Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Page 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Page 21
Safnaðarstjórn nokkur auglýsti eitt sinn eftir organleikara og söng- kennara. Ein umsóknin var á þessa leið: „Ég hefi lesið auglýsingu yðar eftir organleikara og söngkennara, annaðhvort karlmanni eða konu. Þar sem ég hefi verið hvorttveggja árum saman, leyfi ég mér að sækja um stöðuna!“ * Margt skeSur í sundknattleik. Áhyggjurnar minnka ekki við að hugsa stöðugt um þær, það eyðir aðeins þeirri orku, sem nauðsynleg er til að yfirvinna þær. * Prestinum gramdist oft hversu kirkjugestir mættu seint til messu, en hann kippti þessu í lag þegar hann hóf eitt sinn messugjörð á þessa leið: „Drottinn, blessaðu þá, sem nú eru komnir í sæti!“ Tvær nágrannakonur voru erki- óvinir. Dag nokkurn var önnur þeirra önnum kafin við að hengja upp þvott, en hin stóð álengdar og horfði á. „Á hvað ertu að glápa, hefurðu aldrei séð þvott hengdan upp?“ „Jú,“ svaraði hin hæðnislega, „en ég er vön að þvo tauið áður.“ * „Getur nokkur sagt mér hver það var, sem kyssti jörðina, sem hann sté á eftir mjög hættulega ferð?“ „Já, það var faðir minn, að af- lokinni fyrstu ökuferðinni með móð- ur minni í nýja bílnum okkar.“ * FRÍ vaktin Björgvinjarbúi kom eitt sinn að hliðum himnaríkis og að venju spurði sankti Pétur hann um nafn og heimilisfang. „É heiti Pétur eins og þú, og er frá Bergen.“ „Nú já, andvarpaði Pétur gamli. Gakktu innfyrir, — en þú verður nú að afsaka að aðbúnaðurinn er sennilega eins fullkominn og þú hef- ir vanist." * Prestur nokkur mismælti sig í stólræðu og sagði að Jesú hefði mettað fimm manns með fimm þús- und brauðum og sjö fiskum. Gall þá einn kirkjugestur við: „Það hefði ég líka getað gert.“ Árið eftir lagði prestur útaf sama texta og mismælti sig nú ekki. Gaut hann auganu á kirkjugestinn frá árinu áður, sem mættur var: „Hefð- ir þú nú getað gert þetta, Jakob minn?“ „Já,“ svaraði hinn um hæl, „hefði ég haft leifarnar frá því í fyrra!“ * Vélstjóri nokkur við aldur, sem hættur var á sjónum og kominn heim til sín í Skotlandi, kunni illa iðjuleysinu. Hann sneri sér því til járnsmiðsins í þorpinu og bað hann að láta sig fá eitthvað að gera. „Hvað geturðu gert spurði járn- smiðurinn. „Ég hefi verið vélameistari,“ var svarið. „Allt í lagi,“ segir járnsmiðurinn, hér úti á túninu er asni, prófaðu nú leikni þína og reyndu að járna hann, ef þér tekst það vel, þá færðu vinnu hjá mér.“ Um kvöldið kom vélstjórinn og bað járnsmiðinn að líta á járning- una hjá sér. Fyrir utan lá asninn á hryggnum með alla fjóra fætur beint upp í loftið. Hann var sýni- lega vel járnaður og smiðnum lík- aði verkið ágætlega og hældi vél- stjóranum á hvert reipi, og sagðist vera mjög ánægður að fá hann í vinnu, en segir um leið: „Hvemig stendur á að asninn liggur svona á bakinu?“ „Ég veit ekki,“ segir vélstjórinn, „hann lagðist svona strax og ég tók hann úr skrúfstykkinu." * VÍKINGUR 239

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.