Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1962, Page 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1962, Page 36
Njarðv.kurbátur, framleiddur af Bjama Einaijssyni í NjarSvíkum. Báturinn er úr trefja-plasti og er 12 V4 fet á lengd. Nýjungar og tœkni Plastbátar og kraftblokk Það veiðitæki, sem nú ríður sér ört til rúms, er kraftblokkin, en reynslan hefur sýnt að síld- veiðar með eldri aðferðum eins og herpinót eða hringnót munu lifa sem endurminningar. Það var tilkommikil sjón að sjá síld- veiðiskipin með nótabáta í ugl- um á báðum síðum, en erfitt og stundum í misjöfnum veðrum. Nótabátum er nú breytt í trill- ur. Ekki er það svo að skilja, að kraftblokkin útheimti ekki bát, þótt kastað sé frá síldveiðiskip- inu sjálfu ,en sá bátur sem nú er notaður er léttur og viðráð- anlegur í fyrstu voru notaðir norskir trébátar með innan- borðsvél, sem vega 3—4000 kg., en oft getur verið óþægilegt að taka þá upp í misjöfnu veðri, svo og þegar skipið er orðið hlaðið, en það munar um svo mikinn þunga á annarri síðunni. Oft hefur mátt sjá síldveiðibát- inn með léttbátinn í togi, þar sem ekki voru tök á að taka hann upp. Þungur bátur gerir það einnig að verkum, að hann er sjaldnar settur í sjóinn og getur því tjón hlotizt af á nót- inni. Þeir bátar sem nú ryðja sér æ meira til rúms eru úr trefja- plasti, léttir og liðlegir, vega að- eins 1—200 kg. með utanborðs- Norskur trefja-plastbátur (Norbruk). — Báturinn er 16 feta langur og vegur 250 kgr. vél, en á s.l. sumri voru fluttir til landsins 30 slíkir bátar af Gunnari Ásgeirssyni h.f., svo og nokkrir framleiddir í Skipasmst. Njarðvíkur og var reynslan sú, að nauðsynlegt má telja að hafa slíkan bát í hverju skipi. Notkun þessara báta er aðal- lega fólgin í því að draga síld- veiðibátinn frá nótinni, ef hann hefur rekið inn í hana, losa nót- ina, ef hún hefur festst hæln- um á bátnum eða fara meðfram teininum, til að laga hann eða setja auka-flotholt. Það var haft eftir Eggerti Gíslasyni, skipstjóra á Víðir II., í einu dagblaðinu í haust, að léttbáturinn hafi bjargað síld- veiðinni hjá honum. Það er mikið atriði að bátur- inn sé rétt byggður, þ.e.a.s., þoli kraftmikla vél, en trefjaplast- bátar fást með mi&munandi botnlagi, en ef það er ekki rétt, er voðinn vís, þar sem lítið þarf til ef vélin er of stór, að bátur- inn lyftist upp að framan og hvolfi. Þeir bátar, sem hentug- astir eru þurfa að vera byggðir sem hraðbátar, breiðir og með góðu botnlagi, en innrétting að sjálfsögðu eins og í róðrarbát- um. Blaðið hefur kynnt sér þá báta, sem Gunnar Ásgeirsson h.f. býður síldveiðiflotanum nú, en það eru norsk byggðir bátar svo og Njarðvíkurbátur — en þessir bátar hafa verið reyndir með kraftmiklum vélum í drætti og hefur reynsla þeirra verið með ágætum. Það er varhugavert að nota stærri vél en seljandi gefur upp og reynslan hefur sýnt það. Sumir skipstjórar höfðu þann sið á s.l. síldarvertíð fyrir N.- og A.-landinu að setja léttbát- inn í sjóinn strax að loknu kasti og hafa hann viðbúinn, ef á þyrfti að halda, en rifin nót er allkostnaðarsamt í útgerð svo og töpuðu kasti og er það lítil hag- kvæmni að spara kaup á léttbát sem kostar 30—40 þús. kr. með vél, en fá í staðinn e.t.v. tjón, sem getur numið hundruðum þúsunda. Það mun nú vera í athugun hjá Skipaskoðun ríkisins að leyfa léttbáta og annan útbúnað í stað lífbátanna, sem stærri síldveiðiskip hafa orðið að hafa, en fyrirferð þeirra hefur verið til mikilla óþæginda á bátadekki. Þótt trefjaplastbátar séu sér- lega sterkir og traustir á sjón- um, ef rétt er valið, þá er ávallt hyggilegra að vera varfærinn, sérstaklega ef þessir bátar eru notaðir í landlegum í sporti, en þá er gangur þeirra mjög mik- ill. Að sjálfsögðu þurfa þessir bátar að vera með flothylkjum, svo þeir geti ekki sokkið. VÍKINGUB 76

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.