Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Page 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Page 41
stýrimaður F. 10. júlí 1892 - D. 4. maí 1963 Einn þekktur íslendingur, bú- settur í Kaupmannahöfn, er ný- lega dáinn þar og grafinn. Það var Sigurður Hjálmarsson frá Stakkadal í Aðalvík. Frá því dugnaðarheimili hafa komið fjórir bræður, ungir á- gætismenn, sem unnu sig hér áfram til náms og framtíðar- starfa. Elztur þeirra var Jón Hjálmarsson, vélstjóri. Gegnum nánar tengdir kynntist ég mannúð hans og afli þeirra dyggða er einkenna aðeins úr- vals menn. Það þökkum við og munum, þó að mörg ár séu liðin síðan hann dó. Sigurður Hjálmarsson varfrá barnæsku hneigður til sjó- mennsku og stórra tilþrifa, enda beitti hann afli sínu ungur til ýtrustu framsóknar í þeirri grein. Hann lauk farmanna- prófi frá Stýrimannaskóla Is- lands árið 1915 með ágætisein- kunn. Hélt svo aftur til hafs og vann með sínum seigludugnaði mörg erfið og vandasöm verk til nauðsynlegra æfinga að settu marki. Árið 1918 hóf hann svo fast starf sem stýrimaður hjá Eimskipafélagi fslands, fyrst á Sterling, síðast á gamla Gull- fossi eða Lagarfossi. En varð loks að hætta siglingum vegna sjóngalla. Hélt þó áfram hjá Eimskip sem vaktmaður þess í Khöfn og eitthvað hjá öðru skipafélagi þar í viðlögum. Erfitt mun hafa orðið, svo dyggum og tryggum manni sem Sigurður var, að skilja við báða Gullfossana í þeim óhöppum VÍKINGUK hentu þau blessuðu skip. Og allt hófst það endilega í Khöfn. Getur skeð að brunasárin í vet- ur hafi orðið hans síðasta sorg. Við skulum vita það og skilja, að sjómenn elska skipin sín al- varlega, því að það eru fleytur hafsins, sem eru iíftaug þeirra. Sterka stráið, sem von þeirra og vissa hvílir á — til margvís- legra bjargráða. Sigurður Hjálmarsson var vel greindur, hæglátur og hlýr í við- móti. Fylgdi þó málum sínum fast fram, með djörfung og rétt- læti. Trúði algjörlega á Guð og reyndist jafnan hverjum manni vel. f störfum sínum var hann dyggur og svikalaus, enda munu þeir sem þekktu Sigurð mest, lýsa honum bezt. Sigurður kvæntist hér heima góðri konu, sem Ingibjörg hét Gunnarsdóttir, en missti hana eftir fá ár. Þau eignuðust tvær yndislegar dætur, sem nú lifa báðar við góð skilyrði. Síðar giftist hann svo danskri konu, er reyndist honum mjög vel. Þau eignuðust þrjú efnileg börn, sem auðvitað hafa aukið hamingju þeirra og farsæld. Má því segja að lífsbraut Sigurðar hafi orðið honum, svo sem vænta mátti — hagstæð, því hann var sjálfur góður maður. Og nú er þessi þögula hetja dáinn. Þess vegna sendi ég öll- um ættingjum hans og ástvin- um innilega samúðarkveðju og bið ykkur öll að þakka Guði fyr- ir góðar minningar um íslenzka vininn okkar, Sigurð Hjálmars- son stýrimann. Kristín Sigfúsdóttir Sjóvinnunámskeið FramhaM af bls 181 aði smá seglpjötlu, það var allt og sumt og held ég að þetta sé svona enn. Það er þetta, sem ekki getur gengið lengur. Stýri- maður sem útskrifast, á skil- yrðislaust að kunna öll störf sem tilheyra starfinu, hvort heldur er á fiski- eða fraktskipi eða hverju öðru skipi. í sjó- vinnudeild verknáms eru kennd öll venjuleg stöi’f til sjós og að auki siglingafræði, sem veitir 30 tonna réttindi. Væri sú til- laga ekki athugandi, að sett yrði, að skilyrði fyrir inngöngu í Stýrimannaskólann, að um- sækjandi hefði próf úr sjóvinnu- deild verknáms og mætti þá um leið stytta siglingatímann um helming. Flestir skólar setja ein- hver skilyrði um þekkingu til inngöngu í sinn skóla og virð- ist því, að til inngöngu í Stýri- mannaskólann væri þetta skil- yrði mjög eðlilegt og ákjósan- legt. Ekki get ég lokið svo þessu spjalli, að ég minnist ekki og flytji mínar þakkir, og vil ég segja allrar þjóðarinnar, þeim Jóni Gissurarsyni, skólastjóra verknámsins og Séra Braga Friðrikssyni frkvstj. Æskulýðs- ráðs. Þó þessum málum sé í dag sýnt tómlæti, mun sá tími koma, að þjóðin læri að meta störf þessara manna og mun þá minn- ast þeirra síðar meir með þakk- læti. Þó mundi ég telja að bezta viðurkenningin fyrir brautryðj- endastarfi þeirra væru tafar- lausar framkvæmdir að hálfu forráðamanna sj ávarútvegsmála í þá átt, að bæta úr því ófremd- arástandi sem lýst hefir verið hér að framan. Hör'Óur Þorsteinsson 209

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.