Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Qupperneq 8
Sl«?Pfð
Vegabréf eða
sjóferóabók
veróur aö hafa
Farmanna- og fiskimannasam-
bandinu svo og Sjómannasamband
íslands hafa borist bref þar sem
ræðismaður íslands í Cuxhhaven
tilkynnig aö samkvæmt nýjum regl-
um þar í landi, þá verði þeir menn
framvegis teknir fastari tökum sem
ekki hafa meðferóis vegabréf eða
sjóferðabók viö komuna til Chux-
haven. Framvegis verði þeir menn
sektaðir sem ekki hafi meðferðis
fyrrnefnd skilríki og ef slíkt gerist
oftar en einu sinni mega menn bú-
ast við að verða ákæröir.
Athyglisverð
árbók frá íslandi,
— segja Norö-
menn
Jslendingum hefur tekist þaö
aftur. Árið 1982 er ekki liðið, en
samt er fyrirtækið lceland Review
komið á markað með bókin lceland
Fisheries yearbook 1982," svo
segir norska tímaritið Fiskets Gang
um fiskveióibók íslands, sem kom
út fyrir skömmu.
Fiskets Gang segir ennfremur,
aö árbókin sé mjög skýr á allan hátt
og við greinargóðar skýringar og
greinar bætist við fallegir litir. Aug-
lýsingar margra framleiöenda eru
ekki síður litríkar og bera með sér
aö íslendingar skilji hvernig eigi að
ná árangri á mörkuðum.
Væri ekki fiskveiöabók sem
þessi, æskileg fyrir fiskveióiþjóð,
sem Noreg? spyr Fiskets Gang.
1100 kössum af
Rússafiski
hent á haugana
Sífellt berast fregnir af lélegum
gæöum íslensks fisks. Fyrir nokkr-
um vikum var skýrt frá því að um
1200 kössum af Ameríkufiski hafi
verið hent, sökum þess hve gæðin
voru léleg.
Nú hefur Víkingur fengið staðfest
að fyrir skömmu hafi 1100 kössum
eða íkringum 25 tonnum af frystum
fiski hafi þurft aó henda vegna lé-
legra gæða frá einu frystihúsanna á
Akranesi. Þetta var fiskur sem fara
átti á Rússlandsmarkaó og segja
menn aó fiskurinn hljóti aó hafa
verið úldinn þegar hann var frystur,
einfaldlega sökum þess að Rússar
hafa aldrei krafist jafn mikilla hrá-
efnisgæóa og Bandaríkjamenn.
Svona nokkuð hlýtur að vekja
menn enn frekar til umhugsunar
um hvaö sé aö gerast í gæðamálum
íslenskra sjávarafurða og Ijóst er aö
eitthvað róttækt veróur að gera ef
ekki á illa aö fara.
(sland og Albanía
Fyrir nokkru var haldinn alþjóð-
lega matvælasýningin í París, ein-
hver sú stærsta sem haldin hefur
verið í heiminum. Nokkrir íslend-
ingar sóttu þessa sýningu og þaó
vakti athygli þeirra að hvorki Sölu-
miðstöð hraófrystihúsanna né
sjávarafurðadeild Sambandsins
notuðu tækifærió til að kynna ís-
lenzkar fiskafurðir á Evrópumörk-
uðum. Reyndar var ekkert íslenzkt
fyrirtæki þátttakandi í þessari sýn-
ingu og af Evrópuríkjum voru að
aöeins ísland og Albanía sem tóku
ekki þátt í sýningunni.
Þó svo að íslenzk fyrirtæki hafi
ekki kynnt íslenzka fiskinn, þá
gerðu Færeyingar það. Föreya
Fiskasala var með stóran bás á
sýningunni og í myndarlegum
bæklingi sem þeir gáfu út mátti sjá
mynd af þorskflökum seldum á
Bandaríkjamarkaði undir vöru-
Eceland
4AQO Fisheries
S^Ö^Yearbook
8
VÍKINGUR