Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Síða 5
Fyrir tveimur árum hljóp þetta 226 feta skip af stokkunum. SkipiS er í eigu Rossfyrirtœkisins. ÁformaS er
uð smíSa 10 skip af þessari gerS á nœstunni. Þetta er skip meS frystibúnaS og myndi sennilega lienta okkur.
einir um hituna. Þá er þarna tals-
verður karfi, sem ekki verður
nýttur öðruvísi en af frystihús-
unum. Og þá kemur sér vel vega-
kerfið, sem verið er að ljúka við
á Norðurlandi og tengir saman
Siglufjörð, Ólafsfjörð, Dalvík,
Akureyri og Sauðárkrók. Ættu
skipin að geta landað á einhverj-
um þessara staða og aflanum síð-
an ekið til næstu staða eftir því
sem ástatt er í frystihúsunum. Ég
minnist þess t.d. að 1 fyrra kom-
um við á „Sigurði" og lönduðum
280 tonnum af ferskfiski á Siglu-
firði. 240 tonnum var hægt að
taka við en 40 tonnum af karfa
var kastað í guano, vegna þess
að engin tök voru á að vinna
hann. Verkstjórinn sagði að þetta
væri þó fallegasti karfi, sem hann
hafði séð. Hér hefði vegakerfið
bætt úr og hægt að senda þessi
40 tonn til vinnslu á öðrum stað
og þannig nýttur frystihúsakost-
urinn.
— En fer ekki illa með fiskinn
að aka honum langa leið í bifreið-
um?
— Nei, það tel ég ekki. Hann
þolir slíkan flutning mjög vel.
Hins vegar þolir hann íslaust lít-
inn geymslutíma, ein stund á
landi jafngildir sólarhrings-
geymslu í lest skipsins. Ef farið
verður út í svona útgerð þarf að
skipuleggja að skipin komi inn
kl. 4.00 að morgni og hefji þegar
löndun. Fiskinum verði svo dreift
fyrst til fjarlægu staðanna og
stefnt að því að vera búið að full-
vinna hann að kvöldi.
Það er ákaflega mikilvægt að
löndunarvinnan geti haldizt í
hendur við veiðarnar og þar
standi ekki á neinu.
Út af fyrir sig má segja að
löndunaraðstæður í Reykjavík og
Hafnarfirði eigi mikinn þátt í
því, hvernig komið er fyrir tog-
araútgerðinni. Því það tekur 3—
5 daga að fá afgreiðslu á 350
tonna afla, 3 daga í löndun og
einn dag að ísa aftur er algengt.
Tæknina vantar svo gersamlega
í löndunarstarfsemina að þar er
um algjöra kyrrstöðu að ræða. Og
oft verða skipin að vera lengur
úti, stundum viku, en æskilegt er,
vegna þess að enginn möguleiki
er að fá aflanum landað.
Verkfræðingur einn hefur sagt
mér, að enginn vandi sé að landa
karfa með dælu. Myndi þá hægt
að landa 350 tonnum á 10 klst.
með 7 til 8 mönnum, en enginn
verður þó til að drífa í því, og
kostar þó dæla varla meira en
einn krani. En kranar eru þó
SéS inn í skutrennuna á Ross Valiant.
VÍKINGUR
223