Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Qupperneq 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Qupperneq 10
Þetta víðáttumikla haf ætti að rannsaka rækilega af stofnun, sem einnig hefði ráð á djúpliafs- rannsóknarskipi til framhaldsat- hugana. Þar sem strandbúar eru til- tölulega fáir, mundi megnið af aukinni veiði verða dreift til ann- arra fjölmennari svæða. Þar eð ástæða er til að hnlda, að svæði þessi njóti aukinnar gróðursældar á næstu árhundruð- um, svipað og uppstreymisbeltin við strendur S- og SV-Afríku, muni þau geta keppt við veiði- svæðin er liggja að Perú. Það er að sjálfsögðu ekki tíma- bært að ræða um eitthvað ákveðið væntanlegt magn. Þó ætti það að vera þarflegt að ákveða æskileg- ar ráðstafanir. * FISKIMJÖL. Það eru stórar bjarglindir við dyr þeirra jarðarbúa, sem búa við mesta fæðuskortinn. Er það því æskilegt, eða þjóðfélagslega hagkvæmt, að mestur hluti afl- ans fari til framleiðslu á fiski- mjöli, eins tilfellið er í Perú og SV-Afríku, sem síðan er notað til aukinnar kjötframleiðslu í lönd- um, þar sem nægar matarbirgðir eru fyrir hendi? Við heyrum þrá- faldlega, að hin háþróuðu Vestur- lönd vilji aðstoða hin þéttbýlu og vanþróuðu lönd í fæðuvandamál- um þeirra, að minnsta kosti þar til þau hafa leyst fólksfjölgunar- vandamálið, með takmörkun fjöl- skyldustærðar. Stórum fjárhæð- um er þannig varið til ýmiskonar aðstoðar, bæði til beinna kaupa á matvælum, eins og í Bandaríkj- unum, og tækniaðstoðar. Það myndi verða í mótsögn við takmarkið ef stór hafsvæði, ná- lægt vannærðu fólki, verða könn- uð, með útflutningi til annarra landa fyrir augum. Þess vegna er kostnaðurinn við framleiðslu neyzlufiskjr.r mikilsvert atriði, en ekki framleiðslu á miklu hrá- efnismagni til geymslu og neyzlu síðar. Nei, góð vara til neyzlu strax á viðkomandi landsvæði. * FISKIVEYZLA. Þrátt fyrir hægfara þróun og öruggrar í fiskveiðum Indverja, næstum eingöngu á grunnmiðum og nálægum miðum, er ársafli þeirra orðinn 1 milljón smálestir, þ.e. nokkuð meiri en ársafli Breta. Þetta er þó ekki meira en það, að 1 Kgr. kemur á hvert mannsbarn í landinu árlega (eft- ir að fiskurinn hefur verið slægð- ur og tilreiddur), eða ca. tíundi- hluti miðað við Breta. Meðaltal aflamagns hvers meðal Indverja er árlega 250 Kgr. Á móti 700 Kgr. hins brezka. 1 Pakistan neytir hver íbúi að meðaltali 2 Kgr. fiskjar, sem er mjög lítið. Það er þannig augljóst að í Ind- landi er gífurlegur markaður fyrir fisk, þar sem um er að ræða ca. 500 milljónir íbúa. Ef mark- aður þessi á að notast, verður að halda framleiðslukostnaðinum niðri og framleiða góða vöru, sem neytt verður ásamt hefðbundnu mataræði fólksins. Hér gæti fiskimjöl, eða fiskur framleiddur á annan en heilnæm- an hátt og lystugan, verið æski- leg neyzluvara. Mikilsverðasta næringarefnið er fitan og marg- ar matvælastofnanir hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að jurtafit- an geti ekki komið í stað dýra- fitu. Þá er þess að gæta, að fisk- neyzla fer yfirleitt ekki í bág við trúarskoðanir hinna ýmsu trúar- flokka, en það gerir kjötneyzla. Aukning á kjötframleiðslu á lág- lendinu mundi í öllu falli verða mjög hægfara, vegna samkeppni við illgresið. Ekki svo að skilja, að auknar fiskveiðar leysi endanlega vanda- málið í fæðuskorti í Indlandi. Það, sem þær gætu þó komið til leiðar, er framleiðsla á hollum mat, sem mætt gæti skorti á nær- ingarefnum. Með nægilegu fjármagni gætu veiðar á ónotuðum veiðisvæðum aukizt miklu fljótar, heldur en fæðuframleiðsla á ófrjósömum ó- notuðum landsvæðum og auk þess gefa ódýrara næringarefni, mið- að við einingu, heldur en land- búnaðurinn. Þar sem brezka stjórnin hefur að staðaldri herskipaflota stað- settan á Indlandshafi, og yfir- gnæfandi hluti landsbúa þjáist af fæðuskorti, en Indverjar eru þegnar brezka heimsveldisins, ætti að vera sjálfsagt að Bretar hefðu forystuna í framþróuninni á hafsvæði brezka samveldisins. Slíkt hefur vitanlega fjárútlát í KortiS sýnir vœntanleg veiðisvœSi Indverja og fólksfjöldann á þessurn slóðum. VÍKINGUR 228

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.