Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Blaðsíða 10
Kol og gufa koma á ný
Japanska fyrirtækið Mitsubishi
Heavy Indursties afhenti nýlega
ástralska skipafélaginu Australian
National Line, 74.700 tonna skip.
Það er ekkert nýtt að Mitsubishi
afhenti skip, en þetta skip er frá
brábrugðið öðrum skipum, sem
byggð hafa verið í heiminum síð-
ustu 26 árin að því leyti að það er
kolakynnt.
Örfá kolakynnt skip hafa verið
byggð í heiminum frá stríðslokum.
Árið 1945 voru byggð 2 skip og
árið 1956 var eitt skip byggt, einn-
ig fyrir Australian National Line.
Það var kynnt með kolum fyrstu 7
til 8 árin, en þá var kötlunum
breytt yfir í olíu. Nú hafa hlutirnir
snúist við á ný og kolin eru á ný
orðin hagkvæmari til orkugjafa
um borð í skipum en olían.
Norska blaðið Noregs Handels
og Sjöfartstidende segir nýlega að
áhugi manna fyrir að láta aflvélar
skipa brenna kolum hafi aukist
mikið að undanförnu og nú séu
einnig fjöldinn allur af orkuverum
og iðnaðarverðum sem noti kol
sem orkugjafa. í Noregi hafa
sementsverksmiðjur til dæmis
hætt að nota olíu og þar er nú
brennt kolum. (Sementverksmiðja
ríkisins á Akranesi mun von bráð-
ar nota kol í stað olíu).
Ástæðan fyrir þessum breyttu
við horfum er einfaldlega, að kol
eru nú tiltölulega ódýrari orku-
gjafi en olía. Verð á jarðolíu er um
þessar mundir kringum 180 doll-
arar tonnið, en kolatonnið er selt á
40 dollara. Kaloríuinnihald kol-
anna er ca. 60% af því sem olían
inniheldur. Ef miðað er við verð
og kaloríuinnihald, þá eru kolin
um það bil 270% hagkvæmari í
innkaupum sem orkugjafi, en þau
hafa líka marga vankanta. Því þarf
engann að udnra að menn hafi nú
áhuga á að nota kol til að knýja
skipin áfram.
Það eru ekki aðeins Ástralíu-
menn sem hafa sýnt áhuga á að
nota kolin á ný um borð í skipum.
Vitað er um 7 skip af stærðinni 36
til 75 þúsund tonn, sem nú eru í
smíðum og eiga að brenna kolum.
S.s. River Boyne.
S.s. River Boyne skipið sem
Mitsubishi smíðaði er búið 4.200
rúmmetra kolaboxum. Daglega
nokun af kolum er talin vera um
220 tonn, sem þýðir ca. 485 gr./-
BHK/Klst. Skipið er sérstaklega
smíðað til að flytja bauxít frá
Weipa til Gladstone á norður-
strönd Ástralíu. Sökum þess hver
grunnt er á þessari leið er há-
marksdýpt skipsins, fullhlaðið,
12.2 metrar. Lengd skipsins er
355.0 metrar og breiddin er 25.35
metrar.
Vélasamstæður.
Vélasamstæðurnar eru tvær
Combustion Engineerings kælar,
sem framleiða alls 70.000 kg. af
gufu á klukkustund miðað við
475°c og 60 kg/cm . Aðalhverfill-
inn er Mitsubishi Heavy Industri-
es og framleiðir hann 19.000 BHK
sem hámarkskraft. Venjulegur
skrúfuhraði er 80 snúningar á
mínútu og meðalhraði er 15.8
mílur á klukkustund.
Kolunum er skipað þannig um
borð, að þeim er blásið með
þrýstilofti og er hægt að skipa 100
tonnum um borð á klukkustund.
Kolin, sem notuð eru, eru frekar
smá yfirleitt minni en 13 mm.
Kolaboxin eru smíðuð úr ryðfríu
stáli, til þess að hliðar boxanna
verði eins hálar og frekast er kost-
ur. Til að ná til kolanna á sem
auðveldastan hátt, þá er þeim
skotið með þrýstilofti inn í kynd-
arstæðin og sérstakir hristarar losa
um þau í boxunum.
Eigendur River Boyne hafa
mikla trú á útgerð skipsins og
halda því fram, að það muni skila
góðum hagnaði á komandi árum.
VÍKINGUR
Nokkur gufuskip eru enn í notkun í norska kaupskipaflotanum. Hér er eitt þeirra
„Böröysund“.
10