Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1980, Blaðsíða 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1980, Blaðsíða 13
hann gaf einhverjar skipanir og teygði sig síðan eftir stöng upp í loftinu og nú drundi öskrið enn einu sinni, ærandi og tryllingslegt. — Hættu þessu, æpti farþeg- inn. Karlinn leit forviða á hann. Hann sá náföla veiklulega dreng- spíru sem greip utan um höfuðið á sér og æpti aftur: Hættu þessu. — Er eitthvað að þér? spurði karlinn og ræskti sig. — Nei, en ég þoli ekki þetta hljóð, ég þoli það ekki. Skilurðu það. — Nei, svaraði karlinn og teygði sig aftur eftir stönginni og lét þokulúðurinn blása. Farþeg- inn baðaði út höndum og virtist ætla að hlaupa undir karlinn en svo snérist hann á hæl og hálf hrapaði niður stigann og út. — Hver andskotinn er þetta? spurði karlinn og leit hlessa til himna. Þeir svöruðu ekki, en bátsmaðurinn ypti öxlum og taut- aði; kannski kominn af hæli. Þeir dóluðu innra sundið með eyjuna Stómu á stjórnborða en Skotland á bakborða, baul úr vit- um réð ferðinni og karlinn blótaði lampanum í radarnum. Það var ekki fyrr en komið var fram undir hádegi sem Gísli fór niður. Hann var undarlega tómur í hausnum og bjórinn fastur í maganum eins og klumpur sem gekk ekki niður. Hann kveið fyrir því að liggja andvaka, of þreyttur til að geta hvílt sig, og samt fann hann ekki til neinnar venjulegrar þreytu, heldur kalds dofa, sem byrjaði í handleggjunum og heltók síðan allan líkamann. Bezt að fá sér eitthvað hugsaði hann og tók stefnuna á sjúkraklefann. Farþeginn sat bograndi á legu- bekknum og tók ekki strax eftir því að komið var inn. Svo fann hann nálægð einhvers útundan sér og greip í fáti eftir ullarteppi í kojunni og reyndi að hylja það sem hann var með. Gísli var augnablik að átta sig, honum VÍKINGUR sýndist farþeginn vera með sjúkrakassann og þegar hann leit á apótekið sá hann að það hafði verið dýrkað upp og brúna tré- hurðin í hálfa gátt. — Hvað ertu að gera, sagði hann höstuglega og sleit teppið úr höndum farþegans. — Ekkert, hrópaði farþeginn og Gísli sá þennan svæfingar- glampa í augum hans og andlitið ein frosin gretta eins og gríma. Svo fann hann granna titrandi hönd hans grípa í handlegg sinn og nagaðar varirnar hvísluðu óða- mála: Viltu hlusta á mig, ha? Gerðu það seztu og hlustaðu á mig, þá get ég útskýrt þetta allt — í guðana bænum, gerðu það fyrir mig. Umkomuleysið í rödd farþeg- ans og höndin sem hélt enn í Mynd: Guðbergur Auðunsson handlegg hans, beinaber og nötr- andi, vakti örlitla hluttekningu í brjósti Gísla og hann lét sig síga niður á stól við borðið. Hvers vegna minnir hann mig á hana, hugsaði hann og sagði: Þú hefur brotist inn í apótekið. — Ef þú hefðir lesið skjölin sem lögreglumaðurinn lét þig fá í Gautaborg, þá vissirðu að ég væri dópisti. Sjáðu til ég fékk með mér pillur sem áttu að nægja akkúrat þar til við kæmum heim, en nú höfum við tafist svo lengi og ég verið svo slæmur að það eru bara tvær eftir og ég ætlaði að fá lánaða sprautu í kassanum til að geta tekið þær beint í æð. Ef ég ét þær nýtast þær miklu verr, magasýr- umar og svoleiðis skilurðu — en ef ég myl þær niður í vatni og sprauta þeim beint í æð slepp ég 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.