Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1980, Qupperneq 48

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1980, Qupperneq 48
Myiul 3: Smokkfisktorfa (a) st>m náðist í vörpu, 38 KHz, st'iidist. 6. við í trollinu mátti hins vegar ráða í. að annað sem lóðaði á, var ljós- áta og loðna á fyrsta ári (mið- sjávar á nóttinni. við botn á dag- inn). mynd lb og mynd 2, en þorskur við botn, mynd 1. Magar þeirra smokkfiska er fengust voru og allir úttroðnir af ljósátu. Þegar langt var liðið á daginn var gefist upp á loðnutrollinu og flottrolli togarans slegið undir. Trollið var með 82 m höfuðlínu, allt að 1800 mm möskvum í vængjum og 155 mm möskvum í belg og poka. Þegar trollinu hafði verið kastað hafði mjög dregið úr torfulóðningum og lítið sem ekk- ert lóðaði á smokkfiski. Tvær fremur litlar lóðningar (miðað við lóðningarnar fyrr um daginn) komu þó í ljós á dýptarmælum (mynd 3). Trollinu var miðað á lóðningarnar og sást að minnsta 48 kosti önnurþeirra fara inn í trollið á höfuðlínumæli (mynd 4). Þegar híft var, voru um 3 tonn af smokkfiski í trollinu, þar af -um 300 kg ánetjuð í belg, sem tiltölu- lega auðveldlega var hægt að draga og hrista úr netinu. Lítið var um að smokkurinn væri ánetjaður í sjálfum pokanum. Haldið var áfram að toga með fiskitrollinu nokkuð linnulaust fram til kvölds næsta dags. En nú brá svo við að engar smokkfisklóðningar sáust, hvorki torfur né dreif, og ekki fékkst frekari afli en kom úr þessu eina togi. Siglt var inn í Jökul- fjarðarkjaft og inn fyrir Æðey í leit að lóðningum, en án árangurs. Pokinn var nú klæddur með fínu neti, en aldrei reyndi á hvort slíkt var til bóta, því afli eftir þetta var aðeins nokkrir tugir kg af ánetj- uðum smokkfiski. Að kvöldi ann- ars sólarhrings var tilraunum hætt og haldið inn til Suðureyrar. Hverju var ábótavant? í skýrslu um þessar tilrauna- veiðar ræðir undirritaður nokkuð um árangur þessarar tilraunar; ástæður þess að ekki tókst betur til og framtíðarhorfur. Hér skal stiklað á aðalatriðum skýrslunnar. Ljóst virðist, að smokkurinn sem getur verið mjög sprettharð- ur, hefur einfaldlega getað forðast loðnutrollið. Spurning er hins vegar hvort vænlegt sé að toga mikið hægar en gert var, og vakn- ar þá enn sú spurning hvort loðnutrollið hafi ekki verið of fin- riðið til þessara nota. Þess ber og að geta, að við loðnutrollið voru notaðir hlerar frá flóttrolli togar- ans, líklega allt of stórir, svo opn- unin í vörpunni varaldrei meiri en 6—7 fm skv. höfuðlínumæli. Þetta atriði hefði hins vegar ekki átt að koma í veg fyrir að einhver smokkur slæddist inn í trollið. Fiskitrollið reyndist hins vegar vel nothæft þegar tæki gáfu til kynna að einhver smokkur væri undir. Að sjálfsögðu er eitt árang- ursríkt tog ekki mikil reynsla, en bendir þó til þess að kolkrabbinn smalist þrátt fyrir allt undan stór- um möskvum. Veiðar annarra þjóða Undirritaður hefur gert mikið til þess að leita frekari upplýsinga um vörpur sem notaðar hafa verið til hliðstæðra veiða. Það helsta sem komið hefur út úr þeim at- hugunum er, að Japanir, Kan- adamenn og Rússar stunda nú smokkfiskveiðar með togvörpu (aðall. botnvörpu), t.d. við Japansstrendur, Vestur-Afríku og austurströnd Norður-Ameríku. Eftir því sem næst verður komist er möskvastærð í þessum trollum mest 200 mm í vængjum (jafnvel 150—100 mm) og síðan minnk- andi niður í 40—50 í belg og poka. Talað er um toghraða allt upp í 4 hnúta. Þetta er ekki meiri möskvastærð (í vængjum) en á loðnutrollinu sem byrjað var með á Elínu Þorbjarnardóttur og tog- hraði jafnvel meiri. Hins vegar verður að hafa í huga, að hér er um að ræða veiðar á öðrum teg- undum, sem eru nokkru eða tals- vert minni en beitusmokkurinn „okkar“, svo sem kanadíska beitusmokknum. Undirritaður hafði veður af því að Rússar hefðu veitt kanadíska beitusmokkinn í flottroll. Við fyrirspurnarbréfi sem sent var í austurátt, kom svar seint og um síðir, en í það vantaði þó mikilsverðustu upplýsingarn- ar. Rússar toguðu á stórum veiði- skipum með flottrolli (botnvarpan mun sennilega og notuð við þessar veiðar) með góðum árangri við Kanadastrendur. Lóðrétt opnun í vörpum var 30 m og 100 m milli hlera sem svarar líklega til um 40 m láréttrar opnunar. Toghraði var sagður hafa verið 3,4—4 hnútar. Um möskvastærð segja Rússar, að hún hafi verið 60 mm í poka (eins og Kanadamenn kröfðust) en ekki VÍKINGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.