3 síS- ustu dagana. Þar sem þjóðhátOðardagur álfunnar fór í iiönd, og ég allloðinn um liöfuð- ið, brá ég mér, er í land kom inn til fyrsta hárskera, er varð á vegi mínum Bað nm liársnyrtingu, er framkvæmd var af natni og vandvirkni. Eins og hárskerum um allan heim er títt, lét hann móðan mása meðan á verkinu stóð. Loks spui'ði hann mig hvaðan ég væri. Að fengnum upplýs- ingum, kvaðst liann hafa samrekkt Westman Islands Amy heima í Rvík fyrir mörgum ánun. Ja, „Orðstyrr deyrr aldrigi hveim sér of góðan getr“, sagði ég, greiddi og kvaddi og hélt niður að batðströndinni. Þar gat að líta mikinn fjölda lysti- snekkja, er sigldu seglum þöndum fyrir ströndu frammi og í sandinum vi*ð fjöruborðið eitthvert hið fcgursta safn sólbrúnna mcyjakroppa, er ég hef augum litið, liggjandi í ]>ægileg- um stellingum, látandi þann, er sólina skóp, þerra sína sjóblautu búka. Eg þrammaði Jiarna um fjörusand- inn í hálfa klukkustund, vidðandi fyrir mér meistaraverk skaparans í marg- breytilegum myndum, en að nálgast slíkt alklæddur var ógjörningur. Þess- vegna brá ég mér upp á göngubrú all mikla, er lá að stórum gildaskála, er stóð langt í sjó frammi. Eg sá strax, að fólk það er skálann gisti, var fáklætt mjög. Svo ég tók mér sreti á bekk einum fyrir dyrum utan, að fengnu leyfi áttræðrar al- klæddar kerlu, er sat þar ein sér. Tók ég nú kellu tali, og var liún bæði glettin og greinargóð í svörum, i'ðaði af kæti og lífsfjöri. Veitti liún mér hinn mesta fróðleik um lönd og lýð álfunnar, tómstundaiðju og skemmtanir unga fólksins og í tilefni komandi dags talsverðan fróðleik um stjómmál dagsins. Er við liöfðum setið og spjallað í lieila klukkustund, var teki'ð að líða að aftni og sól farin að síga í vestri, og fólk að búast til brottferðar. Ég kvaddi nú þessa fágætu, skemmtilegu konu. Gckk til lands og fékk mér leigubíl, ók til skips og gekk til hvílu að loknum kvöldverði. Svaf lengi og vel. Er ég vaknaði, var kominn þjóð- hátíðardagur Ástralíu. En þa'ð er önn- ur saga. — Ól. Jlalldó rsson, loftskeytam. Sundhraði nokkurra fiska. — 100 metramir á 3 sekúndum! Þatð þykir alltaf í frásögur færandi, þegar karl eða kona setur met í sundi. Er talið mildð afrek, þegar einhverj- um tekst að synda 100 eða 200 metra vogalengd á einni sekúndu eða broti úr sek. styttri tíma en sá, sem metið átti áður. Væru fiskar gæddir kímni- gáfu, mundu þeir hlæja sig máttlausa, livert sinn sem þeir sæju tilburði mannverunnar á sundi. Sundhraföi sumra fiska er mcð ó- líkindum. Til samanburðar má nefna, að lieimsmet manna í 100 m. frjálsri aðferð er citthvað um 55 sek., en stóri flugfiskurinn, sem er hraðsyntastur allra fiska, þarf aðeins 3 sekúndur til þess að komast sömu vegalengd. Mjög litlu munar á honum og fiski, sem Amcríkumenn kalla Wahoo. Sundhraði flugfkisksins hefur veri'ð mældur með stoppklukku. — Walioo fæst stund- um á stöng og fer þá oft út með 200 metra af línunni í einni roku á 12 sek. Þá verður ekki beinlínis sagt að túnfiskurinn sé neinn sleði. Flugfisk- urinn á heimsmetið, óumdeilt; hann getur farið með 110 km. hraða á klst. a.m.k. fyrsta kastið. En túnfiskurinn kemst upp í 70 km. á klukkustund, e*ða vel það. Og til eru hákarlar, sem fara upp í 60 km. á klst. Sundhraði eftirtalinna fiskaersagð- ur þessi: Lax .............. 40 km. á klst. Sjóbirtingur ..... 37 lun. á klst. Gedda ............ 32 km. á klst. Aborri ........... 16 km. á klst. Áll .............. 12 km. á klst. Af þessu sést að sundhraði fisk- anna er mjög misjafn, eftir tegundum. Aborrinn og állinn eru t.d. silakeppir, samanborið flug- og túnfiskinn, en í samanburði við mannskepnuna eru þeir þó fljótir í ferðum, því að heims- met manna svarar til 6 km. á klst. og mundu þeir þó varla lialda þeim hralða nema stutta leið. Nei, við höf- um sannarlega ekki af miklu að státa í sundlistinni Hitt er svo annað mál, að fisk- arnir fara ekki að jafnaði með þess- um mikla hraða. Þeir reyna ekki svona mikið á sig nema þegar mikið liggur vi'ð, t.d. þegar þeir eru að flýja und- an óvinum o.s.frv. Þeir eru aldrei að hugsa mn að setja met! Mennirnir eru víst einir um það, að ofreyna sig þannig að óþörfu, eða til þess að verða frægir. Af mcrktum fiskum, sem náðst hafa aftur, hafa menn geta'ð gert sér nokkra hugmynd um venjulegan sund- hraða sumra tegunda. T.d. hefur fengizt vissa fyrir því, að merktur áll fór 1206 km. á 96 dögum, eða rúma 12 km. á dag, on eins og að framan var sagt, getur liann farið 12 km. á klst., þegar honum liggur á. Onnur athugun liefur leitt í ljós, að lax fór um 100 km. á dag að meðal- tali í 10 daga. Þess skal getið, alð fiskarnir fóru ekki beina línu gcgnum sjóinn, jafn- vel ekki þótt þeir væru á leið til ákveðins áfangastaðar. Þeir tóku ýmsa króka og útúrdúra, bæði állinn, sem var að fara til hrygningar suður í Saragossa og laxinn, scm var á leið heim í ána sína sömu erinda. Þeir þurfa auðvita'ð oft að leita sér að æti á þessum langferðum og það got- ur stundum kostað þá að leggja lykkju á leið sína. (Þýtt og endursayt úr norslcu). VÍKINGUR 70

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.