Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1980, Blaðsíða 65
r
Sveinn
Þorbergsson
heidursfélagi
V.S.F.Í.
Sveinn Þorbergsson
Á aðalfundi Vélstjórafélags
íslands, sem haldinn var þann
6. janúar 1980 var samþykkt
tillaga um, að Sveinn Þor-
bergsson, vélstjóri, yrði gerður
að heiðursfélaga V.S.F.Í.
Sveinn er fæddur 12. apríl
1899 að Klúku, Ketildala-
hreppi og er sonur hjónanna
Þorbergs Bjamasonar, bónda
og sjómanns, og Guðnýjar S.
Sveinsdóttur. Hann lauk
Mótornámskeiði Fiskifélags
íslands hinu minna árið 1928,
hinu meira í Reykjavík árið
1940 og lauk síðan viðauka-
prófi 1947. Sveinn hefur
starfað sem vélstjóri samtals í
35 ár og var lengst af á skipum
Landhelgisgæslunnar.
Sveinn var einn af stofn-
endum Mótorvélstjórafélags
íslands og var í stjórn þess frá
upphafi og í stjórn Vélstjóra-
félags íslands frá sameiningu
félaganna og til 1977. Hann
fékk heiðursverðlaun Mótor-
vélstjórafélagsins 1949 og
Vélstjórafélagsins 1969ogauk
þess heiðursmerki Sjómanna-
dagsins 1967. Hann er kvænt-
ur Jónínu Björgu Guðlaugs-
dóttur og eiga þau þrjú upp-
komin börn.
í tilefni af heiðruninni var
Sveini haldið smásamti og
afhent heiðursskjal með áletr-
uninni:
Sveinn Þorbergsson
Vélstjórafélag íslands hefur á
aðalfundi sínum þann 6.
janúar 1980 kjörið yður
heiðursfélaga fyrir frábær
störf í þágu félagsins.
VÍKINGUR
65