Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Blaðsíða 7
Kanada:
15.000 manns starfa nú hjá
National Sea og Nickerson
— Fyrirtækin nú með sameiginlegt sölukerfi
Tveir stærstu fiskframleiðendur
Kanada National Sea Products
Ltd. og H.B. Nickerson and sons
Ltd. hafa nú ákveðið að taka upp
samvinnu í sölu- og markaðsmál-
um. í samningi sem fyrirtækin
hafa gert segir, að National Sea
eigi að sjá um sölu og markaðsat-
huganir um heim allan.
í raun hefur samvinna þessara
fyrirtækja verið mikil á undan-
förnum árum, eða frá því að
Nickerson keypti meiri hluta
hlutabréfa í National Sea Products
fyrir þremur árum.
Eins og komið hefur fram, þá
keppa þessi tvö fyrirtæki við
Coldwater Seafood og Iceland
Seafood á Bandaríkjamarkaði og
eru þar erfiðustu keppinautar ís-
lendinga. Þeir eru nú byrjaðir að
þreifa fyrir sér í Evrópu. Nicker-
son var áður með skrifstofu í
Kristiansand í Noregi og nú hefur
nafni þeirrar skrifstofu verið
breytt í National Sea Products
(Norway) A/S. Þessi skrifstofa
verður eina skrifstofa fyrirtækj-
anna í Evrópu á næstunni, en fyr-
irtækin verða síðan með umboðs-
menn í löndum eins og Svíþjóð og
Frakklandi.
Þá hefur komið fram í fréttum
að National Sea hefur sýnt áhuga,
á að byggja verksmiðju í Uruguay
til framleiðslu á afurðum úr lýsing
og smokkfiski.
Skrifstofa National Products í
Noregi á von á að þessar afurðir
muni seljast vel á Evrópumarkaði.
Evrópuskrifstofa fyrirtækjanna
á ennfremur að sjá um kaup og
sölu á fiskafurðum, sem fara um
allan heim, en endurkaup og sala
er nokkuð stór liður í rekstri fyrir-
tækjanna.
Um þessar mundir starfa í
kringum 15.000 manns hjá Nick-
erson og National Sea og eru
starfsmennirnir staðsettir víða um
heim.
Kanadamenn reikna með að
auka sölu á fiskafurðum til Evr-
ópu til mikilla muna á næstunni
og reikna þeir fyrst og fremst með
aukningu í sölu á: humri, krabba,
þorski, blálöngu, síld og akkar.
Skrifstofa National Sea í Noregi
hefur þegar selt töluvert af norsk-
um laxi og urriða á markaði í
Kanada og Bandaríkjunum.
Hirtshals Köleteknik
Gerum við kælitæki í skipum og í landi, erum þjónustuaðilar fyrir
kæliskápa, frystikistur o.fl. í stuttu máli: Við önnumst viðhald á öllu
sem snertir frost og kulda.
Umboð fyrir Ziegra ísvélar. Framleiðir 100 kg til 20 tonn á sólar-
hring.
Hirtshals Köleteknik
Havnegade. Sími 08-941916
Útgeröarmenn — vélstjórar.
Önnumst allar raflagnir og viðgerðir í bátum, skipum og verk-
smiðjum. Áratuga þjónusta við íslenskan sjávarútveg tryggir
reynslu og öryggi frá sérþjálfuðu starfsfólki.
VÍKINGUR
7