Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Blaðsíða 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Blaðsíða 38
þrælurn sínum, hrakyrti þá, sparkaði í þá og gaf þeim vindil á eftir talaði í hálfkveðnum vísum um „hærri staði“ hvað til stæði „bak við tjöldin“ með svo áhrifaríkum leyndardómssvip, að hann hafði þá alla á nálum, og allur hópurinn bölvaði sér upp á það hver við annan og í eyru honum,. að hann væri heimsins mesta afbragð. Hann var samanrekinn, svip- harður maður stuttklipptur og rauðbirkinn, og snubbótt arnar- nefið og breið hakan voru í ætt við Indíánamynd á vindlakassa — og þó svo, að Indíáninn, sem hér er beðinn afsökunnar á sam- líkingunni, virtist ímynd barns- legs sakleysis og blíðu í saman- burði við blóðhundinn. Allir óttuðust hann og skriðu fyrir honum. Menn, sem vildu hafa gott af Peckham komu sér fyrst í mjúkinn hjá O’Brien, sem talinn var hafa húsbónda sinn í vasanum; lögregluþjónar og njósnarar sóttust eftir að láta hann fjalla um kærur sín- ar; dómarar leituðust við að gera honum til geðs í þeirri trú, að hans biðu síaukin metorð og völd, ef til vill saksóknaraem- bættið við næstu kosningar. Hvenær sem athyglisvert mál kom fyrir eða mál, sem vakti almenna eftirtekt, sendi hann eftir málsskjölunum til réttar- fulltrúans og sölsaði undir sig málið. Þess voru jafnvel dæmi, að hann hrifsaði til sín mál, sem öðrum fulltrúum hafði verið fengið til meðferðar. Hann gaf út fréttatilkynningar til blaða, titlaði sig „settan saksóknara" hvenær sem Beckham brá sér frá og meira að segja oftar en einu sinni þó að hann væri við- staddur og belgdi sig yfirleitt út eins og mest hann mátti. Hann var ekki sem verstur þeim, sem stóðu með honum, og ef hann hefði ekki verið þorp- ari að eðlisfari, gat hann engu að síður látið gott af sér leiða en illt. Það er ekki hægt að gera of mikið úr valdi eins og því, sem honum var gefið, því að hann var stórvesír hins voldugasta embættismanns Bandaríkjanna, jafnvel ekki að undanteknum forsetanum. Hann gat ráðið örlögum lögreglu- manna hvort heldur var til auk- ins frama eða ófarnaðar, og hann gat eyðilagt mannorð hvaða manns, sem honum sýnd- ist, í lögsagnarumdæminu. Þetta var hinn æruverðugi William Francis O’Brien! Og hvað átti Ephraim gamli Tutt veslingurinn að gera á móti slíkum manni? III Billi blóðhundur strunsaði inn í stúkuna fyrir framan dómara- borðið, hneigði sig fyrir dómar- anum og reigði sig frammi fyr- ir gapandi mannfjöldanum, litil keisarinn, alvitringurinn, mont- rassinn mikli, — meðan gamli lögmaðurinn var að ráðgast við sinn nýja skjólstæðing. Eitthvað í fari Tutts vakti strax fullt traust Paddýs Mooney, og með- an rétturinn dokaði við, skýrði hann í flýti frá handtöku sinni og hvernig hún atvikaðist. Hann hafði engin vitni, sagði hann; það var logið upp á hann sök- um, og hann vildi láta rannsókn fara strax fram. O’Brien sperrti sig við dómgrindurnar. „Nújæja,“ sagði hann hrana- lega. „Játið þér sakargiftun- um?“ Hvað ætlið þér að gera? Þið getið ekki stungið þarna saman nefjum endalaust.“ Tutt brosti hæversklega, eins og hans var vandi, þegar hann var í mestum bardagahug. „Mér þykir fyrir að hafa taf- ið réttinn að ófyrirsynju, herra O’Brien. Við játum engum sak- argiftum, og við óskum eftir tafarlausri málsrannsókn." Á þessari stundu hallaði Del- aney lögregluþjónn sér fram yfir grindurnar og kippti í ermi blóðhundsins. „Herra O'Brien," hvíslaði hann. „Ef þér látið djöfsa ekki komast upp með neinn moðreyk er hann vís með að játa. Við höfum kverkatak á honum. Hérna er byssan, sem ég tók af honum — hlaðin!“ Hann lagði byssuna í höndina á O’Brien sem ekki ætlaði að láta sitt eftir liggja og stakk hendinni í vasann. „Hefur hann setið inni?“ spurði hann út undan sér. „Ég held nú það! Nýkominn úr steininum. Greip hann með fulla tösku af drasli, sem hann hafði nælt í tóbaksbúð. Hann er gamall kunningi, einn af stöðvar- þjófunum. Ef hann játar ekki, þá er bara að þjarma að honum fyrir réttinum. Hann sleppur ekki.“ Blóðhundurinn kinkaði kolli. „Láttu mig um það. Þið þama!“ — hann sneri máli sínu að Mooney og herra Tutt, eins og þeir væru ein heild — „Játið þið ákærunni og ég skal láta ykkur sleppa með innbrotstil- raun af annarri gráðu.“ Herra Tutt hristi höfuðið al- varlegur í bragði. „Nei,“ svaraði hann, „ég get ekki látið það viðgangast undir neinum kringumstæðum, aðsak- laus maður játi á sig glæp.“ Það færðist hörkusvipur yfir andlit O’Briens. „Eins og ykkur sýnist,“ hreytti hann út úr sér. „Ef hann gerir það ekki, fær hann þyngsta dóm.“ „Ekki nema hann verði dæmd- ur sekur,“ sagði herra Tutthóg- látlega. „Einmitt?“ hreytti andstæð- ingur hans út úr sér. „Svo þér haldið að þér getið fengið hann sýknaðan? Mér þykir þér vera bjartsýnn. Málið liggur alveg opið fyrir. Jæja, ætlið þér að láta undan eða ekki? Ef þér neitið, skal hann verða kominn á leið í tugthúsið klukkan tvö.“ Það var farið að síga í herra Tutt. „Herra saksóknari,“ sagði hann með þungri áherzlu, „mætti ég spyrja, hvortþérhaf- ið kynnt yður þetta mál?“ „Ég hef talað við eina vitnið, sem um er að ræða,“ sagði O’Brien. „Maðurinn er tugthús- VÍKINGUE 206

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.