Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Qupperneq 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Qupperneq 11
 Baua(ea*& °AFWCA( 9tm£ Sf&'_ Peter Apian’e Cosmographia. 1545 Myndin sýnir greinUcgt dæmi um, hvernig 16. aldar kortagerðarmenn skreyttu kortin með myndum vegna skorts á IandfræðUegnm staðreyndum. athug'un. Sam landfræðingur gerði hann hins vegar sín stærstu mistök. Þó að mæling Erastosthens á ummáli jarðar- innar stæði honum til boða þá notaðist hann við mælingu stó- iska heimspekingsins Pósidón- íusar (180 f. Krist.), en hann hafði mælt ummál jarðarinnar 18000 landmílur. Árangurinn varð sá, að þeir tóku verk hans gild,, en í mörg hundruð ár rengdi þau enginn, höfðu með að gera stærð, sem var allt of lítil. Árið 1409 fannst gríska hand- ritið af bókinni Cosmografía (heimsfræði) eftir Ptólemy, þar sem hann lýsir skoðunum sín- um. Bókin var þýdd á latínu, og varð hún undirstaða kortagerð- ar um langan tíma, og þess vegna var það að Kólumbus hélt, að hann hefði fundið styttri leið til Austur-Indía. Það var ekki fyrr en 1669, að nákvæmari stærð var notuð, þegar Jean Pic- ard reiknaði ummál jarðarinnar 24500 landmílur. Samt sem áður var heimskort Ptólemys mikið afrek. Þar kem- ur fram frumkvæðið að kónisku fellingunni, sem mjög mikið er notuð í dag. Um 8000 staðir voru á kortinu, staðsettir eftir lengd og breidd. Að hans frum- kvæði var tekið að láta norður snúa upp á kortinu. Asíukort. — Á fyrri miðöld- um urðu nokkrar framfarir. Múhameðskir kortagerðarmenn og stjömufræðingar fylltust inn- blæstri af Ptolemy. Samt vissu þeir að Ptolemy hafði ofreiknað sig um 20° á lengd Miðjarðar- hafsins. Persneskir og arabiskir siglingafræðingar gerðu kort af Indlandshafi, á því voru lárétt- ar línur, er táknuðu breiddar- bauga. Aðrir baugar voru marg- breytilegir og greindu sumir á milli svæða eftir ríkjandi vind- áttum, aðrir dregnir með bili, sem táknaði þriggja stunda sigl- ingu. Þó að þessar upplýsingar væru ekki fullkomnar, voru þær samt gagnlegar fyrir sjófarend- ur. Portolcm-felld kort. — Sjó- farendur frá Venice, Lívomó og Genúa, sem kepptust um verzl- unina við Miðjarðarhaf, hljóta að hafa haft sjókort um og eft- ir krossferðir. Eitt sinn voru í Venice 300 kaupskip og 45 gal- eiður í flotanum, en 11000 manns töldust vinna að sigling- um. En að líkindum hefur sam- keppnin verið of hörð til þess að skipstjórarnir létu sjókortin liggja á glámbekk. Að minnsta kosti eru elztu nothæfu kortin VlKINGUB 179

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.