Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Blaðsíða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Blaðsíða 29
Ný gerð af rœkjuvörpu, sem sleppir ungviðinu. Það er álit fiskifræðinga, að á árinu 1964 hafi eitt þúsund milljón af kola ung- viði fallið dautt í rækjuvörpum Hollendinga. Þetta vakti, að vonum, mikla athygli þeirra, og til þess að fyrirbyggja áfram- haldandi rányrkju, hófu sérfræðingar í netagerð tilraunir með þeim árangri, að út- búin var rækjuvarpa með „opnum“ poka. Tilraunir með þessa vörpugerð, sem útbúin var af hollenzkum veiðarfærasér- fræðingi, dr, Bodekki, þóttu gefast mjög vel, og varð rækjuveiðin miklum mun „hreinni," þannig að rækjan féll eins og áður í poka vörpunnar, en hið fljótandi ungviði slapp að mestu lifandi út um opið, eins og til var ætlazt, Enda þótt þessi vörpugerð kunni að vera nokkuð frábrugðin þeim, sem við notum hér við land á grunnslóðum, látum við teikningu sem birtist nýlega í World Fishing, fylgja til athugunar fyrir íslenzka fiskimenn og netasérfræðinga, 0<XXKxXXX>0000000«XXXXX>00000000000000<X>000000000000000000 auk aðalhafna, einnig ná til hafna þar sem viðgerðir eru framkvæmdar á skipum, og að því er varðar olíuflutningaskip, til fermingar- og affermingar- hafna fyrir olíu. — Ný ákvæði banna öllum skipum 20.000 brl. og stærri, sem samið er um smíði á gildistöku- dag breytinganna eða síðar, að losa olíu í sjó hvar sem er í heim- inum, nema þegar ekki verður umflúið vegna sérstakra að- stæðna. — Hafsvæði þau, þar sem öll losun olíu er bönnuð, hafa verið aukin víða í heiminum. Þessi aukning bannsvæða nær til eftir- talinna hafsvæða: Kanada-haf- svæðið í Kyrrahafi, Norðvestur- Atlantshafssvæðið, íslenzka haf- svæðið (aukið í 100 mílur frá strandlínum), Norska Norður- sjávarsvæðið og Eystrasalts- svæðið, Norðaustur-Atlantshafs- svæðið. Með þessum breytingurn verður Norðursjór og Eystrasalt og töluverður hluti Norðaustur- Atlantshafssvæðisins að 40° vest- lægrar lengdar og suður að Fini- stere-höfða algjör bannsvæði. — Við bætast nokkur 100 mílna strandlengjubannsvæði út frá ströndum landa, þegar ríkis- stjórnir viðkomandi landa hafa staðfest breytingarnar, þar á meðal öll Miðjarðarhafslöndin. VÍKINGUR 247

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.