Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Page 66

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Page 66
Samantekt: Guðmundur Sæmundsson M/S Hvassafell og aðdragandi að stofnun skipadeildar S.Í.S. Vöruflutningaskip með 2000 ha. díselvél af Fiat-gerð. Stærð: 1690 brúttólestir — 1143 nettólestir — 2300 DW lestir. Aðalmál: Lengd 78,37 m. — Breidd 23,34 m. — Dýpt 5,40 m. Smíðað úr stáli hjá Ansaldo-skipasmíðastöðinni í Genova fyrir itölsku sjórnina og ætlað til hergagnaflutninga. Sam- band ísl. samvinnufélaga festi kaup á skipinu í smíðum og voru samningar undirritaðir 2. apríl 1946. Það var afhent S.Í.S. 12. ágúst sama ár og hlaut þá nafnið Hvassafell. Fyrsti skipstjóri þess var Gísli J. Eyland (1886-1972), er áður var skipstjóri hjá útgerðarfé- lagi K.E.A. Frá Genova sigldi skipið til Trapani á Sikiley og lestaði þar 2000 tonn af vörum aðallega salti. Frá Sikiley hélt Hvassafell afur til Genova, en hafði þar skamma viðdvöl. Síðan var haldið heim á leið með við- komu á Bretlandseyjum. Þaðan sigldi Hvassafell á þremur sólar- hringum til íslands. Hreppti það illt veður á leiðinni frá Bretlandi, en reyndist hið besta sjóskip. Hvassafell kom til heimahafnar sinnar Akureyrar árla morguns hinn 27. september 1964. Var þá ekki liðið hálft ár frá því samn- ingur um kaup á skipinu var und- irritaður af Gunnari Larsen, þá- verandi útgerðarstjóra, f.h. S.I.S. Hvassafell var fyrsta stóra skipið, sem íslendingar eignuðust eftir heimstyrjöldina síðari og var það um skeið stærsta flutningaskip ís- lenska farskipaflotans. Hvassafelli var valin heimahöfn á Akureyri, bæði vegna þess að skipinu var ætlað að bæta að nokkru úr millilandaflutningum til Norður- og Austurlands og einnig annarra landshluta utan m/s Hvassafell 66 VIKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.