Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1964, Page 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1964, Page 15
Síldarveiðisvæði Bússa. Sölumögrileikar Islendinga á síld til þeirra fara nokkuð eftir aflamögruleikum Bússa á þessu svæði. „Severyanka“ hafði sannað til- verurétt sinn, ekki aðeins vegna gagnsemi rannsóknarinnar, held- ur og sem síldarleitarskip. Þegar báturinn á ný kafaði um kvöldið, sýndu mælitækin strax fisk, en dálítinn tíma sást enginn fiskur út um útsýnis- gluggana. Það var fyrst á mið- nætti, sem bátsverjar sáu að þeir sigldu innan um hóp „líf- vana síldar, rétt eins og áður. Nú hafði verið sannað, að sú til- gáta sjómannanna, að óveðrið flæmdi burt síldina hafði ekki við rök að styðjast. Frekari nákvæmar rannsókn- ir sýndu, að bezt var að sigla með tveggja mílna hraða til að fylgjast með síldinni, eða um 1 meter á sek. Síldinni var auðsjá- anlega illa við ljósið og brátt varð ljóst, að henni var misilla við1 ljósið eftir því á hvaða tíma sólarhringsins það var. Þannig hreyfði síldin sig hægt undan ljósinu niður á við, ef um dags- tíma var að ræða, en þó ekki mjög langt í burtu að því er VÍKINGUR bergmálsdýptartækin sýndu og strax eftir 10 mínútur, er Ijósin höfðu verið slökkt, lyfti síldin sér aftur á fyrra dýpi, en synti svo á sama hátt á braut, þegar ljósið var kveikt að nýju. Síldarslóö eins og hún kom fram á mælitækjum kafbátsmanna. Skuggarnir, sem eru eins og þumalfingursnögl i laginu táluia hver um sig síld. 193

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.