Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Side 17
tanka víða um land, t.d. tók hann
að sér endurbyggingu allra tanka
eftir snjóflóðin í Neskaupstað
1974, hann hefur byggt asfalt-
tanka víðs vegar, þann fyrsta á
Akureyri 1975 og á ísafirði sl. ár,
svo dæmi séu tekin. Nú vinnur
hann að endurnýjun loðnu-
bræðslu á Patreksfirði og er að
byggja stálgrindahús uppi á tönk-
unum til að verja ýmis tæki sem
þar eru. í tengslum við fram-
kvæmdirnar á Patreksfirði var
fluttur stærðar strompur frá
Keflavík til Patreksfjarðar. Gísli
hefur aldrei látið sig muna um að
flytja mannvirki milli staða. T.d.
flutti hann tank frá ísafirði yfir
Breiðadals- og Botnsheiði, til
Suðureyrar, þegar hann vann að
uppsetningu hitaveitunnar á
Suðureyri.
Auk þess að vera sífellt á flakki
um landið, með mis stóran hóp af
mönnum í kringum sig, hefur
Gísli um fjórtán menn í vinnu í
vélsmiðjunni í Garðabæ. Þar eru
smíðaðar stálgrindur fyrir stál-
grindahús, tankar og fellihurðir
fyrir verkstæðis- og iðnaðarhús-
næði sem athygli vöktu á Iðnsýn-
ingunni. Hurðirnar eru sérlega
léttar og sterkar, auk þess að vera
þéttar. Þær er hægt að fá af ýmsum
stærðum og gerðum, eftir óskum
kaupenda. Garðasmiðjan smíðar
rennihurðir, flekahurðir með
gönguhurðum og fellihurðir en
kostir þeirra eru hve auðvelt er að
opna þær. Til þess þarf aðeins að
toga í band, þá falla þær saman og
opnast. Gluggar eru í fellihurð-
unum og í þeim er tvöfalt ein-
angrunargler, þær eru einangr-
aðar með einangrunarplasti og
klæddar með galvaniseruðu stáli
og plasthúðuðu stáli eða áli.
Plasthúðin er sérlega auðveld í
þrifum.
Með því að kaupa hús eins og
það sem sýnt var á Iðnsýningunni,
með stálgrind og fellihurð frá
Garðasmiðjunni og húseiningum
Gísli H. Guðlaugsson við cina af fcllihurðunum sem hann hefur smíðað. Ekki þarf annað
en að kippa í spotta til að opna þær. Hurðirnar er hægt að fá af öllum stærðum og með
glugguin.
frá Berki hf. fæst einföld og góð
lausn á byggingu hvers konar
verksmiðjuhúsnæðis, bátaskýla og
fleira um leið og verið er að styrkja
íslenskan iðnað, en það hlýtur að
vera kappsmál manna, sérstaklega
þegar framleiðslan stenst full-
komlega allar gæðakröfur.
VÍKINGUR
17