Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1980, Qupperneq 63
„Sérhönnuð olíuborskip”
Finnar koma til með að verða í
harðri samkeppni við ýmsar
þjóðir þegar olíuborun færist á
norðlægari slóðir. Finnar hafa
meiri reynslu en flestir aðrir í
sambandi við smíði skipa sem
notuð eru á ísi þöktum siglinga-
leiðum. Finnska skipasmíðastöðin
RAUMA REPOLA OY hefur
gert samning við Sovétríkin um
smíði 3ja olíuborunarskipa. Skip-
in verða sérstaklega hönnuð fyrir
borun eftir olíu norðan 70.
breiddargráðu en það þýðir m.a.
Barentshaf. Borunarskipin eru hin
fyrstu sinnar tegundar sem hægt
væri að setja í sérhóp skipa, þ.e.
„ísflokk“. Samningurinn við
Sovétríkin hljóðar upp á 900
milljónir finnskra marka. Skipin
eiga að afhendast á næstu þrem
árum. Hönnun skipanna er byggð
á þei reynslu sem aflast hefur með
notkun á hollenska borskipinu
Pelican. Þó er rétt að benda á það,
að þessi olíuborunarskip eru um
margt frábrugðin þeim 17 bor-
unarskipum sem eru í notkun í
dag. Þessi skip sem Finnar hafa nú
hafið smiði á, hafa ýmiskonar
sérbúnað vegna þessa hlutverks
síns að bora eftir olíu norðan 70.
breiddargráðu. Má þar benda á,
að þau eiga að geta komist auð-
veldlega áfram í ishrafli og þau
koma til með að geta borað niður
á svipað dýpi og venjulegir bor-
pallar í dag. Hámarkshraði verður
13 hnútar, og er reiknað með að
hægt sé að flytja skipið á mjög
skömmum tima frá .borunarstað,
sem er nauðsynlegt á svo norð-
lægum hafsvæðum.
Þessi samningur Finna við
Sovétríkin er byggður á fyrri
samningum þessara aðilja, en
áður hafa Finnar byggt 14 svo-
kölluð pólar-olíuflutningaskip,
skip sem eru sérhönnuð til flutn-
inga á olíu á norðlægum slóðum
þar sem bæði er um hafís og
ísingarhættu að ræða, auk þ'ess
sem þar er allra veðra von. Kemur
reynsla Finna af ísi þöktum sigl-
ingaleiðum á Helsingjaflóa þeim
að góðum notum í samkeppninni
um smíði skipa til notkunar á
norðlægum hafsvæðum. Finnar
eiga þó í samkeppni við Japani,
Kóreumenn og Brasilíumenn á
þessum markaði. En auk þess að
smíða fyrir Sovétríkin hafa þeir
smíðað ýmiskonar íshafsskip fyrir
Norðmenn og Argentínumenn,
svo eitthvað sé nefnt.
VÍKINGUR
63