Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Qupperneq 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1966, Qupperneq 28
sjómanna og útgerðarmanna vann íslenzki fulltrúinn að því, að fiski- skip yrðu ekki tekin inn í þessa al- þjóðasamþykkt um hleðslumerki. Var sú ósk byggð á þeim rökum, að fríborð og stöðugleiki fiskiskipa eru svo nátengd atriði í öryggi þess- ara skipa, að þau verða ekki ákveð- in nema samtímis. Nú vinnur sér- stök nefnd að því innan IMCO að kanna stöðugleika fiskiskipa, og sú nefnd hefir að vissu leyti þegar orð- ið að taka til athugunar fríborð miðað við stöðugleika. Umræðunum í almennu nefnd ráðstefnunnar um þetta mál lauk þannig, að Sovét-Rússland dró til baka tillögu sína um að fiskiskip yrðu tekin með í þessa alþjóða- hleðslumerkjasamþykkt, en í stað þess náði samþykki tillaga um að aftan við sjálfa samþykktina yrði ályktun þess efnis, að alþjóðaráð- stefnan hefði að afloknum umræð- um um að setja í samþykktina al- þjóðahleðsluborð fyrir fiskiskip á- kveðið að mæla með því við Al- þjóðasiglingamálastofnunina að hún haldi áfram og auki rannsóknir varðandi lágmarksfríborð fyrir fiskiskip, með það markmið fyrir augum að setja síðar alþjóðaákvæði um lágmarksfríborð þessara skipa. Þessi ályktun var síðar staðfest á heildarfundi ráðstefnunnar. 7. Hafsvæðin, sem hleðsluborð mið- ast við. Ráðstefnan hafði til athugunar veðurfarslýsingar allra hafsvæða og voru þær notaðar sem grund- völlur við ákvörðun á leyfilegu mesta hleðsluborði miðað við árs- tíma hvers hafsvæðis. Markalínur vetrar-hafsvæðanna voru færðar töluvert til miðað við núgildandi alþjóðasamþykktina frá 1930, bæði í Norður-Atlantshafi og í Kyrrahafinu. Nýju markalínurnár eru þannig, að skip munu geta siglt suður fyrir Góðravonarhöfða og suður fyrir Ástralíu án þess að sigla út úr sumarhafsvæðinu. — Eystrasalt, Svartahafið, Miðjarðar- hafið, Japanshaf og hluti Norður- Atlantshafs meðfram austurströnd Bandaríkja Norður-Ameríku verður talið innan sumar-hafsvæðis alltaf, en þetta gildir þó ekki um lítil sklp, (100 metra löng og minni) því að því er þau skip varðar verða þessi hafsvæði áfram árstíðabundin vetr- ar-hafsvæði. — Nokkrar breytingar voru einnig gerðar á hitabeltis-haf- svæðum. 8. Undirritun samþykktarinnar um hleðslumerki skipa 1966 og gildis- taka hennar. Þessi nýja alþjóðasamþykkt um hleðslumerki skipa 1966 var undir- rituð af fulltrúum ríkisstjóma þátt- tökulandanna í London 5. april 1966, flestir með fyrirvara um síð- ari staðfestingu. Af íslands hálfu undirritaði Hjálmar R. Bárðarson, skipaskoð- unarstjóri, alþjóðasamþykktina. Eins og fyrr getur tóku 60 lönd þátt í þessari ráðstefnu. Alþjóðasamþykktin um hleðslu- merki skipa 1966 tekur gildi 12 mánuðum eftir að minnst 15 lönd hafa staðfest hana, þar af þurfa 7 landanna að eiga skipastól minnst ein milljón brúttórúmlestir að stærð. ★ Fréttabréf frá Alþjóðasiglingamálastofnurmi, IMCO, og skipaskoðunarstjóra Gildistaka nýrra alþjóSlegra a'ð- gerða til verndar gegn olíu- óhreinkun hafsvæða og stranda. 1 fréttabréfi frá Alþjóðasigl- ingamálastofnunni IMCO dags. 7. júní 1966, segir frá gildis- töku nýrra alþjóðlegra aðgerða til verndar hafsvæða og stranda gegn óhreinkun af völdum olíu. Flestar þær breytingar, sem gerðar voru á alþjóða ráðstefnu á vegum IMCO í London árið 1962 á alþjóðasamþykktinni frá 1954 um varnir gegn óhreinkun sjávar af völdum olíu, taka gildi eftir 12 mánuði, talið frá 18. maí 1966, en þann dag afhenti Island fullgildingarskjal sitt hjá IMCO 246 í London á breytingunum frá 1962. Með þessari fullgildingu, sem er hin tuttugasta og fyrsta í röð- inni er náð nauðsynlegri tölu fullgildinga, sem sé tveim þriðja hluta þeirra ríkisstjórna, sem áð- ur höfðu staðfest alþjóðasam- þykktina frá 1954. Gildistaka þessara breytinga frá 1962 mun auka verksvið sam- þykktarinnar og gera raunhæfari ýmsar ráðstafanir, sem allar miða að minnkun óhreinkunar sjávar af völdum olíu. Þessar breytingar hafa áhrif á svo til allar greinar 1954-sam- þykktarinnar. Af helztu breytingum, sem gildistaka 1962-ákvæðanna veld- ur, má nefna eftirfarandi: — Að því er varðar olíuflutn- ingaskip, þá nær samþykktin eft- ir gildistöku breytinganna til skipa niður að 150 brúttórúm- lesta stærð í stað 500 brl. áður. Aðildarríkisstjórnir hafa enn- fremur skuldbundið sig til að gera viðeigandi ráðstafanir til, að eins miklu leyti og rýmilegt er að krefjast og framkvæman- legt, að láta ákvæði samþykktar- innar ná til allra skipa án tillits til stærðar þeirra eða gerðar- — Kröfurnar til hafna land- anna um móttökuskilyrði fyrir olíuóhreinindi úr skipum öðrum en olíuflutningaskipum, skulu nú, VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.